21.12.1979
Neðri deild: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 163 í B-deild Alþingistíðinda. (247)
Umræður utan dagskrár
Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):
Hæstv. forseti. Það eru aðeins nokkrar setningar.
Það er ákaflega ákjósanlegt fyrir ríkisstofnanir, sem hafa sértekjur, að þeim sé ljóst hverjar þær tekjur eru. Ég held að það standi öðrum nær en mér að fræða hv. þm. Albert Guðmundsson um það. En ef hann liti á þær tekjur sem flugmálastjórn hefur frá ICAO, Alþjóðaflugmálastofnuninni, og áttaði sig á því, að þær tekjur eru greiddar í erlendum gjaldeyri, spyrðist síðan fyrir um hvað gengisbreytingar á þeim gjaldeyristekjum hefðu haft mikinn tekjuauka fyrir flugmálastjórn í för með sér, væri hann e.t.v. svolítið nær um það hvaða fé flugráð hefur til ráðstöfunar, sem honum virðist ekki vera ljóst. Það er líka ánægjulegt þegar ríkisstofnanir eru svo vel settar að þær gera sér ekki ljóst hversu mikla peninga þær hafa undir höndum.