12.05.1980
Efri deild: 82. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2555 í B-deild Alþingistíðinda. (2506)

176. mál, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda á þskj. 405.

Frv. þetta er nátengt því frv. sem hæstv, félmrh. mælti fyrir nú seinast og er samið af sömu nefndinni og samdi frv. um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda sem var hér seinast á dagskrá, en það er átta manna lífeyrisnefnd Alþýðusambands, Farmanna- og fiskimannasambands, Vinnuveitendasambands og Vinnumálasambands samvinnufélaga, ásamt fulltrúa tilnefndum af ríkisstj.

Í des 1979 samþ. Alþingi frv. til 1. um eftirlaun aldraðra. Með lögum um eftirlaun aldraðra var lágmarksréttur til eftirlauna samkv. lögum um eftirlaun aldraðra félaga í stéttarfélögum gerður að almennum rétti. Við undirbúning og samþykkt laganna um eftirlaun aldraðra var gert ráð fyrir að nauðsynlegt væri í framhaldi af þeim að sett yrðu í lög ákvæði um skylduaðild að lífeyrissjóðum. Ástæðan er sú, að það eitt að tryggja tilteknum aldurshópum réttindi með þeim hætti, sem gert er í lögunum um eftirlaun aldraðra, án þess að koma jafnframt á skylduaðild að lífeyrissjóði fyrir hlutaðeigandi stéttir og starfsgreinar, hefur óhjákvæmilega í för með sér ýmiss konar misræmi. Í fyrsta lagi er þess skammt að bíða að elstu árgangar þess fólks, sem ekki uppfyllir það skilyrði að vera fætt árið 1914 eða fyrr, nái ellilífeyrisaldri og geti að verulegu leyti orðið án lífeyrisréttinda. Gagnvart ekkjum manna, sem ekki hafa átt aðild að sjóðum, kemur þetta misræmi í ljós þegar eftir gildistöku hinna nýju laga. Enn fremur er í lögum um eftirlaun aldraðra ákvæði er koma í veg fyrir að menn geti hætt í lífeyristryggingum er þeir greiða iðgjald af og notið í staðinn réttinda samkv. eftirlaunalögunum. Verður að teljast óeðlilegt að krafist sé fullrar greiðslu af þeim sem kosið hafa að gerast félagar í lífeyrissjóði, en hinir, sem látið hafa þátttöku undir höfuð leggjast eða hafa ekki átt á henni kost með sjálfsögðum hætti, öðlist réttindi án greiðslu, ekki einungis fyrir liðinn tíma, heldur einnig framvegis. Eftir gildistöku eftirlaunalaganna er því óhjákvæmilegt að þegar verði komið á skylduaðild að lífeyrissjóði fyrir þá starfandi menn sem þátttökuskylda nær enn ekki til samkv. lögum eða kjarasamningum. Tilgangur þessarar lagasetningar, sem hér er fjallað um, er þannig að tryggja að allir starfandi menn beri á sama hátt kostnað af lífeyristryggingu eftir að nær öllum landsmönnum hefur verið tryggður sá lágmarksréttur til eftirlauna sem felst í lögunum um eftirlaun aldraðra.

Lífeyrisnefnd Alþýðusambandsins, Farmanna- og fiskimannasambandsins og atvinnurekenda hefur, eins og ég áðan sagði, unnið lengi að undirbúningi þessa máls. Heilbr.- og trmrn. og fjmrn. töldu heppilegast í samráði við átta manna nefndina að undirbúin yrðu þrjú frv. til að ljúka þeim áfanga í lífeyrismálum sem hófst með lögum um eftirlaun aldraðra.

Frv., sem mælt var fyrir áðan undir seinasta dagskrárlið, felur í sér almenn ákvæði um lífeyrisréttindi og skyldutryggingu, en í frv., sem ég mæli fyrir, er kveðið á um stofnun og starfrækslu almenns óbundins lífeyrissjóðs sem verða skal sjóður þeirra manna sem ekki eiga aðild að þeim lífeyrissjóðum sem fyrir eru eða stofnaðir kynnu að verða og fullnægja ákvæðum laganna. Í þriðja frv. er gert ráð fyrir að tekin verði upp almenn og heildstæð skráning lífeyrisréttinda og iðgjaldagreiðslna, en það frv. liggur fyrir Nd.

Með frv. um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda er sem sagt stefnt að því að koma á almennri aðild allra starfandi manna að lífeyrissjóðum. Meginreglan yrði sú samkv. þessum tillögum að tryggingaskyldu yrði fullnægt með þátttöku í þeim lífeyrissjóðum viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps sem fyrir eru og eftir því sem reglur einstakra sjóða um sjóðsaðild leyfa. Á hinn bóginn er, eins og ég hef þegar sagt, óhjákvæmilegt vegna þeirra manna, sem ekki eiga sjálfstæða aðild að einhverjum þeirra lífeyrissjóða sem fyrir eru, að þeim standi til boða aðild að ákveðnum óbundnum lífeyrissjóði sem sé öllum opinn. Því er gert ráð fyrir í þessu frv. að slíkur almennur lífeyrissjóður sé stofnaður og hann nefndur í frv. Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda. Gert er ráð fyrir að sé tryggingaskyldu ekki fullnægt með þátttöku í öðrum starfandi lífeyrissjóði skuli henni fullnægt með iðgjaldagreiðslu til þessa sjóðs. Nú um nokkurt skeið hefur Biðreikningur lífeyrissjóðsiðgjalda, sem er í vörslu fjmrn., gegnt að nokkru því hlutverki sem hér er lagt til að verði falið Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda.

Fjmrn. hefur að undanförnu unnið að gerð frv. um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda. Hefur rn. haft samráð við átta manna nefndina um þetta verk. Öll gerð frv. um söfnunarsjóðinn er í samræmi við reglugerðir flestra lífeyrissjóða sem tengdir eru félögum innan Alþýðusambands Íslands.

Samkv. ákvæðum laga um starfskjör launþega frá 1974 var öllum launþegum rétt og skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði viðkomandi starfsstéttar eða starfshóps. Fjmrn, var fengið um það úrskurðarvald til hvaða lífeyrissjóðs iðgjöld skyldu greidd yrði það ágreiningsmál. Ákvæði laga um starfskjör launþega voru ekki talin ógilda ákvæði í lögum um einstaka lífeyrissjóði er takmörkuðu sjóðsaðild við ákveðinn aldur eða ráðningarkjör. Það kom strax í ljós er framkvæma átti lögin um starfskjör launþega að margir launþegar áttu ekki sjálfsagðan aðgang að lífeyrissjóði. Sem úrskurðaraðila var fjmrn. vandi á höndum og hvarf það að því ráði, að höfðu samráði við Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, að stofna sérstakan lífeyrissjóð fyrir þá er ekki áttu lögskylda eða samningsbundna aðild að öðrum lífeyrissjóðum. Fékk sjóður þessi nafnið Biðreikningur lífeyrissjóðsiðgjalda. Var sjóðnum sett reglugerð sem í flestum atriðum var samhljóða reglugerðum sjóða innan Sambands almennra lífeyrissjóða.

Fyrstu árin, sem biðreikningurinn starfaði, voru sjóðsaðilar nær eingöngu úr röðum lausráðinna starfsmanna ríkisins. Á undanförnum árum hafa hins vegar margir tengst sjóðnum er starfa hjá öðrum en ríkinu og má þá sérstaklega nefna ýmsa er stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi.

Með tilkomu laga um skyldutryggingu lífeyrisréttinda bætast fjölmargir menn, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, í hóp þeirra sem skyldir eru að greiða lífeyrissjóðsiðgjöld. Ljóst er að margir þessara manna eiga ekki rétt til aðildar að neinum ákveðnum sjóði. Þannig er og farið um ýmsa launþega er stunda svo sérhæfð störf að þeir hafa til þessa ekki tengst verkalýðsfélagi eða sjóðum á þess vegum. Nú eru tímamót og þykir því rétt að lögbinda sjóð er taki við af Biðreikningi lífeyrissjóðsiðgjalda og verði samastaður þeirra sem ekki eiga lögskylda eða samningsbundna aðild að öðrum sjóðum. Stjórn hins nýja sjóðs — Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda — verði að verulegu leyti í höndum lífeyrissjóða og þannig reynt að tryggja að hinn nýi sjóður starfi í sem bestu samræmi við aðra lífeyrissjóði í landinu.

Að loknum þeim áfanga, er nást mun í lífeyrismálum með samþykkt þeirra þriggja frv. sem ég hef nú nefnt og liggja fyrir Alþ., bæði Ed. og Nd., er nauðsynlegt að unnið verði að setningu heildarlöggjafar um lífeyrissjóði. Það er von mín að unnt verði að fjalla um frv. að slíkum heildarlögum um lífeyrissjóði á næsta Alþingi.

Herra forseti. Ég legg til að frv. því, sem ég hef hér mælt fyrir, verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.