13.05.1980
Sameinað þing: 56. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2563 í B-deild Alþingistíðinda. (2529)
158. mál, nýting lifrar og hrogna
Fyrirspyrjandi (Sigurlaug Bjarnadóttir):
Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram svo hljóðandi fsp. til sjútvrh. á þskj. 336:
„Hvað líður framkvæmd þál. frá 1977 um könnun á því, hvernig koma megi við fullnýtingu lifrar og hrogna úr fiskafla landsmanna?“
Á sínum tíma var þál. samþ. á Alþ., 15. mars 1977, og hljóðaði þannig, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj., að hún hlutist til um að gerð verði hið fyrsta könnun á því, hvernig koma megi við fullnýtingu lifrar og hrogna úr fiskafla landsmanna.“
Að flutningi þessarar till. stóðu á sínum tíma sú er hér talar og Jón heitinn Árnason á Akranesi, sem sýndi þessum málum jafnan mikinn áhuga.
Ég vil — með leyfi forseta — vitna í grg. með till., en þar segir m. a., með leyfi forseta:
„Vísindamenn okkar á sviði fiskirannsókna og stjórnvöld eru því á einu máli um að nauðsyn beri til að beina sókninni meir að nýjum fisktegundum og draga þannig úr áframhaldandi ofveiði þorsksins. Jafnframt verður það æ ljósara, að okkur ber í senn efnahagsleg nauðsyn og siðferðileg skylda til að nýta öll verðmæti sjávaraflans svo vel sem kostur er, en í því tilliti er því miður víða pottur brotinn.“
Það kemur fram í grg. þessarar till., að árið áður, á árinu 1976, var áætlað að hent væri lifur úr fiskafla Íslendinga fyrir verðmæti sem næmu 250 millj. kr. Nú er áætlað að hér sé ekki um að tefla 250 millj., heldur næstum því 1 milljarð. Þetta er ljót saga og þess vegna er það að vonum að spurt sé um hvort stjórnvöld hafi staðið við það, sem heitið var á Alþ. með samþykkt þessarar till., að leita leiða til að örva sjómenn sérstaklega til að hirða lifrina og færa hana að landi þannig að hún gæti orðið fullnýtt.
Það hefur margt orðið til þess að sú óheillaþróun hefur átt sér stað að hætt var að hirða lifur úr þorskinum okkar. Hér áður fyrr var öll lifur hirt á gömlu togurunum, en með tilkomu skuttogaraflotans er það hverfandi lítið sem hirt er. Það munu nú vera örfáir togarar, að ég hygg, þar sem lifrin er hirt. Það er ýmislegt sem skýrir þessa tregðu sjómannanna. Mjög erfitt er að færa lifrina ferska til lands. Hún er viðkvæmt hráefni. Þó hafa verið fundin upp tæki til að koma með hana það ferska að landi að nýta mætti hana til vinnslu.
Á sama tíma og við fleygjum lifrinni okkar í sjóinn fer eftirspurn á erlendum mörkuðum stöðugt vaxandi og það eru fjölmargir ónýttir möguleikar, ekki aðeins í lýsisbræðslu, heldur einnig í lýsisherslu, sem á síðustu árum hefur þótt mjög vænleg atvinnugrein ef lifrarhirðingunni væri sinnt. Lifrarverð hefur stórhækkað upp á síðkastið. Það hækkaði um hvorki meira né minna en 73% á s. 1. ári, úr 44 kr. í 76 kr.
Þeir, sem hafa verið að basla við nýtingu lifrar, og þar má fyrst og fremst til nefna verksmiðju Haralds Böðvarssonar á Akranesi, standa uppi ráðalausir vegna hráefnisskorts. Pétur Pétursson forstjóri Lýsis hf. segir í blaðaviðtali, að við látum hér stóra möguleika ónýtta. Hann bendir m. a. á loðnulýsi, en nú er loðnulýsi yfirleitt flutt út óunnið. Með lýsisherslu, sem ég drap á áðan, væri hægt að auka verðmæti loðnulifrarinnar stórkostlega. Hann segir hér, með leyfi forseta, — hér vitna ég í ágætt sérrrit Þjóðviljans í marsmánuði s. l. um fiskvinnslu, en þar segir Pétur Pétursson, með leyfi forseta:
„Sé gert ráð fyrir, að 25 þús. tonn af því loðnulýsi, sem nú er selt óunnið út, væri hert og síðan selt út, fengjust fyrir það um 5 milljarðar kr. Fyrir lýsið óunnið fást aðeins tæplega 3.2 milljarðar. Verð á hertu lýsi á síðasta ári var um 200 kr. fob-verð, en á óunnu loðnulýsi 127 kr. Útlendingar, að sögn þessara manna, sem eru að fást við útflutning og vinnslu þessara sjávarverðmæta, segja að útlendingar, kaupendur lýsisafurða, séu hissa á því hve standi á þessari hráefnisöflun Íslendinga, sem þó ættu sem ein mesta fiskveiðiþjóð heimsins að hafa aðstæður og áhuga til þess að sinna þessu meir.“
Ég vona að hæstv. sjútvrh. gefi okkur svör sem gefi tilefni til bjartsýni.