13.05.1980
Sameinað þing: 56. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2568 í B-deild Alþingistíðinda. (2534)
151. mál, Olíumöl
Fyrirspyrjandi (Vilmundur Gylfason):
Herra forseti. Á þskj. 322 hef ég leyft mér að bera fram fsp. til fjmrh., sem heitir: um ríkissjóð og fyrirtækið Olíumöl. Með leyfi hæstv. forseta er fsp. svo hljóðandi:
„Hvernig hyggst hæstv. fjmrh. framfylgja samþykkt meiri hl. Alþingis frá því við 3. umr. fjárlaga varðandi fyrirtækið Olíumöl?
Nú er því við þessa fsp. að bæta, að í þingflokki Alþfl. höfum við fengið upplýsingar um það eftir að fsp. var fram borin, að hinn 10. apríl s. 1. hefði hæstv. fjmrh. skrifað fjvn. bréf þar sem segir, með leyfi forseta:
„Samkv. ákvæðum í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1980, lið 3.7, er fjmrh. heimilt að breyta kröfum ríkissjóðs á hendur Olíumöl hf. í hlutafé að fengnu samþykki fjvn. Alþingis. Hér með er óskað samþykkis fjvn. á því að ofangreind heimild verði notuð.“
Í þessu ívitnaða bréfi sýnist raunar hæstv. fjmrh. hafa þegar gert upp hug sinn um að fara fram á það við fjvn. að hún veiti umbeðið leyfi.
Ég er raunar á því, að við 3. umr. fjárlaga hafi Alþ. gert afar skrýtna samþykkt þegar valdið til að fjalla um þetta mál var framselt meiri hl. fjvn., sem kann að telja fimm menn, svo og fjmrh., eða sex mönnum alls. Það er alrangt, sem fram hefur komið um þetta, að málið snúist einvörðungu um þær 300 millj. sem nema vangoldnum söluskatti og að breyta þeim vangoldna söluskatti í hlutabréfakaup ríkisins. Það hefur verið upplýst að tap þessa fyrirtækis muni nema u. þ. b. 2 milljörðum kr. eða jafnvel rétt rúmlega það, og það er alveg augljóst að ef ríkisvaldið fer að setja puttana í þennan vonda rekstur, í þennan taprekstur, er verið að leggja á herðar skattgreiðenda upphæðir sem væntanlega munu fara nærri 2 milljörðum kr. Verður raunar ekki séð hvaða tilgangi slík tilfæring þjónar.
Vegna þess að hér hefur verið lesið bréf, sem ég vissi ekki um fyrr en eftir að fsp. var borin fram, þar sem ljóst er að hæstv. fjmrh. sem slíkur hefur þegar gert upp sinn hug, væri raunar æskilegt að talsmenn þingflokkanna segðu hug sinn í þessu máli: Getur verið að hin vanhugsaða samþykkt Alþ. verði til þess að 2 milljarðar kr. eða því sem næst verði færðir inn í þennan taprekstur? Það eru falskar forsendur, sem gefnar hafa verið í umræðum um þetta mál, að verði þetta ekki gert muni það hægja á framkvæmdum t. d. víða úti um land í sumar. Það er ekkert í þessu máli sem slíkt þarf að hafa í för með sér, ég held að hér sé um fullkomna rökleysu að ræða, heldur er hér verið að halda áfram þeim vonda sið, sem því miður hefur um of verið einkennandi á hagkerfi okkar, að þjóðnýta tapið, að taka illa rekið tapfyrirtæki, þar sem jafnvel margir af hefðarmönnum þjóðarinnar standa framarlega, og velta því tapi yfir á skattgreiðendur. Ég hef raunar neitað að trúa því fyrr en ég heyri það af munni hæstv. fjmrh. sjálfs að hann sé búinn að taka á sínar herðar ábyrgðina, sem hann sannarlega hefur vald til eftir samþykkt Alþ., að hann fyrir sína parta ætli að ganga þessu samtryggingarkerfi á hönd, svo sem nú kann að standa fyrir dyrum.
Það er svo annar handleggur þessa máls og alveg furðulegt að stjórnmálaflokkur einkaframtaksins í landinu skuli taka þátt í því að vilja — sem mér skilst að sé — þjóðnýta þetta tap með þeim hætti sem hér er verið að leggja til.
En sem sagt, herra forseti, fsp. er til hæstv. fjmrh. og svo sem hún kemur fram á þskj. 322.