21.12.1979
Neðri deild: 11. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í B-deild Alþingistíðinda. (255)

49. mál, almannatryggingar

Fjmrh. (Sighvatur Björgvinsson):

Hæstv. forseti. Eins og kunnugt er er stefnt að því að þing komi saman aftur 8. jan., m.a. til þess að ljúka umfjöllun um tvö frv. varðandi skattamál sem fyrir hafa verið lögð í deildum þingsins, frv. um tekjuskatt og frv. varðandi útsvör o.fl. Svo háttar til með þetta mál að því þyrfti að breyta ef samþ. yrði það frv. um tekjustofna sveitarfélaga sem hér er til meðferðar. Ég sé því ekki ástæðu til að afgreiða nú það mál sem hér er til meðferðar, tel eðlilegast að það yrði athugað jafnhliða því sem gengið yrði til þess verks strax eftir áramótin að fjalla um þau tvö frv. sem ég nefndi áðan. Ég óska því eftir að sú n., sem með málið hefur að gera heilbr.- og trn. þessarar hv. d., búi sig undir að vinna að því fljótlega eftir nýárið að samræma frv., sem hér er til umr., afgreiðslu frv. um tekjustofna sveitarfélaga sem er til meðferðar á hinu háa Alþingi. Ég tel ekki ástæðu til að þetta mál gangi til atkvgr. við 3. umr. fyrir jól.