13.05.1980
Sameinað þing: 57. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2589 í B-deild Alþingistíðinda. (2560)

164. mál, vegáætlun 1979-1982

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. neitt að ráði. Ég vil byrja með því að þakka hv. fjvn. fyrir afgreiðslu málsins, það var afgreitt skjótt og ég hef engar athugasemdir við till. hennar að gera.

Ég vil geta þess, að í nál. kemur fram sem fskj. sú samhljóða samþykkt þm. Vestfjarða að óska eftir þeirri breytingu á vegáætlun, að í staðinn fyrir „tenging Inn-Djúps“, sem þar er skráð sem sérstakt verkefni á árinu 1982, verði sett: vegur yfir Steingrímsfjarðarheiði. N. hefur ekki séð ástæðu til að taka þetta inn nú, þar sem ekki er um reglulega endurskoðun á vegáætlun að ræða, og ég geri út af fyrir sig ekki athugasemd við það. Ég vil hins vegar láta það koma fram, að ég lít svo á, þar sem þetta kemur fram í grg. meiri hl. n. að ekki sé þar andstaða gegn þessari samþykkt þm. Vestfjarðakjördæmis, og mun ég leggja áherslu á að mælingar og annar undirbúningur fyrir þessa framkvæmd hefjist nú þegar í sumar. — Þetta vildi ég láta koma fram og vil taka það fram, að þetta er gert í samráði við þm. Vestfjarðakjördæmis. Hér hefur frsm. minni hl., hv. þm. Lárus Jónsson, farið með margar tölur og ætla ég ekki að vefengja þær. Þær eru eflaust réttar. En það er eins og fyrri daginn, að það er oft auðvelt að leika sér að tölum eftir því hvaða grundvöllur er lagður til samanburðar, og ekki að ástæðulausu kannske að hinn almenni hlustandi er meira og minna ruglaður á slíkum málflutningi. T. d. mætti geta þess, að í þeirri vegáætlun, sem nú gildir, er ákveðin krónutala til framkvæmda. M. ö. o.: Í þál. er ekki ákveðið fyrir fram að krónutalan skuli hækka með tilliti til verðbólgu. Þar er það krónutala sem er samþykkt.

Hinu er svo ekki að neita, að undanfarin mörg ár, líklega allt frá 1974, hafa menn ekki treyst sér til að standa við þær framkvæmdir eins og sundurliðaðar hafa verið í vegáætlun með tilliti til þess verðbólgustigs sem í fyrsta lagi var gert ráð fyrir og síðar varð. Það er sem sagt á þeim lið vegáætlunar sem orðið hefur að draga saman vegna þess að fjárþörf hefur á ári hverju undanfarin ár reynst verulega meiri en vegáætlun hefur gert ráð fyrir.

Ég sagði áðan, að ég hygg að vegáætlun hafi verið endurskoðuð árlega frá 1974 og þá verið óreglulegar endurskoðanir, ef ég má kalla það svo, nema annað hvert ár, þegar vegalög gera ráð fyrir reglulegri endurskoðun. Og þó að hv. frsm. minni hl. sé ekki hér inni þykir mér ástæða til að geta þess, hvernig breytingar hafa orðið á framkvæmdum samkv. vegáætlun t. d. frá árinu 1970. Reiknað allt á verði ársins 1979 varð veruleg aukning eða um það bil um 50% frá 1970–71, frá 1971–1972 12% aukning, 1972–1973 aftur 12% aukning, 1973–1974 var samdráttur um 8% í heildarfjármagni til vegaframkvæmda, frá 1974–1975 um 19% samdráttur, 1975–1976 um 5%, 1976–1977 enn samdráttur um 5.5% og 1977-1978 nokkur aukning eða um 6%, stóð síðan nokkurn veginn í stað til 1979, þó lítill samdráttur, um 2%, og nú er aukning á raungildi þess fjármagns, sem varið er til vegaframkvæmda, um 22%. Það er, eins og hér hefur komið fram, minna en menn gerðu ráð fyrir, enda reiknað með 25% verðbólgu, en ekki 50%. Ég tel að sú till. til vegáætlunar, sem hér hefur verið lögð fram, sé viðunandi með tilliti til þó þessarar aukningar um 22%, miðað við það ástand sem er í verðlagsmálum. Ég er út af fyrir sig ekki undrandi á því þó að að raungildi sé upphæðin nú svipuð meðaltali undanfarinna fimm ára. Eins og ég rakti áður hefur nánast á hverju ári orðið verulegur samdráttur í vegaframkvæmdum. Það er fyrst nú að við erum þó að halda á brautina upp hallann, þ. e. vonandi í áttina að áframhaldandi meiri framkvæmdum.

Ég gæti líka farið með svipaðan samanburð á fjármagni til nýbyggingar vega. Staðreyndin er að þar varð veruleg aukning frá 1970–1971 og síðan nokkur til 1973, en frá 1973 hefur verið samfelldur og stöðugur samdráttur allt til ársins í ár. Nú er gert ráð fyrir að verði 50% aukning og rúmlega það á raungildi fjármagns til nýrra vega, brúa og fjallvega. Það er að mínu mati alls ekki lítið stökk og ekki stökk sem ber að vanmeta.

Það er eins og ég sagði áðan, að allur er þessi leikur með tölur nokkuð ruglingslegur. Og ég vil taka undir það með mönnum, m. a. hv. frsm., sem lagði áherslu á að auka þarf fjármagn til vegaframkvæmda. Ég er honum og öðrum sem um það hafa rætt fullkomlega sammála. Að því verður stefnt. Sú vegáætlun, sem samþ. var í fyrra, gerir ráð fyrir því og er ekki nein breyting á að þessu leyti með því sem nú er gert, þó dregið sé úr í ár. Ég vil einnig taka undir það, að mjög stórt átak þarf að gera í bundnu slitlagi. Á því er ekki nokkur vafi. En ég fór við fyrri umr. með tölur sem sýndu flokkun vega í viðunandi vegi o. s. frv. í fjóra flokka. Þar kom fram að ákaflega stór hluti af vegakerfi okkar telst slæmur og alls kostar óviðunandi. Og menn mega ekki, um leið og áhersla er lögð á bundið slitlag, gleyma á sama tíma þessum vegum. Þar er um gífurlega stórt átak að ræða, sem kannske ekki eins stór hluti landsmanna nýtur, en sannarlega á það fólk rétt á vegabótum ekki síður en við sem þéttbýlið byggjum. Hugmynd mín er því sú, að þegar næsta endurskoðun vegáætlunar fer fram verði lögð fram áætlun um verulega aukið framlag til aukinna framkvæmda í bundnu slitlagi. Ég rakti að nokkrir vegaspottar eru undir það sæmilega tilbúnir. Þó þarf að gera mikið til að tengja þá betur saman. Þeir eru slitnir í sundur um landið allt. Það verður tekið inn í slíka áætlun. Og ég lýsti því jafnframt, að á vegum Vegagerðar ríkisins hefur verið unnið mjög mikið starf að flokkum vega landsins, þannig að unnt er að gera sér betri og heillegri grein fyrir því, hvað er nauðsynlegt á hverjum einstökum stað. Þannig vona ég að allur grundvöllur til góðrar áætlunargerðar verði betri.

Eins og ég sagði áðan ætla ég ekki að lengja þessar umr. umfram þessi fáu orð mín. Ég vil ljúka máli mínu með því að endurtaka þakkir til fjvn. og leggja á það enn mjög ríka áherslu að áfram verði haldið á þeirri braut að auka fjármagn til vegaframkvæmda, og að því er stefnt að meira af fjármagni, sem nú er innheimt af bensíni t. d., verði látið renna í vegaframkvæmdir. Og ég lýsi því aftur yfir, að á næsta vetri mun verða lögð fram till. um endurskoðun vegáætlunar og stórauknar framkvæmdir m. a. í bundnu slitlagi.