13.05.1980
Sameinað þing: 57. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2591 í B-deild Alþingistíðinda. (2561)

164. mál, vegáætlun 1979-1982

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Ég ætla ekki að tala hér langt mál um vegáætlun. Frsm. meiri og minni hl. fjvn. hafa þegar gert það vel og ítarlega. Það er sjálfsagt rétt, að það má hér sem annars staðar í slíkum málum leika sér nokkuð með tölur eftir því hvað hverjum talsmanni hentar hverju sinni. Ég held að það verði þó ekki hrakið, sem kom mög greinilega fram há hv. þm. Lárusi Jónssyni, frsm. minni hl., að það veldur landsmönnum öllum, sem langeygir eru orðnir eftir raunverulegu átaki í vegamálum, miklum vonbrigðum hve freklega ríkissjóður hefur gengið á hlut Vegasjóðs. Þar á ég að sjálfsögðu fyrst og fremst við hina gegndarlausu skattheimtu af bensíni. Það er heldur dapurlegt að af þessari 10 milljarða kr. auknu skattheimtu skuli vegagerð í landinu ekki fá að njóta einnar krónu í auknum framkvæmdum.

En ég kom aðallega upp í ræðustól af því að mér finnst sem þm. Vestf. að mér beri skylda til að gera grein fyrir í örstuttu máli þeirri ályktun Vestfjarðaþingmanna sem prentað er á fskj. með meirihluta áliti fjvn. Ég missti því miður af upphafi máls hæstv. samgrh., sem ég geri ráð fyrir að hafi e. t. v. haft að segja eitthvað svipað og ég um þessa ákvörðun Vestfjarðaþingmanna. Fyrir þá sem ekki þekkja til þessara mála, er kannske rétt að geta þess, að tenging Inn-Djúps við aðalvegakerfi landsins er búin að vera lengi á döfinni. Þar hefur á undanförnum árum aðallega verið rætt um þrjá valkosti. Tengingu yfir Kollafjarðarheiði í Kollafjörð í Barðastrandarsýslu, yfir Þorskafjarðarheiði eða Þorgeirsdal og í þriðja lagi Steingrímsfjarðarheiði. Við þm. Vestf. höfum nú lýst því yfir, að við teljum að rétt sé að velja veginn yfir Steingrímsfjarðarheiði niður í Steingrímsfjörð og tengja þannig Strandasýslu öðrum byggðum Vestfjarða um leið og Vestfirðirnir sem heild tengjast aðalvegakerfi landsins. Það er vitað mál, að hvaða leið af þessum þremur valkostum sem hefði verið valin hefði lokaákvörðun valdið stórum hópi Vestfirðinga vonbrigðum og sárindum, svo heitt mál og viðkvæmt sem þetta hefur verið hjá heimamönnum. Ég hygg þó að mjög eindregnar viljayfirlýsingar og fjöldamargar áskoranir frá stærstu þéttbýlisstöðum kjördæmisins á norðanverðum Vestförðum gefi ótvíræða vísbendingu um að þessi ákvörðun nýtur meirihlutafylgis á Vestfjörðum. Þetta mál er búið að velkjast allt of lengi í meðförum Alþingis, Vestfjarðaþingmanna og embættismanna. Nú hefur loksins verið höggvið á hnútinn og ákvörðun tekin af hálfu þm. viðkomandi kjördæmis, Vestfjarða, og ég tel það í sjálfu sér mikið fagnaðarefni.

Í mínum huga vegur það mjög þungt á metunum að tengja Strandasýslu öðrum byggðum Vestfjarða. Strandamenn hafa allt of lengi verið algerlega afskornir, bæði atvinnulega og félagslega, frá öðrum byggðarlögum kjördæmisins. Óneitanlega kemur nokkuð einkennilega fyrir staðhæfing, sem kemur fram í nýútkominni grg. Vegagerðar ríkisins sem unnin var af umdæmisverkfræðingi Vegagerðarinnar á Ísafirði, en grg. fjallaði um tengingu Inn-Djúps. Þar er staðhæft að Strandamenn eigi ekki mikilla hagsmuna að gæta varðandi vegasamband við Djúp um Steingrímsfjarðarheiði, þeir geti fullt eins vel hér eftir sem hingað til hallað sér að Borgarnesi og jafnvel Reykjavík. Að mínu áliti felst í þessu mikill misskilningur og gengur örugglega alveg þvert á skoðun og vilja fólksins í Strandasýslu. Fólkið í Strandasýslunni á lítið erindi til Borgarness og því síður til Reykjavíkur til að rækja ýmis félagsleg tengsl við aðra Vestfirðinga. Ég get í því sambandi t. d. minnt á fundi Fjórðungssambands Vestfirðinga, á fundi kjördæmissamtaka stjórnmálaflokkanna sem þurfa að vera með reglulegu millibili, og svo auðvitað hvers konar félagsleg samskipti, menningarleg og ekki síst atvinnuleg. (Gripið fram í: Hafa þeir eitthvað að sækja til Ísfirðinga í því?) Hv. þm. er kannske ekki kunnugt um að Ísafjörður er í Vestfjarðakjördæmi, en Borgarnes í Vesturlandskjördæmi og Reykjavík er sérstakt kjördæmi. Vegalengdirnar þarf ég ekki að ræða um. (Gripið fram í: Strandamenn í Strandasýslu.) Þeir í Strandasýslu tilheyra Vestfjarðakjördæmi.

Það er sannarlega mál til þess komið að einangrun Strandamanna linni. Mér er það satt að segja undrunarefni að þessi litli spotti yfir Steingrímsfjarðarheiði skuli ekki fyrir löngu hafa verið fullgerður. Það er vitað mál að það eru íbúar Barðastrandarsýslu sem öndverðastir eru þeirri leið að farið verði um Steingrímsfjarðarheiðina. Ég vil benda á það alveg sérstaklega, að í yfirlýsingu okkar Vestfjarðaþingmanna er lögð áhersla á að ekki verði í neinu dregið úr þeim vegaframkvæmdum sem þegar eru á vegáætlun og koma Barðstrendingum sérstaklega til góða. Þessar framkvæmdir, við einn erfiðasta tálmann á Hjallahálsi, eru þegar hafnar. Í sumar verða veittar til hans samkv. till. til vegáætlunar 140 millj. kr. Þar eru fleiri torfærur sem verður unnið að á næstu árum af fullum krafti samkv. ákvörðun sem þegar hefur verið tekin. Ég vil sérstaklega benda þar á eina litla sveit sem ég hygg að eigi hvað mest í vök að verjast kannske á öllu Íslandi byggðarlega og það er Gufudalssveitin, sem eðlilega hefði þótt mikill fengur að því að aðaltengivegurinn lægi þar um. En ég hygg að þær vegaframkvæmdir, sem eru á döfinni nú í Barðastrandarsýslu, muni létta að miklu leyti þeim feiknalegu erfiðleikum sem þessi fámenna sveit á við að búa, sérstaklega að vetrinum.

Mér hefur alltaf þótt það einsýnt mál að tenging Inn-Djúps hlyti að skoðast sem sérstakt verkefni sem hluti af svokölluðum hringvegi, því varla telst hringurinn farinn kringum Ísland ef Vestfirðir eru ekki með. Ég man raunar að hv. þm. Suðurl., Garðar Sigurðsson, lét einhvern tíma svo um mælt um Vestfirði, að þetta væri óþarfa slaufa á landinu sem þyrfti helst að klippa af. En ég held að það hafi verið sagt meira í gamni en alvöru og ég veit að hv. þm. vill gera það sem hann telur best og réttast í þessum málum. (Gripið fram í: Þetta er slæmt rangminni hjá þm.)

Ég fagna því að að því er virðist er þetta sjónarmið nú loksins viðurkennt og komið á blað. Og ég held að þm. Vestfjarða hljóti að ganga eftir því að þessi framkvæmd við tengingu Vestfjarða með skaplegum vegi við aðalvegakerfið verði ekki til þess að þrengja um of og þrengja yfirleitt nokkuð að öðrum almennum vegaframkvæmdum í kjördæminu.

Það er á till. til vegáætlunar nú og raunar á upphaflegri vegáætlun fyrir 1979–1982 gert ráð fyrir að framkvæmdin við þessa tengingu verði hafin á árinu 1982. Ég held að það sé í rauninni sjálfsagt mál að bíða ekki í tvö ár til viðbótar, svo lengi sem Vestfirðingar eru búnir að bíða veglausir eftir því að komast í almennilegt vegasamband við aðalþjóðvegi landsins. Og mér skilst að hæstv. samgrh. hafi látið þess getið í máli sínu að reynt yrði að færa þessa framkvæmd fram. (Sjútvrh.: Nei, svo er ekki.) Það vona ég a. m. k. að hann hefði sagt. (Gripið fram í.) Þó að framkvæmdir yrðu ekki hafnar af fullum krafti yrði a. m. k. hafinn undirbúningur og lokið þeim rannsóknum sem til þarf þegar á næsta ári til að flýta fyrir því að framkvæmdin sjálf komist í fullan gang.

Ég þarf ekki að hafa um þetta fleiri orð. Ég fagna því, eins og ég sagði, að þessi ákvörðun er nú loksins tekin. Og ég veit af viðtölum mínum við fjölda þm. og fólk utan þingsala, að það þykir almennt hafa dregist ótrúlega lengi að þessi ónýta vegatenging á milli Vestfjarða og aðalvegakerfis landsins væri aflögð og aðalvegakerfis landsins væri aflögð og gerður mannsæmandi vegur.