13.05.1980
Neðri deild: 75. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2603 í B-deild Alþingistíðinda. (2581)
94. mál, sjómannalög
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég ætla ekki að ræða mikið efnislega það sem hér er til umr., en ég vil þó segja að ég fagna því að sjálfsögðu að hér er lagt til að hætt verði að fara í manngreinarálit í sambandi við tryggingaleg atriði um borð í fiskiskipum. Hitt et svo annað mál, sem menn velta að sjálfsögðu fyrir sér, að með lögfestingu á tveggja mánaða staðgengisreglunni er verið að ganga lengra en t. d. almennt verkafólk í landinu hefur samið um. Ég er ekki að mæla gegn þessu. Ég held að þetta hljóti að verða hvatning og fordæmi sem löggjafinn muni fylgja eftir með því að réttur verkafólks almennt verði sami og hér er um rætt. Það er óeðlilegt að gera upp á milli einstakra þjóðfélagsþegna og stétta. Hér hlýtur því að vera skapað fordæmi og almennt verkafólk í landi hlýtur af löggjafans hálfu að fá sama rétt og hér er verið að tala um. Það getur vart hjá því farið.
Það var ekki ætlan mín að ræða efnislega um þetta mál. Ég kem fyrst og fremst hér upp til að spyrja hæstv. samgrh. (Gripið fram í: Sjútvrh.) Þetta heyrir að ég best veit undir samgrh. Er það ekki? (Gripið fram í: Jú, það er rétt.) Mig langar að spyrja hæstv. samgrh. hvort frv. sjálft á þskj. 143 og brtt. frá samgn. á þskj. 468 innihaldi þau loforð sem hæstv. samgrh. og sjútvrh. hefur gefið sjómannasamtökunum, m. a. eins og látið hefur verið í skína að hann hafi gert að því er varðar samningamál á Vestfjörðum. Spurning mín til hæstv. ráðh. er sú: Er hann hér að efna að fullu þau loforð sem hann gaf sjómannasamtökunum í sambandi við þessi mál og áður hafa verið gefin? Ég æski þess að hæstv. ráðh. svari þessu alveg hreint. Að öðru leyti ætla ég ekki — að sinni a. m. k. — að hafa fleiri orð um málið.