13.05.1980
Neðri deild: 75. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2606 í B-deild Alþingistíðinda. (2585)
94. mál, sjómannalög
Magnús H. Magnússon:
Herra forseti. Nei, ég held að við skömmumst okkar ekki fyrir að borða fisk í Vestmannaeyjum. Það vantar mikið á.
Hv. síðasti ræðumaður sagði að það væri verið að tala um mismunandi langan tíma í veikindum. Það er ekki um það sem málið snýst, heldur hitt, hvort eigi að borga mismunandi lengi eftir staðgengisreglu.
Hv. 2. þm. Suðurl. taldi að allir hefðu verið ásáttir um þetta frv. Ekki passar það nú alveg. Sjómenn vildu fá meira, og útgerðarmenn vildu ekki ganga svona langt. Hitt er annað mál, að það var búið að gera eins mikið og hægt var til að ná samstöðu. Það var búið að nota mikinn tíma í það og vantaði ekki mikið á að sú samstaða næðist.
Undirbúningur þessa frv. var að mínu mati mjög vandaður. Það var haft samband við fjölda aðila og suma margoft og reynt var að sameina sem flest sjónarmið til að freista þess að málið fengi greiðan gang í gegnum hið háa Alþingi.
Ég get sjálfur mjög vel fallist á flestar brtt. hv. samgn. sem hér liggja fyrir. Flestar, segi ég, en ég er svolítið þenkjandi út af tveimur þeirra. Það er í fyrsta lagi staðgengisreglan. Ég tek þá undir það, sem hv. 6. landsk. þm. sagði, að ef við ætlum að samþykkja staðgengisregluna fyrir sjómenn í tvo mánuði hlýtur að leiða af sjálfu sér að sú regla kemur einnig fyrir allt landverkafólk. Aftur á móti tel ég að staðgengisreglan sé ekki rétt regla og það beri að hafa fleiri mánuðina, en ekki eftir staðgengisreglu, fjölga fremur mánuðunum mjög verulega, en láta staðgengisregluna sem slíka eiga sig.
Nú er það þannig, af því að við erum að tala um misskiptin, að yfirmennirnir hafa staðgengisregluna og hún verkar þannig, að ef skipstjóri verður veikur á togbát t. d. í Vestmannaeyjum er bátnum lagt. Það er ekkert annað hægt að gera því að útgerðin þolir ekki að greiða tvo skipstjórahluti. Það má segja að gallinn sé kominn af því að skipstjórarnir hafa þetta. Aftur á móti hafa undirmennirnir, hásetarnir á þessum sama bát, ekki nema tvo daga eftir staðgengisreglu og tólf samkv. kauptryggingu, þannig að þeir hafa raunverulega ekki nú nema hálfan mánuð. Þessi mismunun milli undir- og yfirmanna er í samningum og hún er líka í gömlu sjómannalögunum þótt merkilegt sé. Ég er mjög ánægður með þá till. n. að það falli niður. Ef menn eru sammála þessu og ef menn eru sammála því að þessi réttarbót nái til landverkafólksins líka er auðvitað ekki nema gott um það að segja.
Hitt atriðið, sem ég er svolítið hræddur við, er hvað á að gera milli veiðitímabila. Hæstv. samgrh. kom vel inn á það. Það, sem skeður, er einfaldlega það, eins og á flugvélunum, að mönnum er sagt upp sama daginn og þeir eru ráðnir þannig að það verða stanslausar uppsagnir og ráðningar í gangi allan tímann ef vitað er um hvenær veiðitímabili lýkur. Það var líka talað heilmikið um veiðistöðvarnar sem kæmu snögglega fyrir tilverknað opinberra aðila, en það mál var leyst þannig að lögum um Aflatryggingasjóð var breytt þannig að hann kemur inn í þá mynd. Hugsanlega gæti hann komið inn í þá mynd líka, sem við erum hér að tala um, en það er ekki sérstaklega gengið út frá því í þessu frv.
Ég vek athygli á því, að lagafrv., sem við erum að tala um núna, geymir að sjálfsögðu í sér lágmarksfyrirmæli, lágmarksatriði. Það er enginn sem bannar einum eða neinum að semja um betri kjör.
Að lokum vil ég svo taka undir með hæstv. samgrh. að ég vonast til þess að þetta frv. verði að lögum á þessu þingi.