14.05.1980
Efri deild: 87. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2621 í B-deild Alþingistíðinda. (2610)
120. mál, tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir
Frsm. (Karl Steinar Guðnason):
Herra forseti. Ég vil geta þess í tilefni af því að menn vilja skoða málið frekar, að frv. hefur verið grandskoðað og ef við frestuðum því nú eða létum það bíða er hætta á að afgreiðsla þess drægist í eitt ár í viðbót. Það kom fram í máli formanns Landssambands iðnaðarmanna að fram undan væri að gera námsskrá sem síðan yrði athuguð af menntmrh. Mundi menntmrh. gera sérstaka athugun á því hvernig menntunarmálum skyldi hagað og yrðu fjárveitingar ætlaðar til þess þegar tími væri til þess kominn. Það væri hefð, þegar svona væri farið að málum eða nýjar iðngreinar yrðu til, að stofnað væri til tilraunakennslu eða annars slíks. Gátum við nm. því ekki séð annað en að vel væri fyrir því séð að tannsmiðir fengju þá menntun sem þeir þurfa að fá.