14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2671 í B-deild Alþingistíðinda. (2639)
Umræður utan dagskrár
Guðmundur G. Þórarinsson:
Herra forseti. Það er fyllilega eðlilegt að þetta mál komi hér til umr. á Alþ., svo gífurlegt hagsmunamál sem hér er um að ræða fyrir alla Reykvíkinga. En eins og menn vita er Hitaveita Reykjavíkur eitthvert besta og mikilvægasta fyrirtæki í Reykjavík og þar með raunar á landinu öllu. Ég skal virða orð forseta um það að lengja ekki mikið þessar umr. utan dagskrár, en mig langar þó að fara um þetta mál nokkrum orðum.
Ég vil þá fyrst segja það, að ég styð fyllilega stefnu ríkisstj. í niðurtalningu verðbólgunnar, og ég tel raunar að vandfundin sé önnur leið til þess að ná tökum á verðbólgunni sem vænlegri sé. Ég held að þar sé um skynsamlega aðferð að ræða. En á því er auðvitað enginn vafi, að þar þarf að fara með sérstakri gætni, sérstaklega varðandi byrjunarpunktinn, eins og raunar kemur fram í stefnuyfirlýsingu eða sáttmála ríkisstj. Þar er auðvitað sérstaklega þess að gæta varðandi þennan byrjunarpunkt, hvernig fyrirtækin í Reykjavík standa, og þá sérstaklega með tilliti til þessa margumtalaða vísitölugrundvallar og þess, eins og allir hafa margoft gert að umræðuefni, að vísitölufjölskyldan býr hér í Reykjavík. Þetta hefur þau áhrif að fjölmörgum fyrirtækjum Reykjavíkur er haldið niðri og þau eru illa stödd fjárhagslega. Það er ekki bara Hitaveita Reykjavíkur, heldur Strætisvagnar Reykjavíkur, Rafmagnsveita Reykjavíkur o. s. frv., o. s. frv. Það er öllum ljóst, að það setur þessi fyrirtæki í algera spennitreyju, að hækkun á Hitaveitu Reykjavíkur skuli þurfa að þýða kauphækkun á Patreksfirði, að hækkun á gjaldskrá Strætisvagna Reykjavíkur skuli þurfa að þýða launahækkun á Fáskrúðsfirði o. s, frv., o. s. frv.
Nú skal ég fyrstur manna viðurkenna það, að vísitöluviðmiðun er launþegum nauðsynleg. En ég held að það sé alveg ljóst, að sá ágalli, sem þessi grundvöllur hefur í för með sér fyrir Reykvíkinga, krefst þess að þarna verði úr bætt og breyting á gerð. En menn verða að gera sér grein fyrir því, að þessi grundvöllur er samningsatriði og honum verður ekki einhliða breytt. Þessir ágallar, sem hér eru til umr., hljóta þó að opna enn frekar augu manna fyrir því, að þessum atriðum verður að breyta og það er engum til góðs að hafa þennan grundvöll á þennan veg.
Það hefur greinilega verið freisting fyrir allar ríkisstjórnir að halda niðri gjaldskrá þessara fyrirtækja hér í Reykjavík, og ég hygg að einmitt í þessu máli sé það augljóst, þegar hækkun heimæða er miklu meiri en gjaldskrárinnar sjálfrar og samanborið jafnframt við þær hækkanir sem aðrar hitaveitur hafa fengið. Hitaveita Reykjavíkur er eitthvert mesta þjóðþrifafyrirtæki Íslendinga og hefur getað séð Reykvíkingum fyrir hitun húsa með kostnaði sem hefur legið á bilinu 1/6 til 1/8 af kyndikostnaði með olíu. Það er því algerlega út í hött að fara að halda þessu fyrirtæki sem einhvers konar bónbjargafyrirtæki. Og menn verða að horfa til þeirrar framtíðar, eins og fram hefur komið hér, að ég hygg, í ræðu hv. 10. þm. Reykv., að bara viðbótin hjá Hitaveitu Reykjavíkur á hverju ári nemur sem svarar Keflavík allri.
Forráðamenn Hitaveitunnar hafa sagt það ljóst og leynt, að þeir telji ekki unnt að tengja fleiri hús við fyrirtækið nema meiri hækkanir fáist. Þetta er stórkostlega alvarlegt mál og verður að skoða sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegt það er.
Annað er það, sem menn verða að horfa til varðandi þetta mikla fyrirtæki, Hitaveitu Reykjavíkur, að þekking manna á því, sem fram fer niðri í jörðinni á þessum jarðhitasvæðum, er engan veginn nægjanleg, og það er alveg ljóst, að vatnsniðurdráttur á þessum borunarsvæðum Hitaveitunnar er orðinn það mikill að það er vafasamt að unnt sé að auka hann með þeim dælukosti og þeirri þekkingu sem menn búa yfir. Þess vegna telja forráðamenn Hitaveitunnar að þegar árið 1985 muni þurfa að tengja veituna jarðhitasvæðinu við Nesjavelli. Þar er um gífurlega fjárfestingu að ræða og ef áfram verður búið að Hitaveitu Reykjavíkur svo sem verið hefur, þá verður hún þess algerlega vanmegnug að takast á við það feiknalega verkefni sem þar er um að ræða. Það er gífurlegt atriði fyrir Reykvíkinga alla, að Hitaveitan hér í Reykjavík sé sterkt fyrirtæki, og það kallar á óeðlilegan samanburð við aðra landsmenn um kyndikostnað þegar hennar gjaldskrá er haldið svona niðri. Og ég vil taka undir það sem hv. 6. þm. Reykv. sagði, að þegar menn leggja megináherslu á orkuframkvæmdir vegna þeirrar gífurlegu óvissu sem er fram undan í orkumálum, þá skýtur það auðvitað skökku við að halda helstu innlendu orkuöflunarfyrirtækjunum í svelti að þessu leyti.
Um þetta væri hægt að fara mörgum orðum. Ég ætla ekki að gera það vegna tímaeklu. Ég vil hins vegar sérstaklega benda á það af hálfu okkar Reykvíkinga, að það er ekki bara það að helstu fyrirtækjum okkar er haldið niðri vegna þessa vísitöluspils, heldur er jafnframt ýmislegt annað sem stefnir í þá átt að hér þurfum við sérstakrar athugunar við. Það er ekki langt síðan það kom fram í útvarpsþætti, að ef skoðuð er fólksfjölgun hér í Reykjavík, þá kemur í ljós að fjölgun aldraðra er miklu, miklu meiri en fjölgun íbúa í heild, sem bendir til þess að sú þjónusta, sem Reykvíkingar hafa getað veitt öldruðum, dregur aldrað fólk hér að og eykur enn á kostnað Reykvíkinga við aðbúnað fyrir þá. Í skýrslu, sem nýlega var dreift hér í þinginu, ársskýrslu Framkvæmdastofnunar, kemur í ljós, að meðalbrúttótekjur í Reykjavík fara stöðugt lækkandi miðað við landsmeðaltal og stefnir nánast á að Reykjavík verði láglaunasvæði hér á landinu. Ég óttast að atvinnulíf í Reykjavík sé að verða veikara en á öðrum stöðum á landinu. Allt er þetta sérstakt umhugsunarefni. Það er teflt í tvísýnu ef Hitaveita Reykjavíkur, það ágæta fyrirtæki, þarf að taka erlend lán til þess að komast í gegnum þennan vetur.
Það er rétt, sem hér hefur komið fram, að mildur vetur þýðir minni vatnssölu hjá Hitaveitu Reykjavíkur, sem selur með mælum, og mér er tjáð að þessi mildi vetur muni þýða um einum milljarði minni tekjur hjá Hitaveitu Reykjavíkur á þessu ári vegna þess að vatnssalan er minni.
Ég tel alveg nauðsynlegt að ríkisstj. taki þetta mál, hækkun gjaldskrár Hitaveitu Reykjavíkur, til sérstakrar athugunar í ljósi þess sem hér hefur komið fram hjá þm. Reykjavíkur, og ég tel alveg nauðsynlegt að þm. Reykjavíkur sameinist í því að skoða þessi sameiginlegu hagsmunamál Reykvíkinga og þessar — ég vil segja: síendurteknu umræður einmitt um þessi atriði. Þær sýna það svart á hvítu, að nauðsynlegt er að menn sameinist um að breyta þeim vísitölugrundvelli, sem nú er búið við, þannig að hann miðist ekki sérstaklega við það að halda niðri gjaldskrám á fyrirtækjum Reykvíkinga.