14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2675 í B-deild Alþingistíðinda. (2643)
103. mál, barnalög
Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að gagnrýna það harðlega, að nú fyrst nokkrum dögum fyrir þingslit hafi ríkisstj. uppburði í sér til þess að mæla fyrir þessu frv. til barnalaga. Eins og fram kemur á þskj. er þetta 103. mál þingsins og lagt fram í janúarmánuði, að ég hygg, af minnihlutastjórn Alþfl. Fjórir mánuðir eru því liðnir frá framlagningu frv. og nú tæpri viku fyrir þingslit mannar hæstv. dómsmrh. sig fyrst upp í það að mæla fyrir frv. Málið var þó á dagskrá fyrir tæpum mánuði, að ég hygg, en þá bar hæstv. dómsmrh. því við að hann vantaði upplýsingar til þess að mæla fyrir málinu. Það verður að kallast léleg afsökun þegar á það er litið að þetta er í fimmta sinn sem það er lagt fyrir hv. Alþ. og er því meðgöngutími þess orðinn æðilangur hér.
Frv, hefur tekið töluverðum breytingum síðan það var fyrst lagt fram vorið 1976. Tekið hefur verið verulegt tillit til ábendinga og aths. sem fram hafa komið við meðferð málsins á fyrri þingum. Gefur það tilefni til þess að ætla að frv. sé það vel úr garði gert að ekki ætti að þurfa að tefja málið lengi á hv. Alþingi.
Hæstv. dómsmrh. hefur haft nokkra mánuði til þess að afla sér upplýsinga um málið frá því að hann varð dómsmrh., og afsökun hans fyrir upplýsingavöntun fyrir mánuði er því harla léttvæg. Það krefst því skýringa nú frá hæstv. dómsmrh., hvað hann og sú ríkisstj., sem hann styður, hyggst fyrir með framlagningu frv. fyrst nú. Vil ég beina þeirri spurningu til hæstv. dómsmrh., hver sé tilgangurinn nú með því að mæla fyrir frv., ef ekki er ætlunin að málið fái afgreiðslu á þessu þingi. Ég lýsi eindregnum stuðningi mínum við þetta frv. og mun styðja ríkisstj. í því að málið fái afgreiðslu og að nauðsynlegur tími verði tekinn í það að afgreiða málið áður en þingi lýkur.
Frv. þetta byggist að verulegu leyti á því að tryggja betur en nú er réttarstöðu óskilgetinna jafnt sem skilgetinna barna. Athyglisvert er það sem kemur fram í töflu í aths. með frv., þar sem getið er um hlutfall óskilgetinna barna á Íslandi og hinum Norðurlöndunum. Kemur þar glöggt fram hve brýnt er orðið að setja slíka löggjöf sem þessa, þegar á það er litið hvað hlutfall óskilgetinna barna er hátt hér á landi. Fram kemur t. d. 1977, að hlutfall óskilgetinna barna sé 36% á Íslandi, næst komi Svíþjóð með 34.7%, þá Danmörk með 25.9 og loks Noregur og Finnland með rúm 11%.
Þó að mörg og merk nýmæli sé að finna í þessu frv., þá vil ég benda einkum á kaflann um framfærslu barna, en þar er að finna mjög brýn og veigamikil atriði varðandi réttarstöðu þeirra, sem ég fagna sérstaklega. Má þar benda á 17. gr., um að framlag til menntunar og starfsþjálfunar barna sé heimilt að ákveða allt til þess að barn nær 24 ára aldri. Þessu ákvæði ber sérstaklega að fagna, því að mjög erfitt hefur verið t. d. fyrir einstæða móður að sjá barni sínu fyrir áframhaldandi skólagöngu eftir að framfærslu föður lýkur við 17 ára aldurinn. Gefur það auga leið, að margir unglingar hafa orðið að hætta skólagöngu af þeim sökum, hversu gjarnan sem þeir annars vildu halda henni áfram. Að vísu finnst mér ekki nægjanlega tryggt hvernig innheimta eigi áframhaldandi framfærslueyri hjá barnsföður, ef skilningur minn er réttur á þessum kafla, þar sem skylda Tryggingastofnunarinnar til þess að greiða meðlag sem síðan er innheimt hjá barnsföður af Innheimtustofnun sveitarfélaga — en skv. 29. gr. þessara laga er það innan þeirra marka um fjárhæð og aldur barns sem almannatryggingalögin mæla fyrir um hverju sinni — nær nú til 17 ára aldurs. Getur reynst erfitt að innheimta slíkan framfærslueyri vegna skólagöngu, ef ekki er vel frá því gengið og á tryggilegan hátt, hvernig það framlag á að innheimta.
Fleiri merk nýmæli er að finna í kaflanum um framfærslu, eins og t. d. í 19. gr. og 25. gr., en þar er heimild til þess að úrskurða framfærsluskyldan aðila til að inna af hendi sérstakt framlag vegna mikilla útgjalda, vegna veikinda og fleiri atriða sem þar eru upp talin. Að vísu getur orðið erfitt í framkvæmd að meta slík sérstök útgjöld sem frá er greint í 19. gr., og því er nauðsynlegt að frá slíku sé vel gengið í reglugerð.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta frv., en legg áherslu á að þó að stuttur tími sé eftir af þingtímanum, þá verði reynt að afgreiða þetta brýna réttlætismál sem svo lengi hefur verið hér til umfjöllunar á hv. Alþ. Væri vissulega ánægjulegt að sjá þetta frv. verða að lögum nú.
Ég ítreka spurningu mína til ráðh., hver sé ætlun ríkisstj. og þá kannske fyrst og fremst hver sé tilgangurinn með því að mæla fyrir þessu frv. núna, ef ekki er ætlunin að afgreiða málið. Og ég ítreka það enn þá einu sinni, að ég gagnrýni harðlega hvernig meðferð þetta mál hefur fengið á þingi. Langt er síðan það var lagt hér fram þannig að það hefði vel verið auðvelt að afgreiða það og gera það að lögum á þessu þingi.