14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2677 í B-deild Alþingistíðinda. (2644)

103. mál, barnalög

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Ég sagði áðan að frv. þessa eða máls þessa mundi vera beðið með vaxandi óþreyju og hefur það nú glögglega komið á daginn. Hér tekur hv. 10. landsk. þm. til máls og kvartar yfir löngum meðgöngutíma þessa máls hér á þinginu.

Frv. var lagt fram að þessu sinni — það hefur áður verið lagt fram — rétt fyrir stjórnarskiptin í febr. s. l. og þá í óbreyttri mynd frá því vorið 1979. Ég sá strax að hér var um svo merkt mál að ræða og svo tímabært að því hlaut að verða fylgt eftir. En það er ör þróun í þessum málum og undirbúningsnefndin kom skömmu síðar — eða eftir að ég tók við ráðherraembætti — að máli við mig og óskaði eftir að fá að koma á framfæri aths. sem gjarnan mættu koma fram áður en framsöguræða um þetta mál yrði flutt á þingi. Ég varð að sjálfsögðu við þeim óskum og ætlaði mér að ræða ítarlega við aðalhöfunda frv. Á því hafa orðið tafir, m. a. vegna fjarveru þeirra erlendis um nokkurt skeið.

Nú um daginn var hér á hv. Alþ. kvartað yfir því, hvað nefndum gengi illa að skila af sér störfum. Þá var þetta mál á dagskrá. Ég hafði þá ekki fengið tækifæri til þess að ræða við höfunda frv. og gat þess, en jafnframt að ég mundi gera það eins fljótt og unnt væri. Mér er það fyllilega ljóst, að það er skammt nú til þingloka, en hér er hins vegar um stórmál að ræða sem ég hygg að fæstir hv. alþm. hafi krufið til mergjar. Ég hygg að sú n., sem fær mál þetta til meðferðar, þurfi að skjóta á ekki aðeins einum fundi, heldur nokkuð mörgum fundum áður en það hlýtur endanlega afgreiðslu frá n. Þess vegna er ég ekki bjartsýnni en svo, að ég geri mér engar háar vonir um að frv. verði afgreitt fyrir þinglok nú, en að þeim er stefnt 20. þ. m. Ég taldi þó rétt og skylt, bæði vegna hv. þm. og ekki síst vegna hæstv. fyrrv. dómsmrh., sem hafði lagt þetta frv. fram hér á þinginu, að tala fyrir því til nefndar. En ég get gjarnan beðist afsökunar á því, hvað það hefur dregist.

Nú hefur frv. legið frammi um nokkra hríð á þingi. Væntanlega hefur hv. alþm. gefist nokkurt tóm til að lesa það lið fyrir lið. Nefnd fær það til athugunar nú þegar frídagar eru fram undan, að ég tali nú ekki um þegar þingi lýkur. Þá er allt sumarið fram undan sem þeir, sem áhuga hafa á þessu máli, ættu að nota vel svo að málið verði sem best undirbúið undir haustþingið. Ég tel að úr því sem komið er sé tvímælalaust rétt að stefna að því að skoða málið enn einu sinni rækilega fyrir haustþing og leggja það síðan fram á þann veg að ný löggjöf á þessu sviði geti litið dagsins ljós áður en núgildandi löggjöf nær sextugsaldri á miðju næsta ári.