14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2679 í B-deild Alþingistíðinda. (2646)
103. mál, barnalög
Alexander Stefánsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um þetta mál. Hér er um mjög mikilvægt lagafrv. að ræða sem enginn dregur í efa. Það vildi svo til í vetur, að ég sat ráðstefnu Kvenréttindafélags Íslands að Hótel Borg sem fulltrúi okkar þingflokks. Eitt aðalmálið, sem þar var til umr., voru einmitt þessi lög, frv. til barnalaga með meiru, og ég verð að segja það eftir að hafa verið á þeim fundi, sem var mjög fróðlegur og bar þar margt á góma sem varðar þessi mál almennt og ekki síst málefni barna, að miðað við þær umsagnir og aths. og ábendingar, sem þar komu fram, hef ég tilhneigingu til þess að skilja þá hugmynd hæstv. dómsmrh., að þetta mál fái frekari skoðun og verði lagt fram að nýju í byrjun næsta þings. Ég tel það mjög þýðingarmikið að sú löggjöf, sem Alþ. sendir frá sér hvað þetta varðar, sé helst hnökralaus og að þeir aðilar, sem af mestum áhuga hafa fjallað um þetta mál, hafi þá a. m. k. haft möguleika á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við þá sem kunna að endurskoða þessi lög. Ég er sannfærður um að það er vilji fyrir því að þetta verði að lögum, og mér finnst í alla staði eðlilegt að það fái þessa meðferð og verði eitt af fyrstu málum sem næsta reglulegt Alþingi tekur til meðferðar og afgreiðslu.