14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2680 í B-deild Alþingistíðinda. (2653)

177. mál, skráning lífeyrisréttinda

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Frv. til l. um skráningu lífeyrisréttinda, sem ég mæli hér fyrir, er undirbúið og samið í fjmrn. í náinni samvinnu við svonefnda átta manna lífeyrisnefnd Alþýðusambands Íslands, Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, Vinnuveitendasambands Íslands og Vinnumálasambands samvinnufélaganna. Tvö frv. tengd þessu liggja fyrir Ed., annað á þskj. 405, um starfskjör launþega, og hitt á þskj. 420, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.

Lífeyrissjóðir viðurkenndir af fjmrn. eða lögbundnir eru nú 95 talsins. Engin heildarskrá er til í landinu um, hverjir eiga aðild að sjóðum þessum, og því síður er til heildarskrá um réttindi aðila í þeim. Fjmrn. hefur að undanförnu unnið að því að safna saman efni í skrá um lífeyrisréttindi landsmanna. Þýðingarmesta framlagið til slíkrar skrár til þessa hefur komið frá Sambandi almennu lífeyrissjóðanna, en samband þetta hefur gert samnafnaskrár fyrir alla sjóði innan sambandsins. Biðreikningur lífeyrissjóðsiðgjalda hefur og tengst þeirri skrá í samræmi við sérstakt samkomulag er gert var við Samband almennu lífeyrissjóðanna. Samnafnaskrá Sambands almennu lífeyrissjóðanna hefur að geyma 97 þús. nöfn. Sérstaka athygli vekur að á skránni eru nöfn manna er greitt hafa til allt að sjö lífeyrissjóða. Algengt er að einn og sami maður eigi aðild að 2–3 sjóðum. Og þegar þess er gætt, að margir og mjög stórir lífeyrissjóðir eiga ekki aðild að Sambandi almennra lífeyrissjóða, er augljóst mál að aðild einstaklinga að mörgum sjóðum er mun flóknara viðfangsefni en fram kemur í samnafnaskrá Sambands almennu lífeyrissjóðanna.

Það hefur iðulega komið í ljós við umsóknir um lífeyri eða lán hjá lífeyrissjóðunum, að umsækjendum er ókunnugt um réttindi sín í öðrum sjóðum en þeim er þeir eru aðilar að þá stundina. Með skráningu lífeyrisréttinda er stefnt að því að koma á fót samræmdu upplýsingakerfi um lífeyrisréttindi og iðgjaldagreiðslur, sem orðið geti hvort tveggja í senn, stofn fyrir eftirlit með því, að lagaákvæðinu um skylduaðild að lífeyrissjóðum sé fullnægt, og grundvöllur heildarendurskoðunar á lífeyriskerfinu og samræmingar á lífeyrisréttindum og iðgjaldagreiðslum.

Eins og ég hef þegar tekið fram er frv. þetta samið í fjmrn. í náinni samvinnu við svonefnda átta manna lífeyrisnefnd aðila vinnumarkaðarins. Alger samstaða var í þessari nefnd um þessi þrjú frv. sem ég hef hér gert grein fyrir. Þegar frv. voru lögð fram til kynningar í svonefndri 17 manna nefnd, sem er víðtækari hópur þar sem m. a. Bandalag starfsmanna ríkis og bæja á fulltrúa, kom í ljós að BSRB hafði nokkrar aths. að gera við frv. um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda annars vegar og það frv. sem hér um ræðir. Aths., sem BSRB hafði að gera við frv. um skráningu lífeyrisréttinda, var sú, að eðlilegra væri að skráin væri unnin og varðveitt í fjmrn., þar sem þessi vinna hefur fram að þessu farið fram, og þar er sem sagt mjög verulegur vísir að skráningu af þessu tagi.

Með hliðsjón af því, að ágreiningur væri gerður um tvö af þessum þremur frv., var það niðurstaðan hjá 16 af 17 nefndarmönnum í svonefndri 17 manna nefnd að mælast til þess við Alþ., að það kannaði þessi frv. öll, en eitt þeirra yrði afgreitt og það er frv. um starfskjör launþega. Sextán manna nefndin leggur afar þunga áherslu á það, að a. m. k. verði það frv. afgreitt, enda ekki vitað um neinn ágreining um það frv., og með því að tefja það mál væri hætta á því að málið í heild tefðist um kannske hálft til heilt ár. Þess vegna er nú megináherslan lögð á það frv., en hins vegar skiptir kannske ekki eins miklu máli þó að afgreiðsla þessara tveggja frv. bíði til haustsins, þ. e. frv, um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda og frv. sem ég mæli nú fyrir, um skráningu lífeyrisréttinda. Það gefst þá aðstaða til þess fyrir þá n., sem fær þetta til umr., að senda málið til umsagnar og menn geta þá haft það til athugunar í sumar og verið reiðubúnir að afgreiða það, breytt eða óbreytt, á hausti komanda.

Herra forseti. Ég legg til að frv. þessu verði vísað til hv. fjh.- og viðskn. að lokinni þessari umr.