14.05.1980
Neðri deild: 76. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2694 í B-deild Alþingistíðinda. (2673)

18. mál, öryggi á vinnustöðum

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Örfá orð. Ég tek það fram í upphafi, að ég minnist ekki á málflutning síðasta ræðumanns.

Í sambandi við það mál, sem hér liggur fyrir, má segja að vilji hafi verið í félmn. til þess að komast að sameiginlegri niðurstöðu og tryggja að þetta mál næði fram að ganga. Það þarf hins vegar ekki að þýða að menn séu nákvæmlega sömu skoðunar um einstakar greinar frv., eins og kom réttilega fram hjá hv. þm. Friðrik Sophussyni. Ég skal ekki heldur vera að deila við hann í löngu máli, fjarri því. Ég vil aðeins ítreka það, sem kom fram hjá frsm. um eðli þessa frv., og lesa hér lítið eitt upp úr 5. gr.:

„Í fyrirtækjum, þar sem eru 10 starfsmenn eða fleiri skal atvinnurekandi tilnefna einn aðila af sinni hálfu öryggisvörð og starfsmenn skulu tilnefna annan úr sínum hópi öryggistrúnaðarmann. Þeir skulu í samvinnu fylgjast með því, að aðbúnaður og hollustuhættir á vinnustað séu í samræmi við lög þessi.“

Og í 6. gr. segir:

„Í fyrirtækjum, þar sem eru 20 starfsmenn eða fleiri, skal stofna öryggisnefnd. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi tvo fulltrúa og atvinnurekandi tilnefnir tvo fulltrúa. Þessi nefnd skal skipuleggja aðgerðir varðandi aðbúnað, hollustuhætti, o. s. frv. og hafa eftirlit á vinnustöðum.“

Það, sem fyrst og fremst kemur þarna fram, er að það er verið að gera hinn almenna mann á vinnustaðnum virkan, að það séu ekki eingöngu launaðir embættismenn, heldur er verið að tryggja að á vinnustaðnum sjálfum séu sérstakir trúnaðarmenn frá báðum aðilum, þannig að það sé vakandi eftirlit og vinnumálaeftirlitið geti haft samband við þessa aðila. Í langsamlega flestum greinum frv. er það einmitt inntakið að tryggja þetta samband, fá fleiri virka á vinnustaðnum. Þetta er það, sem hefur reynst hjá þjóðum, sem eru tæknivæddari en við, það langsamlega virkasta.

Ég ætla ekki að fara að taka upp deilur við hv. þm. Friðrik Sophusson. Aðeins í sambandi við kostnaðinn af þessu frv. vil ég taka fram, að sú tillaga um greiðslufyrirkomulag, að það sé greitt eftir sömu reglum og segir í 77. gr., sömu reglum og sjúkratryggingagjöld, hún er komin frá fulltrúum Vinnuveitendasambandsins. Vinnuveitendur sjálfir vilja leggja á sig þennan kostnað, vegna þess að þeir eru ekki vissir um að þetta sé kostnaður þegar allt kemur til alls, heldur jafnvel sparnaður — og örugglega sparnaður.

Það er þessi tilgangur og það eru þessi efnisatriði sem skipta höfuðmáli. Vitanlega er tekið fram í 77. gr., og skal ég ekki vera með lagaskýringar við frv., enda ástæðulaust þar sem við erum búnir að ná samkomulagi um þetta, en vitanlega er gert ráð fyrir að Vinnueftirlitið skili sinni fjárhagsáætlun eins og önnur ríkisfyrirtæki. Í fjölmörgum tilfellum er þetta beinn sparnaður, og það er ekki minnsti vafi á því, að ef á að leggja niður stofnanir og, eins og hv. þm. Friðrik Sophusson benti á, ef verkefni stofnana skarast, þá var nú hugsunin með frv. að forstjórar viðkomandi fyrirtækja hefðu samstarf, hittust ársfjórðungslega, og reyndar er gert ráð fyrir þessu í frv. sjálfu. Í sambandi við það, sem hér hefur verið allt of mikið rætt að mínu mati, Brunaeftirlit ríkisins, segir í 73. gr., með leyfi forseta:

„Ráðh. skal skipta stofnuninni í deildir, svo sem rekstrardeild, eftirlitsdeild, fræðslu- og upplýsingadeild, brunamáladeild, atvinnusjúkdóma- og heilsugæsludeild o. fl., að fengnum tillögum stjórnar stofnunarinnar.

Ráðh. skal setja reglur um skiptingu landsins í eftirlitsumdæmi að fengnum tillögum stjórnar og forstjóra stofnunarinnar.

Ráðh. setur með reglugerð nánari ákvæði um framkvæmd á lögum þessum.“

Það er vissulega rétt, að því er ekki endanlega slegið föstu hvað verður um Brunamálastofnun, en það er alveg fullkomlega gert ráð fyrir því hér, að þarna sé hægt að færa saman stofnanir. Eins er náttúrlega verkefni þeirrar nefndar, sem skilar áliti í haust um nýja heilbrigðislöggjöf, að gæta þess að verkefni skarist þar ekki.

Ég held að þó freistandi væri að fara ítarlega í nokkrar fleiri greinar, þá sé það óþarfi eins og málum er komið. Ég ræði ekki orð hv. 2. þm. Norðurl. e., en hitt vil ég láta í ljós í sambandi við þetta frv. og samþykkt þess, að ég er ekkert smeykur við það að þarna séu athugaðar ýmsar greinar og jafnvel séu sett ákvæði þar sem stofnanir og verkefni þeirra skarast. Með þessu er stigið mjög merkt skref í öryggismálum á vinnustöðum og verður ábyggilega síðar talinn heilladrjúgur áfangi og ein besta heilsuvernd sem hægt er að skapa vinnandi fólki. Um þetta erum við nm. sammála, og ekki ætla ég að fara að deila hér við aðra nm. um túlkun á neinni grein. Að vísu er ekki alveg nákvæmlega sama túlkun okkar hv. þm. Friðriks Sophussonar, en það skiptir minnstu máli. Þetta fær sína meðferð og þetta verður skoðað betur í sumar og við getum þá kannske eitthvað deilt. Aðalatriðið er þetta, að þarna komi þáttaskil í íslenskri öryggislöggjöf. Þetta erum við sammála um. Það er atriði nr. eitt, tvö og þrjú í þessu máli.