16.05.1980
Sameinað þing: 59. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2771 í B-deild Alþingistíðinda. (2731)

200. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um fiskveiði- og landgrunnsmál

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég verð að lýsa furðu minni á þeim orðum hv. síðasta ræðumanns, að ég hafi lýst því yfir að Ísland ætti engan rétt til landgrunnsins á Jan Mayen svæðinu, og ég bið hann að lesa ræðu mína, meira að segja áður en hún er leiðrétt að nokkru leyti, og sannfærast um að þetta sagði ég ekki. Ég sagði þvert á móti — ég sagði það þrisvar sinnum a. m. k. — að ég styddi ýtrustu kröfur um rétt á Jan Mayen svæðinu. En ég sagði að það yrði að byggjast á sanngirnis- og siðferðisrökum að mínu mati vegna nálægðar Jan Mayen við Ísland, sem væri það land næst Jan Mayen sem byggt er, vegna mikilla hagsmuna okkar í sjávarútvegi, fiskveiðum og vegna þeirrar áhættu sem í því væri fólgin fyrir okkur ef þarna hæfust olíuboranir. Ég lýsti hins vegar vonbrigðum mínum með þá þróun, sem hefur orðið í alþjóðasamningsgerð að þessu leyti, og nefndi 121. gr. hafréttarsáttmálans, sem ég vona að hv. þm. geti tekið undir með mér að hlýtur að valda okkur Íslendingum vonbrigðum, þar sem eyju, jafnvel þó að hún sé óbyggð út af fyrir sig, eru veitt réttindi til fullrar efnahagslögsögu. Ég verð að segja það — og ég sagði — að ég tel erfitt að halda því fram að Jan Mayen sé klettur.

Þetta voru nokkurn veginn mín orð og ég vona að hv. þm. leiðrétti orð sín. Ég skal sjá til þess að hann fái ræðu mína alveg eins og hún var hér flutt. (Gripið fram í: Þú talaðir gáleysislega.) Stundum má tala af raunsæi og segja sannleikann. Þetta er sannleikurinn. Mér þætti undarlegt ef hv. þm. er ánægður með 121. gr. hafréttarsáttmálans. Er hann það? Er hann ánægður með 121. gr. hafréttarsáttmálans? (Gripið fram í: Aldeilis ekki.) Aldeilis ekki! Það er ég aldeilis ekki heldur. Ég er aldeilis ekki ánægður með 121. gr. hafréttarsáttmálans. Og ég veit að okkar ágætu menn, sem hafa sótt hafréttarráðstefnurnar, hafa beitt sér mjög fyrir því að fá á henni breytingar. Þeir eru aldeilis ekki heldur ánægðir með 121. gr. hafréttarsáttmálans. Ég tel 121. gr. ósanngjarna, m. a. þegar litið er á Jan Mayen. Við skulum viðurkenna það. Það er engin ástæða til að leyna því.

Við getum eflaust deilt um hvort síldin er norskur eða íslenskur stofn. En við höfum fært þau rök fyrir því, að loðnan væri íslenskur stofn, að hún hrygnir við strendur landsins, hún elst upp við strendur landsins. Og við höfum sagt að hún sé íslenskur stofn að þessu leyti þótt hún leiti út fyrir. Hún leitar árlega, árvisst upp með ströndum Grænlands þó hún fari ekki ætíð á Jan Mayen svæðið. Síldin hrygnir við Noregsstrendur, elst þar einnig upp og hefur t. d. ekki leitað út fyrir síðustu árin. Hún leitar út fyrir í ætisleit á ákveðnu tímabili síns æviskeiðs. Ég hugsa því að samlíkingin sé töluvert meiri en hv. síðasti ræðumaður lét í veðri vaka. — Annars er aðalatriðið það með síldina, að þar koma fleiri þjóðir inn í, t. d. Rússar með mjög sterka kröfu. Kom það greinilega fram hjá Norðmönnum að þeir teldu ekki fært að fjalla um síldina nema ræða við Rússa. Þeir telja sig eiga mikla kröfu til síldveiða, og Norðmenn virðast viðurkenna það.

Ég vildi aðeins leiðrétta þessi tvö atriði. Annars verð ég að lýsa ánægju minni með þá viðurkenningu sem kom fram í ræðu hv. þm. Kjartans Jóhannssonar á þessum samningsdrögum og undir þau orð hans tek ég að við stöndum sem best saman um það framhald sem verður og er áreiðanlega erfiðara en þessi áfangi.