17.05.1980
Sameinað þing: 60. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2776 í B-deild Alþingistíðinda. (2744)
231. mál, utanríkismál 1980
Utanrrh. (Ólafur Jóhannesson):
Herra forseti. Það hefur verið venja undanfarinn áratug, að utanrrh. legði fyrir Alþingi almenna skýrslu um utanríkismál. Ég hef talið rétt að fylgja í þessu fordæmi fyrirrennara minna, þótt ég hafi aðeins setið í embætti utanrrh. frá því í febr. s. l.
Skýrslan til Alþingis er að venju í tvennu lagi. Annars vegar er heildarskýrsla, sem er á þskj. 366, og hins vegar sérstök skýrsla um 34. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna og þátttöku Íslands í starfsemi samtakanna á liðnu ári. Ég mun ekki eyða dýrmætum tíma þingsins á síðustu dögum þess fyrir sumarleyfi til að lesa upp þessa skýrslu, heldur geta um nokkur höfuðatriði hennar og víkja jafnframt að þróun einstakra mála frá því skýrslan var samin. Vil ég þá strax taka fram að ég mun ekki koma inn á Jan Mayen málið hér, þar sem þingið hefur þegar fjallað sérstaklega um það á öðrum fundi.
Undanfarinn áratugur einkenndist mjög af bættum samskiptum milli austurs og vesturs og slökun á þeirri spennu sem ríkt hafði milli risaveldanna allt frá því skömmu eftir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Mátti m. a. þakka það fjórveldasamkomulaginn um Berlín og „ostpolitik“ vestur-þýsku stjórnvaldanna. Þessi bætta sambúð endurspeglaðist síðan í ráðstefnunni um öryggi og samstarf í Evrópu og lokaákvörðun þeirrar ráðstefnu sem leiðtogar ríkja Evrópu og Norður-Ameríku undirrituðu í Helsinki fyrir fimm árum. Þótt hægt hafi gengið að byggja brýr skilnings og samvinnu milli ólíkra þjóðskipulaga og milli þeirra einstaklinga sem þessi ríki byggja má segja að nokkuð hafi miðað áleiðis á flestum sviðum fram undir lok síðasta árs.
Eins og rakið er í skýrslunni má væntanlega segja að ýmsar ástæður hafi legið til þess, að sambúð austurs og vesturs fór kólnandi þegar á leið árið 1979. Atburðirnir í Afganistan eru á hinn bóginn tvímælalaust meginorsök þeirrar spennu sem nú ríkir í heimsmálunum. Áhrifa þeirra gætir langt út fyrir hin hefðbundnu samskipti austurs og vesturs, eins og m. a. má sjá af samþykktum á hinu sérstaka Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í janúar. Áskorun Allsherjarþingsins um heimköllun erlendra herja frá Afganistan hefur því miður engan árangur borið til þessa. Þvert á móti benda fregnir til þess, að sovésku herliði þar hafi verið fjölgað upp í allt að 120 þús. manns og íbúum landsins sé sýnd aukin harka. Er eitt sorglegasta dæmið, sem heyrst hefur, að ungar skólastúlkur hafi verið skotnar niður fyrir það eitt að láta í ljós andúð sína á hernámi landsins. Meðan þetta ástand varir sýnast því miður litlar líkur til þess að sambúð austurs og vesturs fari batnandi á ný. Samt sem áður má ekki gefast upp í því efni og verður að vinna að því og vona að takist fyrr eða síðar að finna lausn á þessum málum með samningum. Það verður að halda áfram viðleitni til að bæta sambúð austurs og vesturs.
Ísland hlýtur að veita slökunarstefnunni þann stuðning sem það má. Það hlýtur að vinna að undirbúningi og taka þátt í hinni svokölluðu Madrid-ráðstefnu sem ráðgert er að komi saman í nóvember n. k.
Í kaflanum um þróun alþjóðamála er einnig fjallað um gíslatökuna í Teheran. Eftir fregnum frá Íran að dæma mun ætlunin að ríkisstjórn sú, sem skipuð verður í vikunni, fjalli um mál gíslanna, og verður að vona í lengstu lög að hún taki þá ákvörðun að leysa gíslana úr haldi svo bundin verði endir á það stórhættulega ástand sem þarna hefur skapast. En um það þarf ekki að fjölyrða, hver hætta er samfara því ástandi, sem þarna hefur skapast, og hver ógn öryggi sendiráða stendur af þvílíkum atburðum og hvernig slíkir atburðir hljóta að kippa stoðum undan öryggi sendiráða og þar með undan diplómatískum samskiptum á milli ríkja.
Í þessari skýrslu hef ég tekið til sérstakrar meðferðar þann málaflokk sem lýtur að samskiptum ríkra þjóða og snauðra, þróaðra og vanþróaðra. Veruleg hreyfing hefur verið á þessum málum á undanförnum árum og má telja tvímælalaust að öll þróun þessara mála muni hafa víðtæk áhrif á heimsbyggðina, þótt hægt virðist miða á flestum sviðum. Við Íslendingar verðum að fylgjast sem best með og leggja okkar litla lóð á vogarskálina til að tryggja öllum þjóðum heims sanngjarnan hlut í gæðum jarðar og vinna þannig bug á fylgifiskum fátæktarinnar: hungri, sjúkdómum og þjáningum.
Í IV. kafla skýrslunnar er fjallað um Atlantshafsbandalagið og öryggismál Íslands. Í ljósi þess ástands, sem nú hefur skapast í heiminum, hef ég talið rétt að undirstrika mikilvægi sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsríkjanna og jafnframt það veigamikla hlutverk bandalagsins að stuðla að samningagerð um afvopnunarmál Evrópu.
Í V. kafla skýrslunnar er stuttlega fjallað um Hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna og önnur hafréttarmálefni. Nokkur bjartsýni ríkir nú um að ljúka megi gerð hafréttarsáttmála á næsta ári og er þar vitaskuld um að ræða mjög stórt skref á sviði þjóðarréttar.
Eins og ég sagði í upphafi máls míns ætla ég ekki að fjalla hér um samkomulagið við Norðmenn um Jan Mayen eða Jan Mayen svæðið. Hins vegar vil ég minna á að efnahagslögsagan norðan 67. breiddarbaugs við Austur-Grænland verður færð út um næstu mánaðamót. Við eigum mikilla hagsmuna að gæta á þessum slóðum og því ríður á miklu að vel verði á málum haldið. Þegar hafa farið fram óformlegar viðræður við Dani til að fá fram sjónarmið þeirra og greina þeim frá hagsmunum okkar. En nú hefur verið ákveðið að teknar verði upp formlegar viðræður við Dani og hefur viðræðunefnd af okkar hálfu verið skipuð og hefur verið gefin út um það fréttatilkynning. Ég endurtek ekki það sem þar var sagt, en fundur með Dönum er ákveðinn á fimmtudag í næstu viku. Verður það að sjálfsögðu fyrsti fundur, því að allt eins má gera ráð fyrir að þetta verði langar viðræður og e. t. v. erfiðar á ýmsa lund og verður að ætla að framhaldsviðræður hljóti að fara fram við Efnahagsbandalagið.
Næstu kaflar skýrslu minnar fjalla um flugmál, þróunaraðstoð og utanríkisviðskipti. Þar hefur lítið nýtt gerst frá því að skýrslan var samin og mun ég því ekki fjölyrða um þá kafla.
Í lok skýrslunnar er fjallað um utanríkisþjónustuna almennt, verksvið og starfsemi sendiráða okkar og staðsetningu þeirra. Þar er aðeins stiklað á stóru, enda yrði nákvæm grg. um störf hvers sendiráðs of langt mál í skýrslu sem þessa. Miðað við þann þrönga stakk, sem íslenskri utanríkisþjónustu er skorinn vegna fámennis þjóðarinnar, tel ég að síst sé of sterkt til orða tekið þar sem ég í niðurlagi skýrslu minnar bendi á að þegar litið sé yfir farinn veg á 40 ára afmæli íslenskrar utanríkisþjónustu hljóti það að vera sanngjarnra manna dómur að vel megi við una.