21.12.1979
Sameinað þing: 6. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í B-deild Alþingistíðinda. (277)

Þinghlé

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Í nafni alþm. þakka ég hæstv. forseta Sþ. hlý orð og góðar óskir í garð okkar þm. Fyrir hönd okkar þm. þakka ég hæstv. forseta réttláta og góða fundarstjórn og samstarf allt við þm., um leið og ég óska honum og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Ég bið þm. að taka undir þessi orð mín með því að rísa úr sætum. [Þm. risu úr sætum.]