19.05.1980
Sameinað þing: 61. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2830 í B-deild Alþingistíðinda. (2801)

200. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um fiskveiði- og landgrunnsmál

Frsm. minni hl. (Ólafur Ragnar Grímsson):

Herra forseti. Eins og fram kom í umr. um þetta mál fyrir nokkrum dögum og einnig birtist í því nál., sem ég hef skilað sem minni hl. utanrmn., tel ég að það samkomulag, sem nú er lagt til að verði staðfest, sé hvorki í samræmi við grundvallarstefnu Íslendinga í málinu né veiti Íslendingum tryggingar fyrir því, að lágmarkshagsmuna þeirra á svæðinu sé gætt í framtíðinni. Íslendingar hafa sýnt Norðmönnum fyllstu sanngirni í þessu máli. Við höfum lagt fram ítarlegar aðalkröfur, sem hafa falið í sér hugmyndir og tillögur um sameiginleg yfirráð, sameiginlega fiskveiðilögsögu, sameiginlega stjórnun á nýtingu auðlinda hafs og hafsbotns og helmingsrétt okkar til veiða á öllum fiskstofnum svæðisins. En Norðmenn hafa neitað þessum kröfum öllum. Þeir hafa til viðbótar neitað öllum höfuðatriðum þeirrar millileiðar sem íslenska samninganefndin í Osló var einhuga um að bjóða þeim. Í staðinn liggur hér fyrir samkomulag sem felur í sér fulla viðurkenningu á yfirráðarétti Norðmanna án þess að veita Íslendingum neinar þær tryggingar sem nauðsynlegar eru.

Ég tel að það sé ekki hægt að una því, að slík séu endalok þeirrar deilu sem verið hefur milli Íslands og Noregs um Jan Mayen, nánast allt frá því að ríkisstj. Jóns Þorlákssonar 1927 grundvallaði stefnu Íslendinga af mikilli framsýni. Ég hef þess vegna flutt á sérstöku þskj., nt. 577, brtt. við þessa þáltill. sem felur það í sér, líkt og ég gerði tillögu um strax í Osló, að óskað verði eftir áframhaldandi viðræðum við ríkisstj. Noregs um réttindi þjóðanna til stjórnunar og nýtingar á auðlindum hafs og hafsbotns á Jan Mayen svæðinu. Þessar viðræður hafi það að markmiði, að Íslendingar öðlist lágmarkstryggingar varðandi fimm þætti:

Í fyrsta lagi rétt til ákvörðunar um hámarksafla loðnu, afdráttarlausan rétt, og Norðmenn viðurkenni hann í viðræðum við þriðja aðila, og verði þá einkum haft í huga Efnahagsbandalag Evrópu eftir útfærsluna við Austur-Grænland.

Í öðru lagi, að hlutfall Norðmanna af heildarafla loðnu verði bundið við svæðið utan efnahagslögsögu Íslands og taki ekki breytingum nema með samþykki íslenskra stjórnvalda.

Í þriðja lagi, að Norðmenn viðurkenni jafnaðarrétt Íslendinga til veiða á öðrum flökkustofnum en loðnu, svo sem á kolmunna og síld og á staðbundnum fiskstofnum á Jan Mayen svæðinu.

Í fjórða lagi, að samningar við Íslendinga um skiptingu landgrunnsins á svæðinu frá efnahagslögsögu Íslands og til Jan Mayen séu forsenda þess, að Norðmenn geti lýst yfir 200 mílna efnahagslögsögu við Jan Mayen.

Í fimmta lagi, að allar rannsóknir og vinnsla, einkum á olíu á landgrunni Jan Mayen svæðisins, verði háðar samþykki Íslendinga eða óháðs úrskurðaraðila til að tryggja að lífríki hafsins verði ekki stefnt í hættu.

Jafnframt er því lýst yfir í þessari till., að Alþingi treysti því, að með tilliti til sögulegs réttar Íslendinga á Jan Mayen svæðinu, efnahagslegs mikilvægis þess fyrir þjóðina og vináttu Noregs og Íslands muni norsk stjórnvöld sýna Íslendingum þá sanngirni að fallast á áframhaldandi viðræður um framangreint tryggingarákvæði.

Í raun þarf ekki að fara mörgum orðum um þessa tillögu. Í henni eru tilgreind mikilvægustu tryggingarákvæðin sem ég lýsti við upphafsumr. málsins að skorti í þetta samkomulag. Ég tel það vanmat á samningastyrkleika Íslendinga, vanmat á því, sem ætla má að sé raunverulegur sáttavilji Noregs í málinu, að telja það nú til lykta leitt með því að samþykkja það samkomulag sem gerð er till. um að hér verði samþykkt.

Ég vil enn fremur vekja athygli á því, að ég hef enga trú á að þótt það samkomulag, sem hér er lagt til að verði staðfest, hljóti staðfestingu Alþingis og hliðstæðra stjórnvalda í Noregi sé þar með lokið deilum Íslendinga og Norðmanna um fiskveiðar á Jan Mayen svæðinu og um landgrunnið á Jan Mayen svæðinu. Ég held þvert á móti, án þess að það sé tími hér til að rökstyðja það ítarlega, að efnisatriði málsins séu þau, að strax við útfærsluna við Austur-Grænland og af ýmsum öðrum ástæðum muni Íslendingar þurfa þegar á næstu mánuðum og misserum að eiga áfram í deilum við Norðmenn um skiptingu fiskstofna á þessu svæði og um skiptingu landgrunnsins. Í þeim deilum höfum við hins vegar, ef þetta samkomulag verður samþ., spilað út okkar sterkasta trompi, þ. e. að veita Norðmönnum viðurkenningu á 200 mílna lögsögu í kringum Jan Mayen, og þar með samþykkt þá útþenslustefnu Norðmanna á hafsvæðinu kringum Ísland og Grænland sem fyrrv. utanrrh. Benedikt Gröndal gerði réttilega að umræðuefni hér um skýrslu utanrrh. s. l. laugardag.

Ég fæ satt að segja ekki skilið hvernig sömu menn, sem lýsa hér stórum orðum — ég tek það fram, stærri orðum en ég hef nokkurn tíma notað — útþenslustefnu Norðmanna á hafsvæðinu hér norður af Íslandi, geta samþykkt það samkomulag sem hér liggur fyrir. Ég tel þess vegna nauðsynlegt að af þessu tilefni komi fram skýr og afdráttarlaus yfirlýsing um það, eins og er í áliti minni hl. utanrmn., að kröfugerð Íslendinga allt frá yfirlýsingu ríkisstj. Jóns Þorlákssonar 1927 og til síðustu daga viðræðnanna í Osló standi áfram óhögguð til þess að íslensk stjórnvöld hafi í framtíðinni fulla aðstöðu til að taka málið upp að nýju ef það reynist rétt, sem ég tel að muni vera, að þetta samkomulag leysi á engan hátt þær deilur sem hafa staðið á milli landanna. Ég ítreka þess vegna þá skoðun mína, að ég tel fyrri kröfur þjóðarinnar í málinu enn þá í fullum rétti, þar með þá yfirráðaréttarkröfu sem fólst í yfirlýsingu Jóns Þorlákssonar 1927 hvað snertir ráðstöfun auðlinda eyjarinnar og hafsvæðisins þar í kring.

Ég vil enn fremur vekja athygli þingheims á því, að fyrir nokkrum vikum komu fram upplýsingar um það, að innan tíðar, jafnvel örfárra ára, eins eða tveggja ára, muni vera tæknilega framkvæmanlegt að bora eftir olíu á hafdýpi líku því sem er á landgrunni Jan Mayen svæðisins. Innan íslensku samninganefndarinnar hefur hingað til verið talið að slíkt yrði ekki mögulegt fyrr en eftir nokkra áratugi. Þó kom fram í Osló vitneskja frá einum íslenskum embættismanni um það, að hann hefði heyrt þess getið af hálfu Norðmanna, að innan eins eða tveggja ára yrði tæknilega mögulegt að framkvæma olíuboranir á Jan Mayen svæðinu. Þær upplýsingar, sem birtast í alþjóðlegu tímariti og hafðar eru eftir þekktum rannsóknaraðilum á þessu sviði, fela það í sér, að tæknilega væri framkvæmanlegt að hefja olíuboranir á Jan Mayen landgrunninu innan eins, tveggja eða þriggja ára eða á kjörtímabili núv. Alþingis. Enn fremur kemur þar fram, að við þær aðstæður, þegar borað er á slíku dýpi, muni reynast nánast ógerlegt að stöðva olíuleka sem fram kæmi. Í þessari grein er því líkt við martröð að slíkt óhapp ætti sér stað við olíuboranir á hafsvæði líku því sem er á landgrunni Jan Mayen svæðisins. Allir þeir, sem þekkja til mikilvægis fiskstofnanna fyrir Íslendinga og það svæði, sem þessir fiskstofnar fara um, geta gert sér í hugarlund hvers konar ógnaróhapp það yrði fyrir íslenska þjóð ef slíkt ætti sér stað á Jan Mayen svæðinu. Þessar nýju tæknilegu upplýsingar gera enn mikilvægara en áður að Íslendingar öðlist í samningum við Norðmenn fullar tryggingar fyrir því, að þeir aðhafist ekkert það á þessu svæði, sem stofnað geti lífríki svæðisins í hættu, nema með samþykki Íslendinga, eða eins og orðað er í þeirri brtt. sem ég flyt á þskj. 577: óháðs úrskurðaraðila, sem við mundum fyllilega treysta og gæfi úrskurð um að engar slíkar hættur væru fyrir hendi.

Þetta mál hefur mjög verið rætt utan þings og innan, og ég tel ekki ástæðu til að lengja þær umr. hér þótt margt mætti um þetta málefni segja. Ég verð þó að segja það að lokum, að mér fannst frekar ósmekklegt hjá frsm. meiri hl. utanrmn., þótt það sé út af fyrir sig ekki mitt mál, að hann skyldi nota tíma sinn hér sem samnefnari þessa meiri hl. Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. til þess í senn að hæla Sjálfstfl. af hinni svokölluðu forustu hans í þessu máli og um leið ásaka samherja sína nú í málinu fyrir aumingjaskap þeirra. Það sýndi ansi skemmtilega þverbrestina í því samstöðuliði sem hér hefur myndast í þessu máli, að hv. þm. Geir Hallgrímsson skyldi sjá sig til knúinn, um leið og hann mælir fyrir sameiginlegu áliti fulltrúa þessara þriggja flokka, að reyna að afsaka uppgjöf Sjálfstfl. í málinu með því að koma einhverju aumingjaskaparorði á fyrrv. og núv. utanrrh. Mér fannst þetta ósmekklegt, og ég vil segja það hér og sagði það við 1. umr. þessa máls, að í öllum þeim viðræðum, sem ég tók þátt í, héldu báðir utanrrh. Íslands, Benedikt Gröndal og Ólafur Jóhannesson, af fullri djörfung og vel og rækilega á þeim grundvallaratriðum sem Íslendingar hafa sett fram í þessu máli, þótt okkur greindi á að lokum, á síðustu stundum málsins, hvernig með það skyldi fara, og þótt okkur greini á um mat á því, hvort nú eigi að hætta samningum eða halda áfram. Lítilfjörlegar ásakanir formanns Sjálfstfl. um aumingjaskap þessara manna og annarra í þessu máli duga Sjálfstfl. á engan hátt til þess að afsaka það, að það er hann umfram alla aðra sem hefur hlaupist frá skýrari og afdráttarlausari stefnu en Sjálfstfl. hefur mér vitanlega haft í nokkru einasta máli öðru á undanförnum misserum.

Sú málsmeðferð, sem utanrrh. landsins tveir hafa haft á þessu máli síðan samkomulag var í landhelgisnefnd í júlí og ágústmánuði 1978, er þvert á móti alveg gagnstæð því sem hv. alþm. Geir Hallgrímsson var að láta liggja að hér áðan. Þótt mig greini á hér á lokastigi við núv. hæstv. utanrrh. og fyrrv. hæstv. utanrrh., þá vil ég þó frábiðja þingheimi svo lítilfjörlegan málflutning sem kom fram áðan í framsöguræðu fulltrúa meiri hl. utanrmn.