19.05.1980
Sameinað þing: 61. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2836 í B-deild Alþingistíðinda. (2805)

200. mál, samkomulag milli Íslands og Noregs um fiskveiði- og landgrunnsmál

Frsm. meiri hl. (Geir Hallgrímsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð að gefnu tilefni.

Ég greindi hér frá nál. og afgreiðslu n. á þeirri þáltill., sem hér er til umr., sem frsm. meiri hl. utanrmn. Ég gerði grein fyrir þeim almennu viðhorfum, sem allir meirihlutamennirnir stóðu að, og ég gerði skýran greinarmun á því, sem ég sagði í því hlutverki, og svo aftur þegar ég gerði grein fyrir afstöðu og viðhorfum þm. Sjálfstfl. Ég gerði það til þess að spara tíma. Mér hefur skilist að það væri áhugamál ríkisstj. og stjórnarliða að ljúka Alþingi sem fyrst, og það var samkomulag í þingflokki sjálfstæðismanna að ég reyndi að gera almenna grein fyrir viðhorfum þeirra til málsins til þess að þeir hefðu síður ástæðu til þess að kveðja sér hljóðs í þessu máli. En ég tek það fram, að þessi orð mín ber ekki að skilja svo að þm. Sjálfstfl. séu ekki frjálsir að því að taka hér til máls og gera grein fyrir afstöðu sinni í þessu máli. Það liggur í hlutarins eðli. Við sjálfstæðismenn erum fylgismenn málfrelsis. Og það er út af fyrir sig ánægjulegt og gleðilegt, að einu sinni kemur þó fram að Alþb., sem ekki er þekkt að því að vera málsvari lýðræðis og skoðanafrelsis í öllum tilvikum, sýnir í þessum umr. að einn þm. þess hefur þó dug og kjark til að mótmæla málflutningi og ég vil segja ósmekklegum og ástæðulausum getsökum formanns þingflokks Alþb. Við gagnrýnum formann þingflokks Alþb. áreiðanlega á mismunandi forsendum, hv. þm. Garðar Sigurðsson og ég, en engu að síður erum við jafnóánægðir með málflutning formanns þingflokks Alþb.

Ég skal svo láta stjórnarliðana um það að deila sín á milli um svo mikilvægt mál sem landhelgismálið er. En það hefur ekki staðið á Sjálfstfl. að fylkja liði um sameiginlega hagsmuni landsmanna í landhelgismálum. Sjálfstfl. er ekkert feiminn við að segja, að hann hafi haft forustu í þeim efnum, og telur það ekki á neinn hátt til þess fallið að varpa skugga á aðra flokka eða stofna til missættis eða ósamkomulags. Ég hlýt að gera þá kröfu til allra þingflokka og þm., og við gerum þá kröfu gagnkvæmt hver til annars, að menn skoði málin á hlutlægan hátt og taki efnislega afstöðu, en ekki á grundvelli þess, hver hafi frumkvæði í málum hverju sinni. Í þeim anda höfum við sjálfstæðismenn tekið afstöðu í þessu máli. Okkur hefur ekki dottið í hug að nota þetta mál til þess að sýna sérstaklega fram á sundrung ríkisstjórnarflokkana eða torvelda framgang samkomulagsins eða stuðla að falli ríkisstj. vegna þessa máls út af fyrir sig. Hins vegar hef ég nefnt það í ræðu minni á föstudaginn var og get ítrekað það enn, að væri samkomulagið ekki samþykkt, þá ættu auðvitað stuðningsmenn samkomulagsins innan ríkisstj. að segja af sér. Ef samkomulagið verður samþykkt, þá ættu auðvitað andstæðingar samkomulagsins meðal stuðningsmanna stjórnarliðsins að segja af sér, vegna þess að hér er um mikilvægt mál að ræða sem í hugum manna ætti að varða slit á stjórnarsamstarfi ef nokkur alvara fylgdi þeim orðum sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson lét sér um munn fara áðan. En honum er kannske engin alvara frekar en Alþb. mönnum er alvara þegar þeir eru að fjölyrða um utanríkis- og varnarmál landsins, en fylgja því, sem þeir segja, ekki fram innan ríkisstj. í stjórnarathöfnum.

Ég held svo að það sé ekki nokkur ástæða að eyða einu orði til að svara hv. þm. Benedikt Gröndal umfram það sem ég hef þegar gert og hann getur tekið til sín.