19.05.1980
Sameinað þing: 64. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2912 í B-deild Alþingistíðinda. (2890)
Almennar stjórnmálaumræður
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Talsmönnum Geirsliðsins í Sjálfstfl. hefur í kvöld orðið tíðrætt um stjórnleysi og stefnuleysi. Slíkar ásakanir koma úr hörðustu átt. Við skulum skoða stefnufestu þeirra á nokkrum ólíkum, en mikilvægum sviðum.
Fyrir kosningar settu þeir fram hina frægu leiftursókn í efnahagsmálum. Nokkrum vikum eftir kosningar var Geir Hallgrímsson gersamlega horfinn frá þessum tillögum og setti fram í stjórnarmyndunarviðræðum allt aðrar hugmyndir. Og það hefur verið hljótt um leiftursóknarboðskapinn hér í þingsölum. Jafnvel Friðrik Sophusson er hættur að kyrja þennan stríðssöng.
Í baráttunni gegn verðbólgunni fer því lítt fyrir stefnufestu Geirsliðsins. Leiftursóknin er gleymd og grafin og í hennar stað hefur komið síendurtekið skattanöldur sem menn hafa fengið að heyra hér í kvöld.
En hver skyldi svo vera stefna þessara herra í skattamálum? Í stjórnarandstöðu boða þeir afnám skatta, en um leið og ráðherrastólarnir yljuðu bossum þeirra 1974–1978 var færiband nýrrar skattaframleiðslu komið í fullan gang.
Hver fann upp vörugjaldsskattinn? Jú, það var Matthías Á. Mathiesen í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Hver fann upp sjúkratryggingaskattinn? Jú, það var Matthías Á. Mathiesen í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar. Og hver stórhækkaði söluskattinn ? Jú, það var Matthías Á. Mathiesen í ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar.
Og hver fann svo upp þessi nýju skattalög, sem menn hafa verið að puða hér við í allan vetur og nú á að framkvæma í fyrsta sinn? Hver annar en þessi sami Matthías Á. Mathiesen í þessari sömu ríkisstj. Geirs Hallgrímssonar.
Þannig er nú stefnufesta Geirsarmsins í skattamálum. Og nú hrópa þeir hér í kvöld og alla daga um skattpíningu, og fulltrúar Alþfl., eins og Jóhanna Sigurðardóttir, reyna eftir bestu getu að vinna sig í álit sem litla íhaldið í landinu og taka undir þennan söng. En skattseðlarnir í vor munu sýna láglaunafólki það, að Alþb. hefur gert tekjuskattinn léttari fyrir almennt launafólk en Matthías Á. Mathiesen ætlaði í upphafi. Fjmrh. Alþb. gerði skattkerfisbreytinguna mun hagstæðari láglaunafólki en Matthías Á. Mathiesen ætlaði í upphafi. Við í Alþb. kvíðum því engu þegar skattseðlarnir birtast í vor. Ætli það endurtaki sig ekki sama sagan og í fyrra, þegar Morgunblaðið fann engan nema fáeina atvinnurekendur sem voru óánægðir með skattana sína? Ætli veruleikinn muni ekki afhjúpa á ný þetta áróðursmoldviðri stóra íhaldsins í Geirsarminum í Sjálfstfl. og litla íhaldsins, vonsviknu viðreisnarkratanna.
Og hvað með stefnufestuna í ríkisfjármálum og fjárhag sveitarfélaga? Nú krefjast þessir herrar tekjuafgangs ríkissjóðs, en í fjögur ár rak Matthías Á. Mathiesen ríkissjóð Geirs Hallgrímssonar með slíkum tugmilljarða halla að allar ríkisstjórnir síðan hafa verið að keppast við að greiða Seðlabankanum syndaskuldir Matthíasar Á. Mathiesen og hefur ekki dugað til.
Og stefnufestan gagnvart sveitarfélögunum, sem á hátíðisdögum í Sjálfstfl. eiga að heita hornsteinn lýðræðisskipulagsins í landinu, lýsir sér best í því, að þegar meiri hl. Alþingis veitti sveitarfélögum aukið sjálfsforræði í fjárhagsmálum, sem Samband ísl. sveitarfélaga hafði margóskað eftir, þá greiddi Geirsliðið í Sjálfstfl. og litla íhaldið í Alþfl. atkv. gegn auknu fjárhagslegu sjálfsforræði sveitarfélaganna. En það er ánægjulegt að Alþfl.-menn í sveitarfélögum um allt land hafa haft aðra skoðun á því máli en Jóhanna Sigurðardóttir hér í kvöld.
Hver var röksemd Geirsliðsins gegn því að leggjast hér gegn vilja sveitarfélaganna? Jú, hún var sú, að ríkið, fjárhagur ríkisins, sem nú var orðið óskabarn Geirsarmsins í Sjálfstfl., átti að þeirra dómi að hafa forgang. Það er lærdómsríkt fyrir sveitarstjórnarmenn um allt land og alla þá, sem vilja efla aukið lýðræðislegt vald fólksins sjálfs yfir eigin málum, treysta heimastjórn íbúanna og lýðræðislegt frumkvæði byggðarlaganna í atvinnumálum, félagsmálum og öðrum málaflokkum, að hugleiða þá staðreynd, að það var að frumkvæði Alþb. hér á Alþingi að fjárhagsgrundvöllur og þar með lýðræðiskraftur sveitarfélaganna var styrktur. Á þeirri stundu hrópaði Geirsklíkan í Sjálfstfl. á aukið vald ríkisins.
Nei, þessir herramenn ættu sem minnst að tala um stefnufestu. Síðustu mánuði, síðustu vikur hafa þeir kúvent í hverju málinu á fætur öðru og nú síðustu dagana hlaupa þeir frá öllum fyrri stefnuatriðum Sjálfstfl. í Jan Mayen málinu og afhenda Norðmönnum algeran sigur yfirráð og allan rétt.
Það var til lítils fyrir Alþb. — og við munum draga lærdóm af því — að mynda sameiginlega afstöðu með svo ístöðulitlu liði. Á úrslitastundu á hálfum sólarhring í Oslóborg hljóp Geirsarmurinn frá öllu saman. Ósigur Íslendinga í samningum við Norðmenn er fyrst og fremst sök Geirsarmsins í Sjálfstfl. Sjálfstfl. krafðist sameiginlegra yfirráða Norðmanna og Íslendinga hvað snertir nýtingu hafs og hafsbotns á Jan Mayen svæðinu, en nú samþykkir hann yfirráð Norðmanna einna. Sjálfstfl. krafðist sameiginlegrar fiskveiðilögsögu Norðmanna og Íslendinga. Nú samþykkir hann fiskveiðilögsögu Norðmanna einna. Sjálfstfl. krafðist jafnrar nýtingar á auðlindum hafs og hafsbotns. Nú samþykkir hann algeran yfirráðarétt Norðmanna yfir nýtingu auðlinda Jan Mayen svæðisins. Sjálfstfl. krafðist að Íslendingar ættu rétt á að veiða að jöfnu allan þann afla sem fengist á Jan Mayen svæðinu, bæði loðnu, kolmunna, síld og aðra stofna. Nú samþykkir hann tímabundið samkomulag um loðnuveiðar sem veitir Norðmönnum allan rétt innan fárra ára og staðfestir eftirgjöf á kröfum Íslendinga til ákveðinnar hlutdeildar í kolmunna, síld og öðrum stofnum. Sjálfstfl. krafðist þess, að veiðar annarra þjóða á Jan Mayen svæðinu yrðu útilokaðar. En nú samþykkir hann að Norðmenn hafi fullan rétt til að semja á hvern þann hátt sem þeim sýnist við aðrar þjóðir um Jan Mayen svæðið. Sjálfstfl. hélt til streitu landgrunnskröfum Íslendinga á Jan Mayen svæðinu, en nú samþykkir hann landgrunnsákvæði án nokkurrar tryggingar fyrir Íslendinga.
Staðfesting Sjálfstfl. hér á Alþingi fyrr í dag á uppgjöfinni í Jan Mayen málinu sýnir ásamt stefnuleysi þeirra í efnahagsmálum, skattamálum, ríkisfjármálum og lýðræðismálum sveitarfélaganna, að íslenska þjóðin getur ekki tekið neitt mark á stefnu flokksins í einstökum málum. En því miður er það ekki aðeins gagnvart íslensku þjóðinni sem uppgjöf Sjálfstfl. í Jan Mayen málinu sýnir stefnuleysi, ístöðuleysi og alvöruleysi flokksins. Með uppgjöf sinni er flokkurinn einnig að gefa ríkisstjórnum annarra landa það til kynna, að í framtíðinni þurfi ekki að taka neitt mark á tillögugerð Sjálfstfl. Hvorki íslenska þjóðin né ríkisstjórnir annarra landa þurfa að taka mark á Geir Hallgrímssyni og hirð hans. Þess vegna ætti Geir Hallgrímsson að sjá sóma sinn í því að koma ekki hér og tala um ístöðuleysi og stefnuleysi. Leiftursóknin og Jan Mayen málið eru nægilegur vitnisburður um það, hve lítið mark er takandi á orðum formanns Sjálfstfl., hve innantómar eru þær yfirlýsingar sem flokkurinn hefur látið frá sér fara. Og þessu til viðbótar eru nú hollt að hv. þm. Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstfl., minnist þess vel og rækilega að sá, sem ekki getur stjórnað eigin flokki, á ekki að bjóðast til að stjórna þjóð. Sá, sem ekki getur staðið stundinni lengur á eigin stefnu, á ekki að ásaka aðra um stefnuleysi.
Alþb. hefur haldið traust og örugglega á þeirri stefnu sem íslensku þingflokkarnir mótuðu sameiginlega í Jan Mayen málinu. Það eru aðrir sem hafa rofið það samkomulag flokkanna. Og það þýðir ekki fyrir Geir Hallgrímsson að bjóða þjóðinni upp á það grín, að vegna þess að hann skipaði Matthíasi Bjarnasyni að yfirgefa í Osló fyrri stefnu Sjálfstfl., þá eigi Alþb. að fara úr ríkisstj. og losa Geirsliðið þar með við þá martröð, sem greinilega kom fram hjá þeim hér í kvöld, að þurfa að horfa upp á Gunnar Thoroddsen í stóli forsrh.
En það er ekki aðeins í þessu máli sem fulltrúar Alþb. á Alþingi hafa haldið stefnunni hátt á loft. S. l. laugardag fór hér fram umr. um skýrslu utanrrh. Þar var rækilega gerð grein fyrir þeirri ógnarhættu sem Alþb. telur að felist í herstöðinni í Keflavík og þeim grundvallarbreytingum sem orðið hafa á vopnabúnaði stöðvarinnar á síðustu áratugum. Það er mikill misskilningur, hættulegur misskilningur, sem kemur fram í skýrslu utanrrh. og stuðningsmannanna og hjá stuðningsmönnum NATO hér á Alþ., að herstöðin í Keflavík sé tiltölulega saklaus eftirlitsstöð, sem hafi litlar hættur í för með sér. Eðlisbreytingarnar, sem orðið hafa á herstöðinni, hafa gert hana að lykilþætti í kjarnorkuvopnakerfi Bandaríkjanna í Norður-Atlantshafi og þar með sett Ísland í brennidepil ógnarkapphlaups stórveldanna. Eðli kjarnorkuvopnakapphlaups þeirra hefur á síðustu 10–15 árum breyst í það horf, að það eru fyrst og fremst herstöðvarnar sjálfar, staðsetning upplýsingatækja og vopnabúnaðar, sem skapa árásarhættuna.
Á Norður-Atlantshafi er ógnarkapphlaupið af hálfu Bandaríkjanna grundvallað á þremur þáttum: Í fyrsta lagi á öflugu upplýsingakerfi frá undirdjúpaduflum. Í öðru lagi á flugvélum sem eiga að flytja sprengjur með kjarnaoddum. Í þriðja lagi á kjarnorkukafbátum sem ætlaðir eru vera helstu árásartækin í átökum. Herstöðin í Keflavík er lykilþáttur í framlagi Bandaríkjanna til þessa ógnarkapphlaups á Norður-Atlantshafi. Kaplarnir, sem liggja í sjó út frá Snæfellsnesi, Hornafirði og Reykjanesi og tengjast hinu flókna hlustunarkerfi Bandaríkjanna í undirdjúpum Norður-Atlantshafsins, Orion-flugvélarnar, sem ætlað er að flytja sprengjur með kjarnaoddum er þörf krefur, Awaes-flugvélarnar, sem hingað komu nýlega og hvergi annars staðar eru staðsettar í Norður-Atlantshafi og búnar eru tækjakosti til að stýra árás á annað ríki í kjarnorkuvopnaátökum, og kjarnorkukafbátarnir, sem sigla um höfin hér í kring, allt þetta gerir það að verkum að sú tæknilega eðlisbreyting, sem orðið hefur á herstöðinni í Keflavík, hefur gert hana að lykilþætti í kjarnorkuvopnakerfinu sem þróast hefur á Norður-Atlantshafi.
Það er nauðsynlegt fyrir íslenska þjóð að átta sig á því, að það er ekki landfræðilega landsins, sem skapar hættu á árás ef til átaka kemur milli stórveldanna. Það er fyrst og fremst og eingöngu sá flókni tækjabúnaður, sú hernaðarlega aðstaða sem Bandaríkin hafa hér. Ógnir kjarnorkuvopnastyrjaldar eru hér við okkar eigin bæjardyr.
Það er stórt og mikilvægt verkefni fyrir Alþingi Íslendinga, íslensk stjórnvöld og þjóðina alla að gera sér skýra grein fyrir þeirri tortímingarhættu sem okkur öllum stafar af þeim tækjabúnaði sem annað stórveldanna hefur á s. l. 10–20 árum fest í sessi í okkar landi. Tortímingarhættan, gereyðingarhættan, sem herstöðin í Keflavík skapar íslenskri þjóð, er umhugsunarefni, ömurlegt og hryllilegt, en nauðsynlegt umhugsunarefni fyrir alla þá sem unna framtíð íslenskrar þjóðar.
Alþb. hefur hér á Alþingi vakið rækilega athygli á þessu umhugsunarefni. Og Alþb. vill í kvöld ljúka þessum umr. frá Alþingi með því að hvetja alla Íslendinga til að hugleiða í alvöru — rólegri og hleypidómalausri alvöru — þá miklu ógn sem felst í því að herstöðin hér hefur sett okkur í brennidepil kjarnorkuvopnakerfis annars stórveldanna. Slík ógn er okkur öllum hættuleg. Hún er börnum okkar hættuleg. Hún stefnir í hættu ekki aðeins efnahagslegu og pólitísku sjálfstæði Íslendinga, heldur einnig gervallri tilveru íslenskrar þjóðar. — Góða nótt.