20.05.1980
Neðri deild: 81. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2916 í B-deild Alþingistíðinda. (2891)
Afgreiðsla þingmála
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég tel mig ekki komast hjá því að taka til máls um þingsköp að gefnu tilefni. Í dag er reglulegur fundardagur í Sþ. og sú venja hefur verið viðhöfð að þriðjudagar væru m. a. notaðir til að svara fsp. Í þingskapalögum, 32. gr., eru skýr ákvæði um hvernig fara eigi með þær fsp. sem lagðar eru fram og hafa verið samþ. á hv. þingi. Þannig stendur á, að ég á þrjár fsp. hér sem ekki hefur fengist svar við. Í eitt skipti gat ég ekki verið viðstaddur vegna veikinda minna, en í fjögur skipti var hæstv. sjútvrh. fjarverandi í embættiserindum, geri ég ráð fyrir, og gat því ekki verið hér til að svara þeim tveim fsp. sem liggja fyrir til hans. Þriðja fsp. mín er hins vegar til hæstv. dómsmrh., sem hefur ekki enn þá gefist tími til að svara, og má vera að það sé eðlilegt vegna veikinda minna umræddan dag. En auk þess ber að hafa í huga að fjöldi mála liggur enn óræddur í Sþ.
Það er ljóst og var auðvitað ljóst í síðustu viku, að það er útilokað að ljúka þingi í dag og þm. eiga því kröfu á að eðlilegu þinghaldi sé fram haldið meðan þing stendur. Þess vegna tel ég að við eigum kröfu á að um þau mál, sem eru annaðhvort hálfrædd eða órædd í Sþ., og þ. á m. fsp. sem á að vera búið að svara, sé haldinn sérstakur fundur í Sþ. Ég óska því eftir því við hæstv. forseta Nd. að hann komi þessari ósk minni áleiðis til forseta Sþ. og þeirra annarra sem virðast ráða öllu um vinnubrögð á hv. Alþ. þessa dagana.