20.05.1980
Neðri deild: 81. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2922 í B-deild Alþingistíðinda. (2895)
160. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Sigurgeir Bóasson:
Herra forseti. Eins og fram kemur á þskj. 550 hef ég leyft mér að flytja brtt. við 4. gr. frv. Till. er á þá leið, að við 1. mgr. 4. gr. bætist eftirfarandi setning: „og skulu greiðslur fara fram í síðasta lagi 10. dag hvers ársfjórðungs.“ Hér er sem sagt lagt til að það verði lögfest, hvenær greiða skuli út olíustyrki.
Ástæðan fyrir þessari till, er í fyrsta lagi sú augljósa staðreynd, að í 40–50% verðbólgu er nauðsynlegt að hafa um það ótvíræð ákvæði hvenær greiðslur fara fram. Þetta þekkjum við öll hér, eins og ákvæði um dráttarvexti af gjaldföllnum, en ógreiddum sköttum bera með sér.
Í annan stað vil ég nefna að hér er um eftirágreiddan ársfjórðungslegan olíustyrk að ræða, sem þýðir að þær krónur, sem húsráðendur fá útborgaðar í olíustyrk, eru verðminni en þær krónur sem þeir greiða olíuna með, en yfirleitt eru olíuúttektir gjaldfallnar 15.–20. næsta mánaðar eftir úttektarmánuð. Þetta fyrirkomulag gerir það auðvitað enn brýnna að um það séu ótvíræð ákvæði hvenær styrkurinn er greiddur.
Síðast en ekki síst vil ég nefna það fyrirkomulag, að húsráðendur fá þennan styrk ekki greiddan beint frá ríkissjóði, heldur greiðir ríkissjóður sveitarfélögum styrkinn og þau síðan húsráðendum. Fyrir húsráðendur er þetta fyrirkomulag óheppilegt því að reynslan sýnir að það getur dregist einn til tvo mánuði eftir að ársfjórðungnum lýkur að styrkurinn sé greiddur út. Reyndar hefur engin heildarathugun verið gerð á þessu, en ég kannaði á þrem þéttbýlisstöðum á Vestfjörðum hvernig þessum greiðslum hefur verið háttað undanfarið. Þá kemur í ljós að greiðslur á olíustyrk fyrir síðasta ársfjórðung 1979 hófust á einum staðnum 15. febr., á öðrum 1. mars og hinum þriðja 15. mars. Greiðslur fyrir 1. ársfjórðung 1980 hófust á einum staðnum 15. maí, en á hinum tveim stöðunum er ekki byrjað að greiða styrkinn enn þá. Þetta ástand sýnir auðvitað, að fyrirkomulagið er algjörlega óviðunandi, og sýnir, að brýnt er að um það séu ótvíræð ákvæði hvenær styrkurinn er greiddur.
Ástæður fyrir þessum mikla greiðsludrætti eru eflaust margar, en aðallega kemur hér þrennt til. Í fyrsta lagi getur dregist að sveitarfélögin hvert fyrir sig sendi rn. nauðsynlegar upplýsingar um fjölda olíustyrkja í hverjum ársfjórðungi. Í öðru lagi getur ríkissjóður dregið að senda greiðslur til sveitarfélaganna. Og í þriðja lagi geta sveitarfélögin dregið útborgun eftir að þau hafa fengið greiðslur frá ríkissjóði. Ég ætla ekki að dæma um hver sé aðalskýringin á þessu, en útkoman er óeðlilegur dráttur vegna þess að það vantar ótvíræð ákvæði um hvenær húsráðendur eiga að fá þennan styrk útborgaðan.
Eins og hv. þm. Halldór Ásgrímsson tók fram.þegar hann mælti fyrir áliti fjh.- og viðskn., hefur n. tekið þessa brtt. til athugunar og vit ég færa henni þakkir fyrir það. Eins og fram kom í máli hv. þm. er n. jákvæð gagnvart efni till., en telur hins vegar réttara að sett verði um þetta reglugerðarákvæði. Hér er um formsatriði að ræða sem ég get í sjálfu sér fallist a, en aðalatriðið er að húsráðendur á olíuhitunarsvæðunum fái þennan styrk greiddan án óeðlilegs dráttar. Í trausti þess, að um þetta verði sett skýr reglugerðarákvæði, mun ég draga þessa till. til baka.