20.05.1980
Neðri deild: 81. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2948 í B-deild Alþingistíðinda. (2913)

160. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Ég vil gera hv. þdm. vitanlegt að því var mjög harkalega mótmælt við mig þegar ákveðinn var fundur eftir útvarpsumræður, eftir eldhúsdaginn í gærkvöld. Mál stóðu þann veg þá, að ég taldi slíkt óhjákvæmilegt. Nú hefur því verið af enn meiri hörku mótmælt að boðað yrði til kvöldfundar í kvöld. Það er eitt ráð til að svo þurfi ekki að verða, og nú bið ég hv. þd. um að hjálpa mér til að svo megi verða.

Eindregin tilmæli eru það frá hæstv. forseta Ed. að hann geti boðað til fundar á eðlilegum tíma á morgun, sem ég hyggst einnig gera í þessari deild, kl. tvö, en til þess að svo megi verða þurfum við að taka eitt mál til afgreiðslu í hv. deild og það er 3. dagskrármálið sem rætt hefur verið allrækilega fyrr í dag. Ég gerist nú svo djarfur í þessum örðugleikum, sem á því eru að ná sáttum og samkomulagi um þinghaldið, að fara fram á það við tvo hv. þdm., sem á mælendaskrá eru, hv. 3. þm. Austurl., frsm. fjh.- og viðskn., og hv. 6. þm. Reykv., að þeir falli frá orðinu, ef aðrir hv. þdm. geta fellt sig við þessa málsmeðferð, þannig að ganga megi til atkv. um það samkomulagsmál sem þetta frv. er þótt brtt. séu að vísu fram bornar, en í grundvallaratriðum er það samkomulagsmál, og að við náum því nú um kvöldmatarleytið að setja nýjan fund til að taka það eina mál á dagskrá, þannig að það nái fullnaðarafgreiðslu í hv. deild. (HÁ: Ég fell frá orðinu. — BÍG: Sömuleiðis.)