21.05.1980
Efri deild: 99. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2965 í B-deild Alþingistíðinda. (2928)
160. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Lárus Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. viðskrh. upplýsti að hann væri að fara á ríkisstjórnarfund sem byrjaði nú eftir nokkrar mínútur. Hann hafði hafið máls hér á öðru dagskrármáli sem ég hefði gjarnan viljað ræða við hann um. Hefði ég viljað óska eftir því, að hann yrði viðstaddur þá umr. Þetta frv., sem hér er nú til umr., heyrir undir hæstv. ráðh., þannig að ég hefði viljað óska eftir því, að hæstv. forseti frestaði umr. tveggja þessara mála þar til hæstv. ráðh. getur verið viðstaddur.
Það er eitt mál á dagskrá í viðbót, sjómannalög, og það væri að sjálfsögðu unnt að taka það til umr. Ég sé enga ástæðu til annars en að gera það. En ég óska eftir því, að umr. um þessi tvö dagskrármál, húsnæðismálin og vörugjaldið, verði frestað þar til hæstv. viðskrh. getur verið við umr.