21.05.1980
Neðri deild: 83. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 2985 í B-deild Alþingistíðinda. (2945)

180. mál, lánsfjárlög 1980

Frsm. 3. minni hl. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Hér eru til lokaafgreiðslu lánsfjárlög og hafa þau dregist mjög úr hömlu og raunar, eins og margoft hefur verið bent á, er afgreiðsla þeirra skýrt lagabrot þar sem samkv. lögum nr. 13 frá 1979 ber að afgreiða þau með fjárlögum. Það skal játað, að afsökun er fyrir því að nokkru að þann veg er háttað afgreiðslu málsins, ef miðað er við hinn stutta starfstíma hæstv. ríkisstj., en ég hygg þó að frv. þetta hafi verið það vel undirbúið að þess vegna hefði mátt leggja það fram og afgreiða með fjárlögunum. Það, sem gerði að málið tafðist og dróst úr hömlu, var einfaldlega að í hæstv. ríkisstj. upphófst reiptog um frv. þar sem rn. og hæstv. ráðh. toguðust á mánuðum saman um innihaldið.

Það lá einnig ljóst fyrir, að lengst af stefndi þetta í hæðir sem menn álitu mjög varhugaverðar og má segja að nokkur bragarbót hafi verið á því ráðin, en fjarri því að vera líðanlegt. Það voru aðallega erlendu lántökurnar sem menn guldu varhug við og er það að vonum, því að þrátt fyrir þessi lánsfjárlög liggur ljóst fyrir að erlendir vextir og afborganir stefna í þær fjárhæðir að nema mun um 18% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, sem er sú viðmiðun sem höfð hefur verið frá upphafi og eðlilegasta viðmiðunin, enda þótt menn bregði því nú fyrir sig að eðlilegt væri að miða þetta við þjóðartekjur. Slíkri upphæð hafa vextir og afborganir erlendra lána ekki náð fyrr eða síðar, þótt það nálgaðist að vísu eitt örstutt tímabil á mesta vandræðatíma sem hér hefur runnið upp á síðari áratugum, árunum 1967 og 1968, vegna þess að þá rýrnaði afli landsmanna um ótrúlegt magn og fjárhæðir þar af leiðandi og viðskiptakjör stórversnuðu og urðu verri en fyrr og síðar.

Það hefur nokkur bragarbót verið á þessu ráðin, eins og ég segi, með lækkun erlendrar lántöku. Þó er að því að gá, að eins og vant er hafa menn brugðið á það ráð, sem ríkisstj. Ólafs Jóhannessonar uppgötvaði á sínum tíma, að lengja árið í 14 mánuði. Það er sem sagt gert ráð fyrir að fé verði til lánsloforða, a. m. k. í Framkvæmdasjóði, svo að ég nefni það sem dæmi, enda þótt ekki eigi að taka féð að láni erlendis fyrr en á nýju ári, en auðvitað sjá menn að það verður ekki til þess að draga úr framkvæmdum, heldur verður það togað út úr viðskiptaböndum til fjármögnunar í bili og í annan stað verður þetta auðvitað til þess að það sneiðist um það sem menn geta haft til ráðstöfunar á næsta ári, þannig að þarna éta menn fyrir sig fram.

Greiðslubyrðin stefnir í þessar fjárhæðir, enda þótt í stjórnarsáttmálanum segi að miðað skuli við u. þ. b. 15% og þá talið eins og jafnan að verið sé að fara að stjórnarsáttmálanum enda þótt við höfum þessar staðreyndir við blasandi. En mismunurinn er hrikalegur því að við erum með stórar tölur í dæminu. Mismunurinn er hrikalegur á því, hvort vaxta- og afborgunarbyrðin er 15% af gjaldeyristekjum okkar eða 18%. Það geta menn séð í hendi sinni þar sem við erum með ótalinna milljarða fjárhæð milli handa.

Þá er enn þess að geta, að nú bendir allt til, raunar blasir það við, að það verði mikill halli á viðskiptajöfnuði, svo menn álíta að kunni að nálgast 20 milljarða kr. Alveg er ljóst að þetta verður viðbót erlendrar skuldasöfnunar og þegar allt er talið saman, þá nálgast, eins og ég segi, vaxta- og afborganabyrðin óbærilega upphæð. — Það er ekki gagnrýnivert út af fyrir sig sem varið er til orkuframkvæmda. Ekki vil ég gagnrýna það, þar sem slík fjárfesting á þegar fram í sækir eftir að stórlétta þessa byrði. Það er að vísu afsökun fyrir þessum háu lántökum að stærsti hluti þeirra gengur til framkvæmda eins og Hrauneyjafossvirkjunar, — rétt er það að vísu, — en staða okkar er afar tvísýn og viðsjárverð svo að ekki sé meira sagt.

Það er eins með frv. til lánsfjárlaga og fjárlögin sjálf, að þær forsendur, sem lagafrv. hvíla á, eru fyrirsjáanlega rangar. Þær verðlags- og kauplagsforsendur, sem þar liggja til grundvallar, eru fyrirsjáanlega alrangar svo að kann að muna helming, þar sem verðlagsforsendur eru um 30% verðbólga, en hún eins og við blasir stefnir í allt aðrar hæðir, sem strax má sjá af því skriði sem framfærsluvísitalan hefur tekið á þessum mánaðamótum. Niðurtalningaráformin eins og hæstv. ríkisstj. hafði sett sér eru brostin úr böndunum gersamlega þannig að nú reikna þeir út sem vit hafa á að lágmark verðbólgustigs kunni að verða 50%. Aðrir telja fullkomna hættu á að skriðið verði enn þá þyngra, milli 60 og 70%. Við sjáum hvað blasir við um þessi mánaðamót í kauplagsmálum. Allir samningar eru lausir. Verkamannafélagið Dagsbrún, sem hefur verið höfuðmótandi launastefna í landinu um áratugaskeið og við hlið þess nú Verkamannasambandið, leggur fram flokkaskipanabreytingu sem fróðir menn telja miklu betri, eðlilegri og skynsamlegri, en að þeirra eigin mati, verkamannafélagsins Dagsbrúnar, þýðir sú flokkabreyting 8% kauphækkun. Þar við bætist síðan krafa Alþýðusambands Íslands um 5% og síðan enn þessi stórskriða, sem ég vil kalla það, hækkun kaupgjaldsvísitölu, sem menn álíta að kunni að nálgast 12%, þ. e. 13.2% framfærsluvísitöluhækkun að frádregnum versnandi viðskiptakjörum, eins og ég hygg að Ólafslög mæli fyrir um. Og það er ekkert undarlegt þótt ríkisstj. sé hugsi og velti fyrir sér með hvaða hætti sé hægt að bregðast við slíkum stórvandamálum, án þess þó að ég ætli að fara að ræða það viðkvæma mál sem kjarasamningar eru eins og nú standa sakir. En ef ekki tekst að finna einhverja skynsamlega lausn sem lýtur að hjöðnun verðbólgunnar og viðnámi í þeim sökum er útlitið dökkt. Ég álít að það ætti að geta fundist slík leið með það innanborðs að hinum lægra launuðu verði hyglað.

Það er alveg ljóst að menn ráða ekki þessa gátu með því eða án þess að taka sanngjarnt tillit til hvernig þeirra afkomu er háttað, eins og kjör þeirra hafa skerst vegna verðlagshækkana og verðbólguflóðsins að undanförnu. Ég held að menn nái aldrei neinu skynsamlegu fram í þeim sökum nema þeir gangi að því með opnum augum að þessu fólki verður að gera til góða. En gamla reynslan er raunaleg, að allt það, sem menn hafa reynt að sjá af til handa hinum lægra launuðu, hefur ætt upp úr öllu kerfinu. Og því miður er það svo, að verkalýðssamtök okkar hafa sjálf ekki getað spornað við fæti í þessu þótt mikill vilji hafi verið fyrir hendi hjá ýmsum þeim sem ella hefðu átt að kunna að ráða ferðinni.

Þá er það um forsendur peningamálaráðstafana okkar og fjárfestinga o. s. frv. Þá eru aðrar forsendur, eins og gengisforsendur þessa frv., rangar að mínum dómi. Það sýnir sú þróun sem við blasir. Eins og staða hraðfrystiiðnaðarins og útflutningsframleiðsluatvinnuveganna er nú er hætt við að lítt verði ráðið við aðhald í gengismálum á næstu mánuðum. Hraðfrystiiðnaðurinn er í besta falli rekinn á núlli, en að meðaltali hygg ég að hag hans sé þann veg háttað nú að heldur hallist á hann en hitt þrátt fyrir gengissig í rykkjum. Þá geta menn séð í hendi sinni hvað við muni taka ef svo fer fram sem horfir um kauplagsmálin. Þess vegna er það enn, að við erum í hættu staddir vegna hinnar erlendu skuldabyrði. Og þótt við séum hér með að ráðast í stórverðmætar framkvæmdir vitum við að slíkur innflutningur nýs fjár til landsins, sem dælt er síðan inn í þessar fársjúku fjármálaæðar okkar, hefur auðvitað gífurleg verðbólguáhrif.

Enn er þess að geta, að hríðversnað hafa vaxtakjör erlendis, svo mjög að um langt árabil má segja að vextir af erlendu fé hafi verið milli 8 og 9%, að meðaltali 83/4%, en nú hefur þetta um það bil tvöfaldast. 16–18% vaxtakjör eru þau kjör sem nú bjóðast á lánamörkuðum sem við höfum tekið lán okkar á. Þetta gerbreytir auðvitað viðhorfinu.

En sem betur fer, og það eru vissulega jákvæð viðhorf líka til í þessu öllu verjum við miklu af þessum fjármunum til lífsnauðsynlegra framkvæmda. Ég get skotið því hér inn í, að ég hef lengi verið þeirrar skoðunar, að t. a. m. til vegamála ætti okkur, ef staða okkar að öðru leyti batnaði frá þeim hörmungum sem nú er, að vera óhætt að taka verulegt fé að láni til varanlegrar vegagerðar. Sparnaðurinn er svo gífurlegur, í beinhörðum gjaldeyri allur saman, að við getum staðið undir stórum fjárfúlgum með óbreyttum gjöldum af umferðinni ef við leggjum stórt undir í þessum sökum. Það þarf ekki annað en rifja upp þann sparnað sem varanleg vegagerð hefur í för með sér: 19–20% sparnað í orkunni, sem öll er innflutt, milli 70 og 80% sparnað á sjálfri bifreiðinni í heild tekið, 170–180% sparnað á hjólbörðum, mismuninn á því að aka á þeim vegum, sem við ökum á yfirleitt, og nýjum vegum með varanlegu slitlagi. Héldum við sköttum á umferðina óbreyttum gætum við þannig staðið undir gífurlegum fjárfúlgum af erlendu fé til þessara framkvæmda. Og ég held að þegar menn ná vopnum sínum í þeim málum verði brugðið á nýtt ráð: Stórútboð verði, jafnvel fyrir erlenda verktaka, til að framkvæma þessar næstmikilvægustu framkvæmdir okkar, sem lagning bundins slitlags er næst á eftir beislun innlendu orkunnar.

Peningamálin eru auðvitað einn snarasti þátturinn sem kemur við sögu þegar við ræðum lánsfjárlögin, og satt best að segja er á því sviði eins og öðrum ákaflega skuggalegt útlit. Sparifjármyndunin hefur skroppið saman ótrúlega mikið. Ég er ekki að segja að sköpum skipti alveg að hæstv. ríkisstj. hefur ekki farið að þeim lögum sem gilda um verðbótaþátt vaxta, það er ég ekki að segja. Ég held að ríkur þáttur í þessu máli sé að fólk hefur enn á ný verið heltekið vantrú á, að nokkurt jafnvægi náist, og hver fjárfesti sem betur getur og það kannske í lítt nauðsynlegum eða ónauðsynlegum hlutum eða að eyðsla hafi beinlínis vaxið með þeirri eftirspurn sem í kjölfarið kemur, — hin óhugnanlegu einkenni verðbólgunnar hafi enn á ný tekið skrið og blasi enn skýrar við. Það óttast ég. Ofan í kaupið hefur bankakerfinu ekki tekist að halda þeim mörkum sem sett voru, þannig að útstreymi úr bönkum eru miklu meira en eðlilegt og skynsamlegt er. Allt eru þetta hin óhugnanlegu einkenni verðbólgunnar, stórvaxandi verðbólgu, sem því miður verður að játa að maður óttast að fari nú í hæðir sem áður eru óþekktar, og vita þá allir hvað við getur tekið.

Vegna þessa ástands í bankakerfinu er viðbúið að herði óskaplega að atvinnuvegunum þegar líða tekur á árið, og ég tala nú ekki um ef reynt verður að halda að genginu þannig að útflutningsatvinnuvegirnir yrðu reknir með svipuðum hætti og með svipaðri afkomu og nú. Þá er hætt við að brysti harkalega í böndunum, nema féð yrði sótt í innlánsstofnanirnar, í bankana. Þar við bætist að ríkið seilist líka sjálft til framfærslu sér inn í bankakerfið, eins og eru áform um í þessu lagafrv.

Nefndin, eins og fram kom í framsögu hv. 3. þm. Austurl., varð ekki sammála um afgreiðslu þessa frv. Við þrír þm. Sjálfstfl., auk mín 1. þm. Reykn. Matthías Á. Mathiesen, og 3. þm. Reykv., Albert Guðmundsson, skiluðum séráliti sem getur að líta á þskj. 561. Við flytjum brtt. þrír saman á þskj. 562.

1. brtt. er við 3. gr., þar sem við tökum orðrétt upp innihald lagagr. sem var í lánsfjárl. afgreiddum 1977 fyrir árið 1978. Ég ætla að víkja nokkrum orðum að þessu efni.

1. minni hl. fjh.- og viðskn. flytur brtt. sem vissulega er mjög í rétta átt. Við flytjum hins vegar brtt. sem hljóðar eins og gamla greinin var. Ég vil fyrsta taka skýrt fram, að ég hafði verið þeirrar skoðunar, að ekki kæmi annað til greina en að hið opinbera, atvinnuvegasjóðirnir og hið opinbera, gæti haft ráðstöfunarrétt á töluverðum hluta af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna. Þetta hefur verið mín eindregin skoðun frá upphafi og hún er ekki breytt. Og ég hallaðist töluvert að þeirri skoðun hér á árunum, að það kynni kannske til þess að draga, að það yrði að lögbinda þetta, vegna þess hversu illa gekk að venja stjórnir lífeyrissjóðanna undir þetta. Menn sjá alveg hvar enda muni ef 110 lífeyrissjóðsstjórnir ættu allar að ráða meðferð þessa fjár. — Allt tal um að ræna þá sjálfstæði sínu og ráðarétti eru út í hött. — Þá mundi enda með því að við þyrftum enga fjvn. til að skipta þessari hniskju sem þar er á borðum, því að það stefnir allt í þá átt að þarna verði um meginsparifjársöfnun landsmanna að tefla. En eftir þá reynslu, sem fengin er af framkvæmd þessara lagagr. sem settar voru 1977, hefur snarbreyst viðhorfið í þessum efnum. Lífeyrissjóðirnir hafa aukið kaup sín á skuldabréfum, ekki síst vegna tryggingaákvæða þeirra og vaxtakjara, þannig að nú hafa náðst fram kaup þeirra á skuldabréfum sem nokkurn veginn samsvara því sem áætlanir stóðu til. Þess vegna er núna miklu síðri ástæða til að lögþvinga þessi kaup en var áður fyrr. Og eftir reynslunni, t. d. á síðasta ári um sölu skuldabréfa Framkvæmdasjóðs, get ég um það dæmt að ástæðulaust var að njörva þetta niður með lagagr. eins og þeirri sem gat að líta í upphaflegu frv. til lánsfjárl., 3. gr. En ég legg sem sé áherslu á að þá getur hæstv. ríkisstj. á hverjum tíma hætt að stjórna fjármunum þjóðarinnar ef allt þetta fé á að leika lausum hala. Og valdhafar á hverjum tíma þurfa ekki að smjaðra svo gríðarlega fyrir þessum 110 stjórnum lífeyrissjóða að þeir tali ekki einarðlega í þessu efni. En mismunur á okkar brtt. og brtt. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. er einvörðungu sá, að undir 40% skylduna falli einnig það sem þeir kynnu að vilja kaupa af félögum lífeyrissjóðanna. Ég hygg að þessi breyting ætti engum sköpum að þurfa að skipta og mundi verða litið með velvild og þakksamlega á þá breytingu af stjórnum lífeyrissjóðanna, því að þá hefðu þeir fengið fram það sem þeir hafa farið fram á og ástæðulaust er að neita þeim um. Þeir hafa sýnt að þeir skilja nauðsyn þess arna. Hin frjálsu kaup í þessu efni og nokkurn veginn frjáls ráðstöfun lífeyrissjóðanna með þessum hætti hefur náð að festast í sessi og ástæðulaust að hafa þetta með öðrum hætti, eins og mál hafa skipast nú. — Þetta var um 1. brtt. okkar í 3. minni hl. fjh.- og viðskn.

Þá er 2. brtt. okkar. Hún er þess efnis, að 13. gr. falli brott, og er nú náið nef augum eins og jafnan fyrr. Það er greinin um að þrátt fyrir ákvæði laga um Framkvæmdastofnun ríkisins skuli framlag til Byggðasjóðs á árinu 1980 eigi fara fram úr því sem þar segir og eins að ætluð lántaka, sem var 2.5 milljarðar samkv. fjárlögum, verði lækkuð í 1.5 milljarða.

Nú er frá því að segja, að stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins hafði í sjálfu sér haft í huga að nota ekki alla heimild fjárlaga til 2500 millj. kr. erlendar lántöku, af því að það þjónar ekki þeim tilgangi sem Byggðasjóðurinn yfirleitt starfar eftir. Eins og fram hefur komið hefur stjórnin nú lagt til að af þessu fé yrði 700 millj. varið til varanlegrar vegagerðar, sem eingöngu er bundið við áhuga stjórnarinnar á varanlegri vegagerð og enginn aukaáhugi því samfara, eins og margsinnis hefur verið undirstrikað og verður ekki of oft gert. En það hafði verið áform stjórnarinnar að notfæra sér alls ekki þessa heimild í fjárl., þannig að þótt þessi grein væri ekki í frv. mátti hæstv. ríkisstj. treysta því, að þessi mill arður yrði ekki notaður, það yrði ekki gripið til hans. Ég hygg að hæstv. ríkisstj. hafi farið nokkuð nærri um það, þannig að þetta breytir engu nema í niðurstöðunum. Þetta breytir engu í raun. Þeir eru aðeins að fá betra útlit á þessu með því að niðurstöðutalan verður 1 milljarði lægri í lánsfjáráætluninni í erlendum lántökum. En það hefði engu breytt í eyðslu. Þetta vissu þeir, þannig að þetta er bara mont og þarf ekki að vera þarna og fyrir því er þetta lagt til. Ef ríkisstj. skyldi á hinn bóginn detta í hug á árinu, vegna mjög erfiðs atvinnuástands einhvers staðar í landinu, að grípa til þessa milljarðs er auðvitað allur varinn góður í þeim efnum, þótt ég hins vegar telji glapræði að stefna í hærri erlendar lántökur og alls ekki til þeirra verkefna sem Byggðasjóðurinn að öðru jöfnu á að sjá fyrir, — kannske síst. En sú heimild væri þó til ef í nauðir ræki, og allt er atvinnuútlitið það óvisst og fjárhagsafkoma okkar að það út af fyrir sig kynni að vera búmannlegt að hafa þessa heimild, þótt menn hafi einsett sér, eins og ég vil meina, að gripa alls ekki til hennar.

Þá leggjum við til í þriðja lagi að 19. gr. falli brott. Það er ákvæði um skerðingu á Byggingarsjóði verkamanna. Það er mjög sérkennilegt mál og hér eru greinar hver á fætur annarri um að þrátt fyrir hinar og þessar lagagreinar, kannske í hinum viðkvæmust málum, eru lagðar til stórskerðingar. Og hvað verður um þetta fé? Það rennur beint í ríkissjóðshítina. Annað mál væri ef það væru ákvæði sem segðu að þrátt fyrir þessi og þessi ákvæði laga um Erfðafjársjóð, um Byggingarsjóð verkamanna, um Bjargráðasjóð o. s. frv. skyldi ekki vera framkvæmt fyrir meira en segði og mismunurinn þá lagður fyrir upp á seinni tímann og sparað með þeim hætti. En ekki er því að heilsa, heldur á öll skerðingin á þessum viðkvæmu málaflokkum að fljóta til eyðslu í ríkissjóði. Á þessu var byrjað að marki í tíð stjórnar Ólafs Jóhannessonar, 13 mánaða stjórnarinnar, og svo er ekki að því að spyrja í þessu kerfi að allir fara að éta úr sama dallinum, þá þiggja þeir þetta ráð. Mannborlegra væri þá að breyta lögum en hafa þessa handabakavinnu í frammi. Og það sem meira er: þótt menn þykist hafa sett undir þann leka, eins og hv. 3. þm. Austurl., frsm. 1. minni hl., lýsti hér, var nú tilhlaupið það, að þeir þóttust hafa greitt of mikið úr félmrn. vegna Byggingarsjóðs verkamanna á síðasta ári, sem nam, ef ég man rétt, 298 millj. kr., og það var komið bréf um að þær milljónir yrðu rukkaðar til baka — þessar 298 millj. kr. — á þessu ári þannig að Byggingarsjóður verkamanna og framlag ríkisins í hann mundi þá nema eitthvað rúmlega 130 millj. kr. Nú eru fastir samningar og lög um þetta, fastir samningar við sveitarfélögin um að leggja til jafns á móti framlagi ríkisins til þessa Byggingarsjóðs. Svo stendur auðvitað í stjórnarsáttmálanum á 2. síðu, því að ég er farinn að kunna töluvert í honum, að það eigi að greiða fyrir byggingu til verkamannabústaða, þeir ætli að greiða fyrir því — eða til að draga úr almennum peningalaunahækkunum er ríkisstj. reiðubúin til þess, eins og þarna segir m. a., að auka verkefni við byggingu verkamannabústaða. Svo eru efndirnar þær, að byrjað er á því að krukka í þetta með þessum hætti eins og segir í 19. gr. lánsfjárlaga.

4. brtt okkar er um að 21. gr. falli brott. Þar er um stórskerðingu á Erfðafjársjóði að tefla. Allir vita hvað hann hefur umleikis og hann fæst við: endurhæfingarmálin, byggingarmál aldraðra. Ákaflega viðsjárvert er að draga þann veg úr tekjum hans. Þær eru áætlaðar 700 millj. kr., kann að vera nokkuð of í lagt á þessu ári, en þarna er ætlast til að framlag til hans fari ekki fram úr 327.5 millj. kr. Ég held að menn verði að gjalda varhug við að tíðka þessa aðferð. Eins og ég segi: Þetta er svo ómannborlegt, öll þessi afgreiðsla mála, að við megum til með að reyna að finna leið til þess að þetta þurfi ekki að verða með þessum hætti í framtíðinni. Tökum þá þessi mál til rækilegrar endurskoðunar og breytum lögum sem að því lýtur, en að ríkið seilist hvarvetna til, þar sem eitthvað drýpur af peningum, og sópi inn í ríkissjóðshítina er með öllu ólíðanlegt.

Eins og ég segi er það að mínum dómi mjög skapfellilegt að segja sem svo, að til ráðstöfunar úr Erfðafjársjóði skuli ekki vera nema 327 millj. á árinu, það, sem kemur í hann umfram það, skal leggjast á vexti, það skal ávaxtað. Það væri hin rétta aðferð. Þá væri hægt að gripa til þess seinna, þegar menn sjá færi á því að auka framkvæmdir í þessum efnum, þegar dregur úr hinni almennu spennu á öllum sviðum hjá okkur. Sú aðferð væri ákaflega hugnanleg og þyrfti að athuga það einhvern tíma að leggja einhvern hlut fyrir af þessum ósköpum, en ekki ná í hvern einasta eyri í ríkissjóðshítina.

Svo er 5. till. okkar. Hún er um að 22. gr. falli brott, þ. e. um framlagið til Bjargráðasjóðs. Ég hef ekki fleiri orð um það. Ég hygg, að það mál verði tekið sérstaklega til umr. hér undir síðari dagskrárlið, og veit raunar að hv. 2. þm. Norðurl. e. hefur skoðanir á því máli.

Og svo er lokabrtt. um að 23. gr. falli brott. Það er greinin um skerðingu á framlagi ríkissjóðs til Framkvæmdajóðs þroskaheftra. Það er lagst lágt þegar menn seilast svona um hurð til lokunar, eins og ég vil kalla það.

Fulltrúar Sjálfstfl. leggja auðvitað ekki til að lánsfjárlög í sjálfu sér verði felld, því að lánsfjárfrv. þarf að lögfesta. En við leggjum áherslu á þessar brtt., sem ég hef hér flutt, og leggjum áherslu á það auðvitað að ný, breytt og betri vinnubrögð verði viðhöfð í framtíðinni um afgreiðslu þessara lífshagsmunamála okkar eins og afgreiðsla fjárl. og lánsfjárl. er hverju sinni.