21.05.1980
Neðri deild: 83. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3020 í B-deild Alþingistíðinda. (2951)
180. mál, lánsfjárlög 1980
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég vil gera hv. þdm. grein fyrir því verklagi sem ég hyggst hafa á þessum kvöld- og fyrirsjáanlega næturfundi. Það verður gerð tilraun til þess að 3. og 4. dagskrármálið, skráning lífeyrisréttinda og lánsfjárlög, fái fullnaðarafgreiðslu í hv. d. Þá verður gerð tilraun til þess að 5. og 6. dagskrármálið nái fullnaðarafgreiðslu í þingi. Enn verður gerð tilraun til þess að 8. málið nái slíkri afgreiðslu og að 9. málið gangi til nefndar. Á nýjum fundi mundu koma á dagskrá húsnæðislög og sönnun fyrir dauða manna.