21.05.1980
Neðri deild: 83. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3020 í B-deild Alþingistíðinda. (2952)
180. mál, lánsfjárlög 1980
Steinþór Gestsson:
Herra forseti. Það voru til þeir landsmenn sem töldu það fagnaðarefni, að ríkisstj. Gunnars Thoroddsens var mynduð um mánaðamótin janúar — febr. Þeir fylltust bjartsýni og ánægju þegar stjórnarsáttmáli ríkisstj. kom fyrir almenningssjónir. Þar segir að ríkisstj. muni berjast gegn verðbólgunni með öllum tiltækum ráðum, aðhaldsaðgerðum í peningamálum og ríkisfjármálum, svo að nokkuð sé nefnt. Fljótlega fór þó að bera á því, að ákvarðanir ríkisstj. voru ekki í samræmi við yfirlýsta stefnu og fyrirheit í stjórnarsáttmála. Fjárlagagerðin beindist fyrst og fremst að því að auka á þenslu í ríkiskerfinu og að auknum kostnaði við stjórnkerfi landsins og ríkisstofnana. Og enn skýrist það fyrir almenningi, að aðhalds gætir ekki í ríkisfjármálum, eins og það frv. til lánsfjárlaga, sem hér er til umr., er ljósast vitni um.
Til þess að átta sig á því, hvort ástand efnahagsmála hafi breyst svo í þessu landi að ríkisstj. sé óhætt að tefla á tæpt vað í ríkisfjármálum, þykir mér rétt að rifja upp nokkur atriði um hagvöxt að undanförnu og horfur í efnahagsmálum. Mér þykir rétt að vitna hér til nokkurra atriða varðandi þessi mál sem komu fram í ræðu dr. Jóhannesar Nordals seðlabankastjóra sem hann flutti á ársfundi bankans. Þar kemur þetta fram m. a., með leyfi hæstv. forseta:
„Nokkuð dró úr hagvexti á árinu 1978 miðað við undanfarin tvö ár. Samkv. áætlunum Þjóðhagsstofnunar var aukning þjóðarframleiðslu á árinu 1979 2.3%, en hún hafði reynst 4.4% árið áður, en 6% árið 1977. Þessi útreikningur á breytingu raunverulegrar þjóðarframleiðslu milli ára byggist á færslu til 1969-verðlags. Telur Þjóðhagsstofnun að framleiðsluaukning hafi verið um það bil 1% meiri eða nálægt 3.4% á síðasta ári, ef miðað væri við 1978-verðlag. Samkv. því er líklega raunhæfara að miða við það að hagvöxtur á s. l. ári hafi verið yfir 3%, sem þó einnig er verulega fyrir neðan meðalhagvöxt s. l. áratugs, en á árunum frá 1970–1979 er talið að meðalvöxtur þjóðarframleiðslu hafi verið 4.7%.“
Og enn segir: „Það má fyrst og fremst þakka mikilli framleiðsluaukningu í sjávarútvegi, að nokkur teljandi aukning varð á s. l. ári í þjóðarframleiðslu er vegið gæti nokkuð á móti þeirri tekjurýrnun sem þjóðarbúið varð fyrir vegna hækkunar olíuverðlags. Heildarfiskaflinn jókst enn um nálægt 5% og varð rúmlega 1630 þús. tonn sem er meira en nokkru sinni fyrr. Magnaukning sjávarvöruframleiðslunnar í heild er hins vegar talin hafa verið 12–15% miðað við fast verðlag. Þrátt fyrir verulegar aflatakmarkanir fór fiskaflinn á árinu þó nokkuð fram úr því sem talið hafði verið ráðlegt ef tryggja ætti ekki aðeins viðhald, heldur einnig örugga uppbyggingu helstu fiskstofna í kringum landið. Er ljóst orðið að fiskveiðistefnan og val stjórntækja henni til framkvæmda er orðið eitt vandasamasta viðfangsefni í þjóðarbúskap Íslendinga, þar sem bæði er um að tefla að takmarka fiskveiðar við það magn, sem gefur hagstæðasta nýtingu fiskstofna til langs tíma, og stuðla jafnframt að því að fiskiflotinn sé rekinn og nýttur með sem hagkvæmustum hætti.
Ef við lítum á framleiðsluþróun annarra atvinnuvega kemur í ljós að hún var mjög mismunandi á s. l. ári. Þannig mun iðnaðarframleiðslan hafa vaxið um 4–5%, sem er svipuð aukning og árið áður, en hins vegar dróst landbúnaðarframleiðslan verulega saman eða um 5–6%, einkum vegna erfiðs árferðis, en árið áður hafði reynst einstaklega hagstætt til búskapar. Loks benda upplýsingar til þess, að örlítið hafi dregið úr byggingarstarfsemi á árinu.“
Af þessum tilvitnuðu orðum má sjá hversu mikil áhrif það hefur á efnahagsástandið og ég tala nú ekki um jafnvægi í gjaldeyrisbúskapnum, hvernig fer um höfuðatvinnuvegi þjóðarinnar. Og eins og þessi orð bera með sér erum við í mikilli óvissu með sjávarútveginn. Þessi tilvitnuðu orð benda einnig til þess, að enn sé full þörf á og vaxandi að hafa fulla gát á ríkisfjármálunum og afkomu atvinnuveganna svo að jafnvægi haldist til frambúðar. Erfiðri stöðu í viðskiptum okkar við útlönd var mætt á undangengnum árum, og sérstaklega þá 1979, með erlendum lántökum, m. a. hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Enn er ógreitt til hans um 18 milljarðar kr. og verður meginhluti þeirrar skuldar að greiðast á þessu og næsta ári. En um erlendar lántökur segir svo í ræðu seðlabankastjórans, sem ég vitnaði til áðan og mig langar að vitna til aftur í örstuttu máli, með leyfi hæstv. forseta:
„Erlendar lántökur voru enn mjög miklar á árinu 1979 og námu innkomin lán 57 milljörðum kr., reiknað á meðalgengi ársins. Afborganir eldri lána námu samtals 28.3 milljörðum, svo að skuldaaukningin á árinu varð 28.7 milljarðar. Í árslok voru heildarskuldir þjóðarbúsins komnar í 335 milljarða kr. reiknað á árslokagengi, sem fært til meðalgengis ársins nemur um 35% af þjóðarframleiðslu, sem er örlítið hærra hlutfall en undanfarin þrjú ár, en þetta hlutfall hefur verið tiltölulega stöðugt síðan á árinu 1976. Einnig varð nokkur hækkun á greiðslubyrði af erlendum lánum á árinu, en afborganir og vextir námu um 14.2% af tekjum þjóðarbúsins af útfluttum vörum og þjónustu, en s. l. fimm ár hefur þetta hlutfall verið á bilinu 13–14% af tekjum. Þótt þessar tölur sýni að litlar breytingar hafi orðið síðustu árin á skuldabyrði þjóðarbúsins miðað við framleiðslu og útflutningstekjur bendir ýmislegt til þess að greiðslubyrði muni þyngjast verulega á þessu og næstu árum ef svo fer fram sem horfir. Koma þar m. a. til áhrif af hækkandi vöxtum og styttri lánstíma á erlendum lánamörkuðum, en jafnframt greiðast ört niður lán sem tekin voru þegar kjör voru mun hagstæðari. Er af þessum ástæðum full þörf áframhaldandi aðhalds um erlendar lántökur, eins og síðar mun að vikið, en hitt skiptir þó ekki minna máli, að þær framkvæmdir njóti forgangs til erlends lánsfjár sem líklegar eru til þess að bæta greiðslugetu þjóðarbúsins í framtíðinni, annað hvort með aukningu útflutningsframleiðslu eða lækkun innflutnings.
Mikilvægt er að greiður aðgangur að erlendu lánsfé verði ekki til þess að draga úr fjárhagslegu aðhaldi og leiði þannig til aukinnar neyslu eða félagslegra útgjalda sem með réttu móti ætti að greiða af tekjum líðandi stundar.“ Ég vil endurtaka: Mikilvægt er að greiður aðgangur að erlendu lánsfé verði ekki til þess að draga úr fjárhagslegu aðhaldi og leiði þannig til aukinnar neyslu eða félagslegra útgjalda, sem með réttu móti ætti að greiða af tekjum líðandi stundar.“
Í beinu framhaldi af þessum tilvitnuðu orðum seðlabankastjóra um vaxandi erlendar skuldir og samanburð á vaxtabyrði ríkisins og útflutningstekjum ríkisins er það alvarlegt umhugsunarefni, sem greint er frá í fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ríkisstj. fyrir árið 1980, að erlendar lántökur verði í heild 85.5 milljarðar kr., en endurgreiðslur eldri lána verði um 46 milljarðar kr., þannig að skuldabyrði þjóðarinnar mun aukast um 39 milljarða kr. á árinu 1980. Ekki ber þetta vott um aðhaldsaðgerðir hjá ríkisstj. og ekki ver þetta vott um að ríkisstj. virði nokkurs þær aðvaranir sem ráðgjafarstofnun hennar setur fram, þegar formaður bankastjórnarinnar telur það mikilvægast að auðfengið og aukið erlent lánsfé dragi ekki úr þjóðhagslegu aðhaldi og leiði þannig til aukinnar neyslu og félagslegra útgjalda, því að það er öllum mönnum ljóst, að slíkar erlendar lántökur auka á spennu í þjóðfélaginu og valda því, að torveldara er en ella að hafa vald á verðbólguþróuninni.
Það liggur fyrir, þegar bornar eru saman upplýsingar Seðlabanka Íslands og áform um erlendar lántökur skv. lánsfjáráætlun fyrir árið 1980, að heildarskuldir þjóðarbúsins í árslok verða orðnar um 375 milljarðar kr., og má áætla að þær séu þá komnar á það stig í hlutfalli við þjóðarframleiðslu að nálgist hættumörk þegar tekið er mið af horfum í framleiðslu þjóðarinnar og viðskiptakjörum hennar. Ég vitnaði áðan í orð seðlabankastjóra, dr. Jóhannesar Nordals, þar sem hann sagði að greiðslubyrði af erlendum lánum á árinu 1979 hefði reynst vera 14.2% af tekjum þjóðarbúsins af útfluttum vörum og þjónustu og hefði vaxið nokkuð frá því sem greiðslubyrðin hafði verið næstu fimm árin á undan. Nú áætlar Seðlabankinn að á árinu 1980 verði greiðslubyrði af erlendum skuldum rúmlega 16% af útflutningstekjum ríkisins. Það er því ekki að tilefnislausu, að eins konar afsökun er sett fram af ráðh. í skýringum með lánsfjáráætlun, þegar hann ræðir greiðslubyrðina og segir: „Ástæða er til að ætla að greiðslubyrði fari ekki hækkandi úr hófi fram á næstu árum, ef rétt er á málum haldið.“
Ég vil sannarlega taka undir það með hæstv. ráðh., að þróun atvinnuveganna hér á landi verði hagstæð á næstu tímum svo að þjóðinni farnist vel. En ég ber nokkurn ugg í brjósti þar sem ég treysti því varla að fenginni reynslu að rétt verði á málum haldið af þeirri ríkisstj. sem haft hefur taumhaldið um sinn.
Oft hefur það verið sagt, að ekki væri ástæða til að óttast erlendar lántökur þegar fjármunum er varið til arðbærra framkvæmda og gjaldeyrissparandi, og það mun satt vera. En í þessu tilfelli er ekki því að heilsa. Í ríkum mæli og vaxandi stækkar hlutur ríkisgeirans, og allt bendir til þess, að fyrir lánakosti einstakra stofnana og fyrirtækja sé illa séð, þar sem rekstraraðstaða þeirra er í mörgum tilfellum skert svo að erlend lán koma ekki að notum. Þessi hlið málsins hefur verið tekin til meðferðar og ég sé því ekki ástæðu til að ganga í verk þeirra manna, sem um þetta hafa rætt hér á undan mér, og orðlengi það ekki frekar.
Ég gat þess í upphafi máls míns, að ýmsir hefðu fagnað tilkomu hæstv. ríkisstj. Þess verður nú vart, að glýjan sé smám saman að renna af augum manna, og sannarlega er frv. það til lánsfjárlaga, sem við ræðum hér í Nd., ljósasta ráðið til þess að menn átti sig. Ríkisstj. stefnir að stórauknum ríkisafskiptum, eins og bent hefur verið á af ræðumönnum Sjálfstfl. við þessa umr. Á sama tíma og framkvæmdir hins opinbera eru stórauknar er þrengt svo að lánamarkaði atvinnuveganna að þeir munu að óbreyttu standa á barmi rekstrarstöðvunar og uppgjafar þegar á árið líður. Ríkisstj., sem stefnir svo gersamlega í gagnstæða átt við það sem heilbrigð skynsemi vísar og sérfræðingar telja að fara skuli, — sú ríkisstj. er á glapstigum og leiðir yfir þjóð sína myrka og erfiða daga þegar hún hefur tekið að sér og lofað að leiða hana út úr erfiðleikunum.
Þetta frv. sýnir það ljóslega og sannar, að ríkisstj. hefur brugðist vonum manna. Hún hefur brugðist þjóð sinni. Hún hefur gengið á loforð sín, sem gefin voru í stjórnarsáttmála hennar, og hún stefnir í tvísýnu afkomumöguleikum alls almennings í þessu landi.