21.05.1980
Neðri deild: 83. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3030 í B-deild Alþingistíðinda. (2954)
180. mál, lánsfjárlög 1980
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Það er nú orðið allfámennt hér í d., en engu að síður tel ég rétt að fram komi hér, áður en umr. lýkur, nokkur atriði sem ég tel nauðsynlegt að fram komi varðandi fjárfestingar- og lánsfjáráætlun fyrir árið 1980.
Í þessari fjárfestingar- og lánsfjáráætlun er byggt á þjóðhagsspá, m. a. varðandi viðskiptakjör, og ég hlýt að tjá mig samþykkan því sem segir á bls. 6 í þessari áætlun, að sú spá sé reist á nokkurri bjartsýni.
Mikilvægur liður í viðskiptakjörunum er, eins og kunnugt er, olíuverð, og byggt er á olíuverði á síðari hluta árs líku því sem var samkv. Rotterdam-skráningu í apríl s. l., en hefur hækkað mjög verulega síðan. Það er erfitt að gera sér grein fyrir hver niðurstaðan verður að lokum varðandi olíuverð. Við höfum að vísu samið um kaup frá Bretlandi á nokkru magni af gasolíu, og þótt þar sé byggt á annarri verðviðmiðun er ekki líklegt að verðið verði að sinni mjög frábrugðið Rotterdam-verðlaginu, þannig að litlar líkur eru til þess að olíuverðið verði hagstæðara en þarna er gert ráð fyrir.
Þá er gert ráð fyrir að útflutningsverðið hækki líkt og á liðnu ári fyrir að útflutningsverðið hækki líkt og á liðnu ári eða um 8%. Það gæti vissulega farið á annan og verri veg. Að vísu segja menn að verðlag á Bandaríkjamarkaði geti hækkað og líkur séu jafnvel til þess vegna þess hvað verðbólga hefur vaxið þar og verð almennt hækkað í Bandaríkjunum. En því miður hefur borið á sölutregðu og birgðasöfnun í Bandaríkjunum á framleiðsluvöru okkar, frystum fiski, og upplýst er að saman dregur um verðlag á íslenskum frystum fiski og frystum fiski t. d. frá Kanada og öðrum samkeppnislöndum okkar. Sá munur, sem hefur verið talsverður á útflutningsverðlagi okkar og annarra keppinauta okkar, er að minnka og boðar því ekki nein góð tíðindi fyrir okkur. Við skulum samt sem áður vona að betur fari en á horfist og spáin, sem byggt er á í þessari fjárfestingar- og lánsfjáráætlun, geti staðið. En hún er reist á nokkurri bjartsýni, eins og segir á bls. 6, það fer ekki á milli mála.
Þegar á þetta er litið, þá er athyglisverð sú spenna í opinberum framkvæmdum og útgjöldum sem spáin ber með sér. Á sama tíma og búist er við að þjóðarframleiðsla aukist um aðeins 1–2% og þjóðartekjur standi í stað í heild, en lækki um 1% á mann, er gert ráð fyrir að fjármunamyndun aukist um nær 7% og samneysla um 2%. Eins og kunnugt er er öll hækkun fjármunamyndunar í opinberum framkvæmdum, sem aukast um 21% að magni, en fjármunamyndun atvinnuveganna stendur í stað og fjármunamyndun í íbúðarhúsum er talin minnka um 3%. Það er auðvitað athyglisvert, að fjármunamyndun atvinnuveganna stendur í stað um leið og við erum að tala um nauðsyn aukinnar framleiðslu og framleiðni. Stöðvun fjármunamyndunar atvinnuveganna boðar ekki gott í þeim efnum út af fyrir sig. Þá skýtur það nokkuð skökku við yfirlýsingar stjórnarflokkanna um nauðsyn aukinna íbúðabygginga og stórorðar yfirlýsingar þeirra um að boðuð húsnæðislöggjöf ryðji braut auknum byggingarframkvæmdum, að á sama tíma skuli gert ráð fyrir samdrætti í íbúðarhúsabyggingum. En auðvitað er aðalatriðið í þessum efnum að aukin fjármunamyndun og aukin samneysla gerir það að verkum, að rúm fyrir einkaneyslu er ekki fyrir hendi og þar með er ekki unnt að bæta kjör launþega í landinu eða jafnvel að tryggja óbreyttan kaupmátt launa nema þá að stefna viðskiptajöfnuði landsmanna í stórfelldari halla en ráð er fyrir gert samkvæmt spá nú.
Það skal fram tekið, að 21% magnaukning opinberra framkvæmda er að miklu leyti í rafvirkjunum, rafveitum og hita- og vatnsveitum, og vonandi verða þessar framkvæmdir til þess að draga úr gjaldeyriseyðslu í framtíðinni, þótt þær kalli nú á auknar erlendar lántökur. En það verður þó að segja eins og hv. síðasti ræðumaður benti á, hv. þm. Halldór Blöndal, að það skýtur skökku við að neita orkufyrirtækjum um nauðsynlegar verðhækkanir til þess að standa að einhverju eða öllu leyti undir framkvæmdum með innlendu fé og treysta í stað þess á erlendar lántökur sem þegar til lengdar lætur hljóta að hækka verðlag orkunnar til íslenskra neytenda meira en þyrfti.
Ég gat þess, að það er vissulega teflt í ógæfuátt að því er snertir stöðuna út á við. Halli á viðskiptajöfnuði getur orðið samkv. spánni um 16–20 milljarðar kr. og það þrátt fyrir að teflt er á tæpasta vað varðandi þorskveiðar og viðhald þorskstofnsins. Ég þarf ekki að rekja það, að samkomulag var um það meðal hagsmunaaðila í sjávarútvegi og sjútvrh., að því er kunngert var, að miða þorskafla við 350 þús. tonn þegar fiskifræðingar töldu óvarlegt að veiða meira en 300 þús. tonn, en nú sýnast allar spár byggja á 380–400 þús. tonna þorskafla. Í þessu efni er gefið eftir, látið undan síga, gengið á fjársjóði framtíðarinnar, eins og ég hef komist að orði. Og þrátt fyrir þennan mikla þorskafla, sem við vitum ekki hvaða geigvænlegu afleiðingar kunni að hafa í framtíðinni, jafnvel þegar á vetrarvertíð á næsta ári, er um vaxandi viðskiptahalla að ræða sem leiðir af sér auknar erlendar lántökur, þannig að greiðslubyrði af löngum erlendum lánum getur orðið á næsta ári 18–19% af útflutningstekjum. Við höfum hingað til talið of hátt að þessi greiðslubyrði nemi 13–14% af gjaldeyristekjum, og þess vegna er hér um mikið stökk að ræða þegar við nálgumst það að fimmta hver króna í gjaldeyristekjum fari til þess að greiða skuldir: afborganir og vexti.
En e. t. v. er áætlunin um verðlagsbreytingar gagnrýnisverðust við þjóðhagsspána. Sú áætlun byggist á því, að verðbreytingar frá maí til ágúst og ágúst til nóv. verði í samræmi við markmið ríkisstj., þ. e. 7% fyrra tímabilið og 5% hið síðara. Ef þetta rættist ættu verðbreytingar frá upphafi til loka árs að vera innan við 40%, en meðalhækkun á milli áranna 1979 og 1980 nálægt 50%. Þetta er að sjálfsögðu byggt á því, að engar grunnkaupshækkanir eigi sér stað, en gerir að auki ráð fyrir því, að sambandið milli fyrri launa og verðhækkana og síðari verðhækkana verði allt annað en það hefur verið. Það er m. ö. o. gert ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir, þ. á m. útflutningsaðilar, taki á sig allmiklu hærri hluta kostnaðarhækkana en verið hefur. Ekkert er á það minnst, hvaða dilk þetta muni draga á eftir sér, en um víðtækar afleiðingar á rekstrar- og lánsfjárþörf þessara aðila hlýtur að verða að ræða. Nú er það upplýst, að verðhækkanir verða langtum meiri, 13.2% hækkun á framfærsluvísitölu, eins og kunnugt er, og verðbætur á laun verða væntanlega 11.7%. Ef að líkum lætur hlýtur þetta að leiða til nýrrar fiskverðsákvörðunar, og ef að venju fer er fiskverðshækkunin ekki fjarri því sem verðbætur á laun reynast. Ef um það er að ræða munu kostnaðarliðir fiskvinnslunnar í landinu hækka um 11% hvað snertir 75% af rekstrargjöldum fiskvinnslunnar, en auðvitað koma til viðbótar hækkanir á fjórðung rekstrargjaldanna sem eftir er, ekki ósvipaðar þeirri hækkun sem fellur 3/4 hlutana. Í kjölfar þessa er óhjákvæmilegt, ef ekki verður um stöðvun fiskvinnslu og fiskveiða að ræða, að hreyfing komist á gengið.
Núverandi stjórnvöld létu í það skína þegar þau tóku við, að óþarfi væri að hreyfa gengið frá því í byrjun febrúarmánaðar s. l. vegna afkomu fiskvinnslu eða fiskveiða. Þrátt fyrir digurbarkaleg ummæli hæstv. forsrh. um, að ekki yrði um neinar gengisbreytingar að ræða, og jafnvel enn ákveðnari yfirlýsingar af hálfu hæstv. viðskrh. hefur reynslan orðið sú, að yfirlýsingar þessara tveggja ráðh. hafa reynst dauðar og ómerkar. Þróunin hefur orðið sú, að gengissig hefur orðið með þeim hætti að gengið er nú um 12–15% lægra en var í byrjun febrúarmánaðar. Hæstv. viðskrh. orðaði það svo í upphafi, þegar um 3% gengisfellingu var að ræða, að þar væri um að ræða gengissig í einu stökki eða eitthvað á þá lund. Það liggur í augum uppi, að þessi verður þróunin á næsta þriggja mánaða tímabili ef svo heldur fram sem horfir, og það verður að teljast meira en lítill ábyrgðarhluti af hálfu Þjóðhagsstofnunar og Seðlabanka að láta slíkar áætlanir frá sér fara án frekari aths. en gerðar eru á bls. 7–8. Það sýnist vera samkv. fyrirskipun ríkisstj. að byggja á gerviforsendum um verðlagsbreytingar það sem eftir er ársins í stað þess að byggja á sjálfstæðum áætlunum og athugunum sem þessar stofnanir, Þjóðhagsstofnun og Seðlabanki, eru skyldugar til þess að gera ef þeim á að treysta.
Þá er það ekki síður athyglisvert í sambandi við fjárfestingarlánasjóðina, að útlán þeirra eiga að aukast allmiklu hægar á árinu 1980, eða um 30%, heldur en á árinu 1979, þegar aukningin var um 50%, og 1978, þegar aukningin var 43%. Ég vík e. t. v. að því síðar, en af þessu má ljóst vera að gert er ráð fyrir að atvinnuvegirnir og atvinnufyrirtækin fái ekki samsvarandi aukningu í lánsfé frá fjárfestingarlánasjóðnum og verðbólguvöxturinn er talinn munu vera, jafnvel þótt byggt sé á hinum lágu tölum um vöxt verðbólgu sem þjóðhagsspáin byggir á og þegar er lýðum ljóst að er óraunhæf með öllu.
Í þessari fjárfestingar- og lánsfjáráætlun eru höfð allmörg orð um erfiðleika á öflun innlends lánsfjár. Engu að síður er gert ráð fyrir verulegri aukningu slíkrar fjáröflunar, úr 30.2 milljörðum kr. í 52.6 milljarða kr. eða um 74%. Hér er aðallega um að ræða. hækkun verðbréfakaupa lífeyrissjóða um 9.1 milljarða kr., hækkun lána innlánsstofnana 4.6 milljarða kr. og innheimt endurlánað spariskírteinafé umfram innlausn 6.1 milljarður kr. Ég skal ekki fjalla sérstaklega um verðbréfakaup lífeyrissjóða, það hefur verið gert ítarlega af hálfu annarra þm. sjálfstæðismanna. Ég vil aðeins undirstrika þá skoðun sem fram hefur komið í málflutningi þm. sjálfstæðismanna, að óhæfa er að taka af lífeyrissjóðunum rétt til þess að ráðstafa fjármagni þeirra. Það er eðlilegt að setja það skilyrði að ávöxtunin sé með viðunandi hætti í samræmi við hagsmuni lífeyrissjóðsfélaga, en umfram það er varasamt af hálfu hins opinbera að setja slíkum sjóðum skilyrði og ber vitni miðstýringu og samþjöppun valds og tilhneigingu til skömmtunarstjórnar sem víða kemur raunar fram í athöfnum núv. ríkisstj.
Erlend lánsfjáröflun vegna opinberra framkvæmda og fjárfestingarlánasjóða á að aukast úr 35.9 milljörðum í 55.3 milljarða eða um 54% og heildarupphæð erlendra lána, að einkaaðilum meðtöldum, út 53.8 milljörðum í 85.6 milljarða eða um 59%. Þótt ósennilegt sé að erfiðleikar verði á að afla þessa lánsfjár erlendis er mjög varasamt að auka svo erlendar lántökur, og hef ég bent á þá auknu greiðslubyrði sem slíkum lántökum er samfara. Trúlegt er að það fjármagnsinnstreymi, sem um er að ræða, verði af þessum erlendu lántökum 30.4 milljarðar kr., og fer þá hluti þessarar upphæðar til að jafna hallann á viðskiptajöfnuði, hvort sem hann verður 20 milljarða kr. meiri eða minni, en afgangurinn bætist við gjaldeyrisforðann og mun því hafa áhrif á peningamagnið og verða þensluvaldur ásamt aukningu endurkaupa.
Í kaflanum um bankakerfið á bls. 20 segir að helstu forsendur fyrir áætlun peningamála 1980 séu ákvæði laga um stjórn efnahagsmála o. fl., nr. 13 frá 1979, um verðtryggingu sparifjár og stjórnarsáttmáli ríkisstj. um verulega hjöðnun verðbólgunnar á árinu. Með tilliti til þess, að þessi ákvæði laga um verðtryggingu sparifjár hafa aldrei verið framkvæmd nema að hluta og alls ekki á þessu ári og að fyrirætlanir um verðbólguhjöðnun eru ekki raunhæfari en kunnugt er, virðist þessi grunnur áætlunarinnar heldur veikur. Um framkvæmd vaxtastefnunnar er sagt á bls. 21 að nafnvextir vaxtaaukainnlána og útlána muni að líkindum haldast lítt breyttir á árinu, en gera verði ráð fyrir endurskoðun vaxta á öðrum tegundum innlána og útlána þannig að vaxtakerfið myndi skipulegri heild. Með lækkandi verðbólgu væri þannig stefnt að verðtryggingarmarki efnahagslaganna. Bætt er við að þetta mundi stuðla að auknum peningalegum sparnaði er að hluta til gæti gengið til fjármögnunar opinberra framkvæmda og sé ætlunin að semja við innlánsstofnanir um verðbréfakaup í þessu skyni.
Það, sem hér er átt við, hlýtur að vera með tilliti til þess, að verðbólguaukning verði um 40% yfir árið í heild, en þar sem vaxtaaukavextir séu þegar í kringum 40% sé ekki ástæða til breytinga þeirra vaxta. Á hinn bóginn sé brýn nauðsyn á hækkun vaxta til skemmri tíma, bæði innláns- og útlánavaxta, til meira samræmis við vaxtaaukavexti, ef hin tilætlaða aukning peningalegs sparnaðar eigi að nást.
Við þetta er það að athuga, að verðbólgan verður fyrirsjáanlega meira en 40%, þannig að vaxtaaukavextirnir eru miðað við verðbólguna of lágir ef hagsmunir sparifjáreigenda eru hafðir í huga. En það breytir ekki því, að það verði að minnka vaxtamuninn. Og sú samræming er ekki síður nauðsynleg til þess að kleift geti reynst að halda útlánum í skefjum.
Það er fróðlegt að gera sér grein fyrir hvað felst í þessari áætlun peningamála að því er innlánsstofnanir og viðskiptamenn þeirra snertir. Mér virðist það vera í stuttu máli þetta: Búist er við að heildarinnstæður aukist jafnmikið og verðbólgan eða um 40%, þ. e. 95 milljarða kr. Þetta er heldur meiri aukning samanborið við verðbólgustig en á árinu 1979, en þá var hún 59% samanborið við yfir 60% verðbólgu frá áramótum til áramóta. Af þessari upphæð eiga um 19 milljarðar að ganga til bindiskyldu og 4 milljarðar til að bæta lausafjárstöðu, en aðrir 4 milljarðar ganga til endurgreiðslu verðbréfa hjá Seðlabanka og annarra þátta. Eftir verða þá 68 milljarðar sem ganga til útlána, en þar af fara 6 milljarðar til langra lána til opinberra framkvæmda. Heildaraukning útlána til annarra þarfa yrði þá um 62 milljarðar kr. frá innlánsstofnunum og að auki um 15 milljarða kr. endurkaup Seðlabanka. Þetta er 34% aukning eða verulega minni aukning en nemur verðbólgustigi. M. ö. o. er ætlunin að atvinnulífið taki á sig mjög auknar byrðar síðari hluta ársins vegna aukins kostnaðar sem ekki fæst bættur með verðhækkunum eða gengissigi nema að hluta. Á sama tíma á innlánsstofnunum ekki að vera heimilt eða kleift að auka útlán til atvinnulífsins nema að marki sem er mun lægra en hækkun verðlags. Einnig má á það benda að nýju, að útlán fjárfestingarlánasjóða, sem einnig ganga til atvinnulífsins að miklu leyti, eiga einnig að aukast minna en svarar verðbreytingum eða um 30%, eins og ég hef þegar getið um. Hvernig á þetta að geta gerst án þess að til stórfelldra rekstrarörðugleika komi?
Það, sem ég hef nú rakið, er enn þá ljósara ef litið er á þróun peningamála fyrstu þrjá mánuði ársins 1980, frá janúarbyrjun til marsloka, og hún borin saman við lánsfjáráætlun fyrir allt árið. Þegar þessar hreyfingar eru skoðaðar hefur lausafjárstaða innlánsstofnana versnað á þrem fyrstu mánuðum þessa árs um 16 milljarða kr. Á sömu mánuðum í fyrra versnaði hún um 500 millj. kr. Mér er tjáð að lausafjárstaðan hafi batnað örlítið í aprílmánuði, einkum vegna aukningar veltiinnlána, en sé aftur á móti mjög neikvæð nú í maímánuði, og sigi þá áfram á ógæfuhliðina. En þegar lausafjárstaða innlánsstofnananna hefur versnað um 16 milljarða fyrstu þrjá mánuði ársins, þá er gert ráð fyrir að hún batni á öllu árinu um 4 milljarða. Heildarinnstæður fyrstu þrjá mánuði ársins hafa hækkað um 19–19.1 milljarð kr., en hækkuðu á sama tíma í fyrra um 19.9 milljarða kr. Heildarinnstæður hafa aukist minna að krónutölu í ár en í fyrra, og þegar á það er litið, að innstæðurnar jukust um tæplega 60% á síðasta ári, þá sést að hlutfallslega er hér um ákaflega mikla minnkun sparifjármyndunar í landinu að ræða.
Útlánin hafa aukist fyrstu þrjá mánuðina um tæpa 40 milljarða, en jukust í fyrra um tæpa 18 milljarða. Gert er ráð fyrir að útlánin aukist á öllu árinu um 83 milljarða, þ. e. útlánsaukningin fyrstu þrjá mánuðina nemur nær helmingi útlánaaukningar sem ráðgerð er á öllu árinu. Og þessi munur er enn þá skýrari þegar um útlán er að ræða að frádreginni endursölu. Það er því ljóst að þróun peningamála hefur verið afar óhagstæð fyrstu þrjá mánuði ársins og útlánaaukningin aftur á móti orðið mjög mikil. Afleiðingin er sú, að lausafjárstaða innlánsstofnana hefur versnað og er neikvæð um 3 milljaðra, en hafði verið jákvæð um 13 milljarða á sama tíma í fyrra.
Vissulega er þarna að hluta til nokkur skýring að útflutningstekjur eru seinna á ferðinni en á s. l. ári og árstíðasveifla til batnaðar e. t. v. nokkru seinna á ferðinni. Eins og ég gat um áðan hefur þessi árstíðarsveifla aðeins batnað í apríl, en sigið aftur á ógæfuhliðina í maí. En þessi skýring um árstíðasveiflur er aðeins hluti myndarinnar. Aðalatriðið er það annars vegar, að peningalegur sparnaður er minni vegna þess að verðbólgueftirvænting er föst í sessi og vextir neikvæðari en oftast áður. Hins vegar er skýringin sú, að peningaleg eftirspurn er mikil bæði vegna lágra raunvaxta og verðbólgueftirvæntingar og vegna erfiðrar afkomu atvinnulífsins. Svo framarlega sem ekki verður grundvallarbreyting á þessum atriðum hlýtur þessi þróun að halda áfram. Hlýtur þá að koma að því fyrr eða seinna á árinu, að innlánsstofnanir verði bókstaflega að loka fyrir útlán á sama tíma og þörf atvinnulífsins fyrir lánsfé fer vaxandi vegna aðgerða stjórnvalda.
Herra forseti. Þessi fjárfestingar- og lánsfjáráætlun ber skýrt vitni þeirri stefnu hæstv. ríkisstj. að auka ríkisumsvifin og takmarka að sama skapi skilyrði og möguleika einstaklinga og fyrirtækja til framtaks og athafna í þeim atvinnurekstri sem þó hlýtur að vera grundvöllur verðmætasköpunar í þjóðfélaginu, grundvöllur þess að við getum horft til betri tíma. Bæði fjárlög og fjárfestingar- og lánsfjáráætlun bera því vitni, að á vandamálin hefur ekki verið litið af raunsæi og áfram er stefnt í óefni. Myndun núv. ríkisstj. fól í sér undanhald frá aðsteðjandi vanda, frestun á því að horfast í augu við ófrávíkjanlegar staðreyndir. Það skiptir nú enn meira máli en áður að undanhaldinu ljúki, að tekist sé á við vandann af fullri einurð, ef unnt á að vera að reisa efnahag landsins á traustum grunni og bæta lífskjör og efla velferð um langan tíma séð. En þetta gerist ekki undir forustu þessarar ríkisstj. né þeirra flokka er að henni standa.