21.05.1980
Neðri deild: 83. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3039 í B-deild Alþingistíðinda. (2961)
140. mál, almannatryggingar
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég vil af þessu tilefni aðeins ítreka það sem ég hef áður sagt, að hnýsni hins opinbera í sambandi við það, hvort gamalt fólk eigi nokkrar krónur inni á bók, er með öllu óþolandi, á sama tíma og hið opinbera getur ekki búið þessum þegnum þau kjör fyrir sitt sparifé að þeir geti látið það í þá ríkisbanka, sem hér eru reknir, og síðan tekið sama verðmæti út einu eða tveim árum síðar, þá skuli þessir sömu herrar búa þannig að þessu fólki, setja ströng lög og skilmála um það, að hver einasti eyrir skuli talinn fram, og skattleggja þetta fé undir vissum kringumstæðum. Að sjálfsögðu er þetta algjörlega óviðunandi og nauðsynlegt að taka það aftur upp á nýju þingi, hversu hægt sé að koma til móts við þetta fólk sem á sparifé inni í bönkum landsins. Ég tel að þetta séu félagslegar umbætur sem nauðsynlegt sé að hyggja vel að og m. a. einn liðurinn í því að örva sparifjármyndunina í landinu.
Ég vil svo að öðru leyti taka undir það, að að mörgu leyti er það mjög tilviljanakennt og ég vil segja fálmkennt, með hvaða hætti komið er til móts við aldrað fólk og öryrkja í þessu þjóðfélagi, hvernig þetta tryggingakerfi er allt saman byggt upp. Og ég verð að segja það einnig, að það er nokkurn veginn óhjákvæmilegt, held ég, eins og verðbólgan er orðin, eins mikið og stjórnleysið er í þessu þjóðfélagi, jafnóviss og framtíðin er, að hinir öldruðu geti búið við verðtryggða lífeyrissjóði, ekki síst eftir að hið opinbera er farið að fálma eins djúpt ofan í lífeyrissjóðina og raun ber vitni. Þetta er nú að verða eitt mesta réttindamál og réttlætismál í þjóðfélaginu, að tryggja nokkurn veginn að hinir öldruðu geti verið áhyggjulausir í sínu lífi. Og ég vil aðeins minna á það, að Sjálfstfl. hefur haft alla forustu í því að reyna að koma þarna lagfæringum og leiðréttingum við, en það hefur staðið í þeim efnum á vinstri flokkunum, þessum félagsmálaflokkum sem ekki hafa lagt neitt raunhæft til þessara mála og ekki hafa fengist til þess að ræða þetta mál á raunhæfum grundvelli.
Sem sagt, kjarni málsins, sem ég vildi koma hér að, er í fyrsta lagi sá, að með öllu er óþolandi þessi hnýsni hins opinbera, þó maður eigi nokkrar krónur inni á bók, á sama tíma og þannig er búið að þessu fólki að það getur ekki verið visst um að ná sömu verðmætum aftur út úr bankanum og það lagði inn. Og í öðru lagi þetta, að það, sem kallað er samhjálp við aldraða og öryrkja, er afskaplega tilviljanakennt, ósamkvæmt, og ef einhver slíkur aldraður maður eða kona kemst yfir eitthvert ákveðið mark, sem miðað er við í þessum efnum, getur hann eða hún farið á mis við margvísleg fríðindi. Ég veit dæmi þess, að einstæðingar hér í borginni, aldrað fólk, það hefur afþakkað með öllu aðstoð frá þessu félagsmálakerfi, sem við höfum verið að byggja upp, vegna þess hversu ósmekklega er að því staðið.