22.05.1980
Neðri deild: 85. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3052 í B-deild Alþingistíðinda. (3000)
Afgreiðsla þingmála
Forseti (Sverrir Hermannsson):
Ég kýs fyrst að svara hv. 3. þm. Reykn. Ég sé ekki hvaða tilgangi það kynni að þjóna, þar sem flæddu hér menn inn á mælendaskrá í 194. málinu, frv. um aðstoð við þroskahefta, hvaða tilgangi það þjónar að ræða það mál hér lengi nætur. Það verður fundur í hv. d. á morgun. Þetta mál er til lokaafgreiðslu við 3. umr. í hv. d., þannig að afgreiðslu hlýtur það að fá, og ég mun beita mér fyrir því, að það fái lokaafgreiðslu á morgun. Hér getur því ekki miklu munað. Varðandi húsnæðismálafrv. lýsti ég því yfir, að ég mundi taka það á dagskrá áður en störfum lyki í kvöld og nótt. Þetta gerði ég í upphafi fundar. Hins vegar hafði ég fyrir löngu ákveðið að hefja aðeins umr., 2. umr., með því t. a. m. að frsm. meiri hl. félmn. flytti sinn boðskap, en hugmynd mín var ekki að halda lengra áfram með það mál.