22.05.1980
Sameinað þing: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3064 í B-deild Alþingistíðinda. (3015)
138. mál, tilraunaveiðar með dragnót
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Það er auðvitað að nýting fiskstofna okkar fer að mestu eftir biluðu taugakerfi þm., ég tala nú ekki um ráðh., og það á alveg sérstaklega við um skarkolann. Auðvitað er það, eins og hæstv. sjútvrh. sagði, ákaflega viðkvæmt mál að drepa skarkolann, að halda ekki áfram að ala þennan gómsætasta fisk okkar upp til einskis.
Hér í Faxaflóa er reynslan margvísleg. Að vísu þurfti að gæta að ofveiði í Faxaflóa og vernda, en ekki friða, eins og menn alltaf mismæla sig. Við ætlum ekki að friða neinn fisk, við ætlum að vernda hann fyrir ofveiði, við ætlum að ganga í stofnana. Reynsla smábátaeigenda hér, sem áður lögðu línur sínar t. d. úti á Bakkagrunni og Bollasviði, þar sem gekk vorýsa rauð í sárið árum saman, er sú, að það hangir krossfiskur og ígulker á hverjum krók. Auðvitað á að leggja undir viss svæði og stunda þau með dragnót, afmörkuð svæði, og sjá hvað setur með þeim hætti.
Allir þekkja það, sem hafa gist Norðurlönd til að mynda, að þar þykir rauðspretta herramannsmatur. Af þeirri rauðsprettu, sem Norðurlandabúar veiða, þarf fjögur flök að meðaltali á móti einu flaki af íslenskri rauðsprettu veiddri í ágúst-sept., eftir að líða tekur á sumar, áður en hún gengur .til hrygningar, fyrir utan bragðið og fitumatinn sem í þessu er. Ég varpa fram gamalli hugmynd minni, sem auðvitað heyrist ekkert til fyrir gjallandanum í vísindamönnunum. Ég átti þá tillögu einu sinni að t. a. m..í Húnaflóa, þar sem voru afburða kolamið sem hv. 1. landsk. þm. stundaði af djörfung meðan hann var og hét í sjómannastétt, en t. d. eiga Hólmavíkingar við tímabundið atvinnuleysi að stríða á hverju ári, þar yrði tekið myndarlega til höndum og mönnum fengin í hendur verkfæri og aðstaða til að verka kolann í neytendaumbúðir og finna honum markað á Norðurlöndum þar sem er án efa geysilegur markaður fyrir þessa dýrðarvöru, sem gæti selst hærra en aðrar.
En þetta má auðvitað ekki fyrir hinum stríðu meiningum í málinu. Það er alveg dagsanna, að ýmsir bændur fram til fremstu heiða hafa ráðið mestu í þessum málum hér í þingsölum á umliðnum áratugum. Ég hygg að ýmsir mosavaxnir menn hér ættu að þekkja það, eins og t. a. m. hv. þm. Pétur Sigurðsson, því að hann mun hafa barist um á hæl og hnakka í þessu máli á sinni tíð.
Síðan mætti athuga um Axarfjörðinn. Hvernig standa sakir þar? Þar nær enginn koli þroska vegna þess að hann er ofsetinn. Það þarf að hreyfa við botninum til að losa um lífræn efni svo að gróður geti vaxið og fiskur nærst. Þetta er allt saman að verða eins og óunninn kálgarður sem ekki hefur verið stungið upp í og enginn sáð í. Þannig gætu þessir smástaðir e. t. v. borgið atvinnu fólksins með þessum hætti og stórkostlegar útflutningsgjaldeyristekjur orðið. Og eins er á Héraðsflóanum og þannig getum við farið hringinn í kringum landið. — En í þessum efnum eins og fjölmörgum efnum í þessum sökum ráða bábiljur einar.