22.05.1980
Sameinað þing: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3069 í B-deild Alþingistíðinda. (3020)

227. mál, störf milliþinganefndar í byggðamálum

Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. þau svör sem hann gaf hér. Þau lýsa náttúrlega því sem við var að búast, að nefndin hefur látið undir höfuð leggjast að skila áliti áður en hún var lögð niður, og rifjar það nokkuð upp þann mikla hamagang sem á sínum tíma var í kringum þessa nefndarstofnun, þar sem fyrst og fremst komu við sögu þeir hv. 11. þm. Reykv., Ólafur Ragnar Grímsson, sem nú er að vísu kominn í annan flokk og hefur komið við í öðrum í millitíðinni, og svo formaður Framsfl., Steingrímur Hermannsson.

Þau störf, sem þessari nefnd var ætlað að vinna, hafa verið falin öðrum. Eins og hæstv. forsrh. gat um áðan, hefur byggðadeild Framkvæmdastofnunarinnar mjög unnið að byggðamálum á undantörnum árum og er ekkert nema gott um það að segja. Raunar vil ég einnig lýsa ánægju minni yfir því, að hún skuli nú vinna að uppkasti að því nál. sem hæstv. sjútvrh. sagði á því herrans ári 1975 að væri rétt í burðarliðnum.