22.05.1980
Sameinað þing: 65. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3070 í B-deild Alþingistíðinda. (3022)

Afgreiðsla þingmála

Sjútvrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Ég heyri að hv. þm. er ekki ánægður með svörin sem ég lét honum í té skriflega. Þetta mál er ekki hér á dagskrá svo að ég tel mér ekki heimilt að ræða það nú. En ég skal með ánægju fylla út í þau svör og þá hafa samráð við hann um, hvað hann telur ófullnægjandi, og þá svara skriflega.