22.05.1980
Efri deild: 101. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3086 í B-deild Alþingistíðinda. (3050)
160. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það er kannske fyrst og fremst vegna þess að það misfórust boð til mín um þennan fund í fjh.- og viðskn. þessarar hv. d., þannig að ég gat ekki setið hann, sem ég vildi segja fáein orð, nefnilega það, að ég hefði getað skrifað undir þetta nál. og styð afgreiðslu þessa máls.
Eins og komið hefur fram í málflutningi hér á þingi fjölluðu nefndir Nd. og Ed. nokkuð um þetta sameiginlega og athygli beindist mjög að 15. gr. þessa frv. til l. Eftir að hafa fjallað um hana var sett niður viðmiðun um hvernig hún skyldi framkvæmd, enda um viðkvæmt mál að ræða. Sú viðmiðun birtist í nál. frá fjh.- og viðskn. Nd. og ég tel að með slíkri viðmiðun ætti væntanlega að vera unnt að fylgja fram þeirri stefnu, sem í frv. felst, án þess að það skapi sérstaka hættu. Ég er þess vegna meðmæltur því, að frv. verði samþ. í þessu formi og með þeim fyrirvara sem í nál. stendur.