22.05.1980
Efri deild: 102. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3089 í B-deild Alþingistíðinda. (3057)

160. mál, jöfnun og lækkun hitunarkostnaðar

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Margt mætti um það mál segja sem hér er á dagskrá á lokastigi í þinginu, en ég ætla ekki að fjölyrða um það nú því að um það hefur þegar verið fjallað mikið og nefndin á málinu tekið og tími naumur til að ljúka störfum þingsins. En vegna fsp. frá hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni, hv. 5. landsk. þm., áðan vil ég svara honum nokkru. Hann spurði um málefni Hitaveitu Siglufjarðar og með hvaða hætti vandi hennar gæti komið inn í úrlausn sem tengdist heimildum í þessu frv.

Ég vil í þessu sambandi vísa til nál. fjh.- og viðskn. hv. Nd., sem hv. þm. í þessari d. hafa eflaust séð og kynnt sér, þar sem fjallað var einmitt um 15. gr. Þessi hv. n. hafði ítrekað samband við iðnrn. vegna þessa máls og var að leitast við að þreifa sig áfram eftir skilgreiningu sem hægt væri að ná samstöðu um í n. einmitt varðandi viðmiðanir sem tengjast þessari grein sérstaklega. Ég tel ástæðu til að lesa upp það sem sagði í nál. hv. fjh.- og viðskn. Nd. um þetta, en þar stendur, með leyfi hæstv. forseta:

„Athyglin beindist einkum að ákvæðum 15. gr. frv. Greininni er ætlað að tryggja að ekki dragi úr áhuga við nýtingu hagkvæmra innlendra orkugjafa vegna styrks til húshitunar með olíu. Nefndinni þykir nauðsynlegt að settar verði reglur um framlög til varmaveitna sem eru „þjóðhagslega hagkvæmar“, en eru fyrst í stað ekki samkeppnisfærar við húshitun með olíu að frádregnum olíustyrk. N. telur að hér verði eingöngu um undantekningartilvik um takmarkaðan tíma að ræða. Til viðmiðunar í þessu sambandi vill n. taka fram eftirfarandi:

Greiða má tímabundið framlag til varmaveitna, sem starfa á vegum opinberra aðila og hafa samþykktar gjaldskrár, sem fela í sér hærra orkuverð en nemur húshitunarkostnaði með olíu að frádregnum olíustyrk, en lægra en nemur olíuhitunarkostnaði. Framlagið miðist við það, að hjá varmaveitum, þar sem hitunarkostnaður fer fram úr 90% af hitunarkostnaði með olíu að frádregnum olíustyrk, er fallið hefði til íbúa þeirra húsa sem tengd eru slíkum veitum. Framlaginu skal fyrst og fremst varið til að lækka stofnkostnað viðkomandi veitu. Matið á gjaldskrám og samanburður við olíuverð skal miðast við samræmdar reglur sem iðnrn. setur um viðmiðunarhúsnæði, dreifingu stofnkostnaðar, fjármagnskostnað, ákvörðun heimæðagjalds sem hlutfalls af stofnkostnaði og annarra atriða er máli skipta.“

Að því er varðar stöðu einstakra varmaveitna, sem nú hafa verið reistar og teknar í notkun, vísa ég til yfirlits á bls. 13 í grg. með því frv. sem hér er til meðferðar, en þar er reynt að draga upp mynd af núverandi stöðu varðandi hitunarkostnað sem hlutfall af kyndingarkostnaði með olíu, bæði án olíustyrks og að frádregnum olíustyrk, og miðað við meðalfjölskyldu í íbúð sem talin er, sem kunnugt er, fjórir menn samkv. þessu frv. Ef litið er á þetta yfirlit kemur í ljós að það eru tvær hitaveitur sem skera sig áberandi úr í sambandi við kostnað þegar tekið hefur verið tillit til olíustyrks. Það eru hitaveitan á Suðureyri og hitaveitan á Blönduósi sem báðar eru yfir 100% í þessari viðmiðun með olíustyrk og kostnað meðalstórrar fjölskyldu er settur á 100. Í þriðja sæti kemur þarna Hitaveita Siglufjarðar með rösklega 80% eða 81% samkv. þessum útreikningi. Nú skal ég ekki um það fullyrða, hvort þessar tölur, sem hér eru birtar í fskj., taka tillit til þeirra gjaldskrárbreytinga sem nýlega hafa orðið. Ég hef það ekki alveg á hreinu og vil því ekki taka af um það. En ég vil um þetta segja og þá fsp. sem hér liggur fyrir, að iðnrn. mun hafa hliðsjón af því áliti sem þarna kom fram hjá hv. nefnd. Við, sem spurðir vorum þar um þetta, lýstum yfir að við teldum að þetta væru eftir atvikum nothæfar viðmiðunarreglur sem þyrfti svo að fara betur ofan í í sambandi við setningu reglugerðar um þetta efni. Jafnhliða eða þegar að því kemur svo að beita heimildinni eða taka afstöðu til þess nú þarf að sjálfsögðu að fara vel ofan í málefni viðkomandi veitna, sem þegar eru teknar til starfa, athuga fjárahagsstöðu þeirra og meta síðan hvort þær falla undir þær reglur sem settar eru.

Varðandi Hitaveitu Siglufjarðar er það alveg rétt, sem hv. fyrirspyrjandi Eyjólfur Konráð vék að áðan, að fjárhagsstaða þeirrar veitu er mjög erfið. Það er óhætt að segja það. Ástæðurnar eru margþættar fyrir þessari stöðu veitunnar og flokkast sumpart undir náttúruhamfarir. Sem kunnugt er varð þessi veita fyrir allnokkru tjóni vegna snjófljóða á Skútudal, þar sem mannvirki hennar skemmdust, fyrir einum tveimur árum, og það náðist ekki það vatn úr jörðu sem vonir stóðu til. Kostnaður við þessa veitu, stofnkostnaður, hefur því orðið til muna meiri en vonir stóðu til, en viðmiðunin var í upphafi eins og við aðrar hitaveitur, að kostnaður orku frá veitunni færi ekki yfir 80% af olíukostnaði, og var þá að sjálfsögðu allt annað ástand í sambandi við verðlag á olíu en síðar varð eða nú er fram komið. Eftir töflunni, sem við höfum í grg. með frv., er Hitaveita Siglufjarðar aðeins yfir þessum 80% mörkum og kann að fara hærra eftir þær gjaldskrárbreytingar sem orðið hafa, en Hitaveita Siglufjarðar fékk — ef ég man rétt — 34% hækkun á gjaldskrá sinni í þessum mánuði.

Ég ætla ekki að fara að gefa hér mynd af stöðu Hitaveitu Siglufjarðar. Við fengum erindi um það í iðnrn. í aprílmánuði s. l., en þar kemur fram að við verulegan vanda er að fást og eins og fram kom í máli hv. þm. áðan hefur iðnrn. fyrir allnokkru, þegar á fyrri hluta árs 1979, að mig minnir, boðið forráðamönnum veitnanna á Siglufirði, bæði rafveitu og hitaveitu, að ljá þeim aðstoð við að greina þennan fjárhagsvanda og leitast við að styðja þessi fyrirtæki við að komast fram úr honum með einhverjum hætti. Ég er nú þeirrar skoðunar, að það komi vel til álita að á tilvikum og fjárhagsvanda eins og þarna er um að ræða, sem sumpart er fólginn í uppsöfnuðum skuldum og vöxtum og afborgunum sem stafa af því, hvernig að fjármögnun þessa fyrirtækis hefur verið staðið, og þeim áföllum sem það hefur orðið fyrir á uppbyggingartíma, verði tekið e. t. v. með öðrum hætti en samkvæmt frv. sem hér liggur fyrir, og gæti þó hvort tveggja komið til álita. Ég vil því hafa góð orð um að ofan í málefni þessarar veitu verði farið, og mér sýnist að hún hljóti að verða mjög framarlega í hópi þeirra fyrirtækja sem til álita kemur að hljóti einhverja úrlausn samkv. þeim heimildum sem hér liggja fyrir.

Ég vil svo aðeins segja það, að þegar komið er út í svo flókið dæmi sem hér er um að ræða, þar sem er niðurgreiðsla á orku, er vissulega matsatriði hvar menn ætla að stöðva sig. Það hefur einmitt komið fram í umr. um þetta mál hér í þinginu, á liðnum vetri, að þar eru mörkin ekki allt of ljós. Þar hefur hver og einn sína reynslu. En þegar farið er út í niðurgreiðslur af þessu tagi verða menn að sjálfsögðu að leita að einhverjum meðaltalskostnaði, meðaltalsviðmiðun, og haga síðan niðurgreiðslum miðað við það fjármagn sem Alþ. veitir til þessara mála til að létta á kostnaði.

Ég er þeirrar skoðunar, að þarna þurfi að gæta hófs, sérstaklega með tilliti til þess að draga ekki úr áhuga manna á að beisla og nýta innlendar orkulindir, og ég held að þeir, sem fara ofan í þessi mál, t. d. viðmiðunina varðandi upphæð á olíustyrk, sjái að hér er komið alveg að mörkum. Menn munu áreiðanlega heyra það mjög víða úti um landið, þar sem menn eru að taka innlenda orkugjafa í notkun, hvort sem það er raforka eða jarðvarmi, að þeim þyki raunverulega nóg að gert í sambandi við þá niðurgreiðslu sem hér hefur verið ákveðin á olíunni. Geri ég þó engan veginn lítið úr þeim vanda sem menn eiga við að fást á þessu sviði. En vandann er hægt að leysa að hluta til með öðrum hætti, þ. e. orkusparnaði og skynsamlegum aðferðum að því leyti sem þær eru varanlegar og fólki til hagsbóta, óháð því hvort það kyndir hús sín með olíu eða með innlendum orkugjöfum í framtíðinni.