22.05.1980
Efri deild: 102. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3102 í B-deild Alþingistíðinda. (3069)

Umræður utan dagskrár

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanrrh. svör hans áðan og að það skuli verða gert, sem ég óskaði eftir, að afla nánari upplýsinga um þá stofnun, sem hér hefur borið svo mjög á góma, og aflað upplýsinga um sérfræðiþekkingu þess starfsmanns sem vitnað var til.

En það, sem upp úr stendur eftir þessa umr., er að það hefur hvergi verið fullyrt að hér séu kjarnorkuvopn, nema að það hafa þm. Alþb. fullyrt í Þjóðviljanum, það hafa herstöðvaandstæðingar fullyrt á fundum. Annars staðar hefur slíkt ekki verið fullyrt. Þeir hafa fullyrt það á fundum þar sem það var haft í flimtingum og fluttur um það leikþáttur að kjarnorkuárás væri gerð á Keflavík, svo smekklegt sem það getur talist.

Þar að auki vitnaði hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson áðan til viðtals sem flutt var í Ríkisútvarpinu, til hins enska texta þess, og ég skal ekki lengja þessar umr. mjög, en ég ætlað að vitna til þessara orða líka vegna þess að ég er þar á öndverðri skoðun.

Það stendur hér, fréttamaður segir: „So you are pretty certain that you are quite convinced that there are nuclear weapons kept there?“ Og svarið er: „Yes, I think so.“ Síðar í þessu viðtali segir: „So it takes sort of research in order to be both familiar with what responsibilities of the base are and what the responsibilities of the units of the base are and also what sort of indications there are that there might be nuclear weapons in the area.“

Þetta er hvergi fullyrt. En það verður fróðlegt að sjá á sínum tíma hvaða sérþekkingu þessi ágæti maður, sem hér er rætt við, hefur á þessum málum.

Hv. þm. Ólafur Ragnar minntist á það og gat þess í ræðu sinni, að menn væru hér með stór orð áður en efnisleg afstaða lægi fyrir. Hann dregur þetta í efa sjálfur, en það gera hins vegar skoðanabræður hans ýmsir ekki, eins og hér hefur komið fram, heldur fullyrða hið gagnstæða.

Hann vék hér að till. sem flutt hefur verið um bann við flutningi og geymslu kjarnorkuvopna. Þetta er auðvitað góðra gjalda vert. En hæstv. utanrrh. upplýsti áðan að Ísland er aðili að alþjóðlegum samningi um bann við útbreiðslu kjarnorkuvopna og þessi till. sýnist því vera nánast óþörf. Þar að auki leikur mér nokkur forvitni á að vita með hverjum hætti á að framfylgja þessu eftirliti í hafinu kringum Ísland og í loftinu yfir Íslandi. Ég er hræddur um að það verði býsna erfitt. Við getum alveg eins samþ. hér till. um að banna að gervitungl sveimi yfir í 40 þús. km. hæð í himingeimnum. Þetta er álíka raunhæft. Þetta ráðum við ákaflega illa við.

Að lokum aðeins þetta: Ég vék hér að fréttaflutningi Ríkisútvarpsins og þakka þau fögru orð sem þm. Ólafur Ragnar Grímsson lét falla í minn garð. En Ríkisútvarpið á að fylgja ákveðnum reglum um fréttaflutning. Ég er þeirrar skoðunar, að í þessu tilliti hafi ekki verið farið eftir þeim reglum. Ríkisútvarpið á aldrei að vera hafið yfir gagnrýni. Það er eðlilegt að það sé gagnrýnt og hlýtur að verða að una því. Fréttamenn þar gera margt vel, annað miður. Öllum getur orðið á í messunni. Ég hygg að í þessu tilviki hafi fréttamanni orðið á í messunni vegna þess að ég tel að þetta mál hafi ekki verið flutt með þeim hætti í Ríkisútvarpinu sem ber að gera samkv. reglum Ríkisútvarpsins um fréttaflutning.