09.01.1980
Neðri deild: 15. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 201 í B-deild Alþingistíðinda. (308)

23. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Frv. það, sem hér er nú á dagskrá hv. þd., á þskj. 23, um Sinfóníuhljómsveit Íslands, er langt frá því að vera gallalaust að mínum dómi. Samþykki hv. Alþ. að frv. verði að lögum, er Alþ. að ráðstafa með lagaboði útsvarstekjum sveitarfélaga hér á höfuðborgarsvæðinu. Í 3. gr. kemur fram hvaða aðilum er samkv. þessu frv. ætlað að greiða bæði stofn- og rekstrarkostnað Sinfóníuhljómsveitarinnar. Segir, með leyfi forseta, í 3. gr.:

„Að rekstri Sinfóníuhljómsveitar Íslands standa eftirtaldir aðilar og greiða þeir stofn- og rekstrarkostnað hennar í eftirgreindum hlutföllum: a) Ríkissjóður 50%. b) Ríkisútvarp 25%. c) Borgarsjóður Reykjavíkur, bæjarsjóður Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Seltjarnarness 25%. Reykjavíkurborg er greiðsluaðili framlags þessara sveitarfélaga til hljómsveitarinnar, en framlag skiptist í hlutfalli við íbúatölu þeirra.“

Ég sé ekki ástæðu til að lesa þessa grein frekar. Samkv. henni er Reykjavíkurborg eða borgarsjóði gert að ábyrgjast greiðsluframlag hinna sveitarfélaganna til hljómsveitarinnar í því hlutfalli sem þar segir, og er þá miðað við höfðatölu íbúa hvers sveitarfélags um sig. Ég held að allir réttsýnir menn hljóti að viðurkenna óréttlætið sem felst í þessari till. gagnvart borgarsjóði Reykjavíkur. Frjáls ákvörðun sveitarstjórna við gerð fjárhagsáætlana hverju sinni hlýtur að skoðast eðlileg málsmeðferð. Fjarstýring hv. Alþingis á fjármálum sveitarstjórna hlýtur að teljast hættuleg — ég vil segja: stórhættuleg sjálfstæði þeirra.

Það kemur fram í grg. með frv. þessu, að á borgarstjórn Reykjavíkur hafi hingað til legið sú kvöð að greiða 21.4% af rekstrarkostnaði hljómsveitarinnar. Það er rangt. Á milli umr. hef ég leitað upplýsinga hjá borgaryfirvöldum. Ég sit sjálfur í borgarráði. Það hefur komið fram við athugun, að engin slík kvöð hvílir á Reykjavíkurborg um þetta ákveðna framlag. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur sjálf ákveðið samkv. samkomulagi við ríkisstj. framlag sitt til Sinfóníuhljómsveitarinnar við gerð fjárhagsáætlana hverju sinni. Á s.l. ári nam framlag borgarsjóðs til Sinfóníuhljómsveitarinnar um 70 millj. kr. Enginn borgarráðsmaður er reiðubúinn til að hækka það framlag, þótt raddir heyrist innan borgarráðs um að greiða verðbætur á þetta framlag fyrir árið 1979, en það er langt frá því að samstaða sé um það. Allir borgarfulltrúar, hvar í flokki stjórnmála sem þeir eru, eru á móti því að Alþ. lögbindi í prósentutölu framlag borgarsjóðs til Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Ég vil að lokum ítreka að hingað til hefur borgarstjórn Reykjavíkur tekið þátt í að greiða niður rekstrarkostnað. En þetta frv. til l., sem hér liggur nú fyrir, gerir ráð fyrir að lögbinda þá kvöð á þau sveitarfélög, sem þar eru upp talin, að til viðbótar við þátttöku í rekstri hljómsveitarinnar skuli þau einnig standa undir stofnkostnaði við hana, sem þýðir náttúrlega aukin fjárframlög þessara sveitarfélaga frá því sem verið hefur. Ég vil vara við þessu. Það er ómögulegt að segja hver stofnkostnaður getur orðið, hvort þar er um hljóðfærakaup að ræða eða þá byggingu á einhvers konar samkomuhúsi eða söngleikahúsi sem vantar hérna á höfuðborgarsvæðið. Það fer þá einvörðungu eftir ákvörðun stjórnar Sinfóníuhljómsveitarinnar hver stofnkostnaður verður hverju sinni.

Ég vil vara við þessu frv. eins og það liggur hér fyrir. Ég tel að við þurfum að viðhalda hér blómlegu menningarlífi á þessu sviði eins og á öðrum, en við verðum að halda því innan þess ramma sem þjóðfélagið og þá sérstaklega sveitarstjórnir hér á höfuðborgarsvæðinu hafa fjárhagslega getu til, úr því að það á að leggja þessa kvöð alfarið á þær sveitarstjórnir sem upp eru taldar í frv., sem sagt að kostnaðinum sé haldið innan þess ramma sem okkar fjárhagslega geta leyfir. Ég veit ekki hver rekstrarkostnaður Sinfóníuhljómsveitarinnar er í ár, þ.e. árið 1979. En mér er óhætt að fullyrða að hann skiptir nokkrum hundruðum millj. og hefur farið ört vaxandi undanfarin tiltölulega fá ár, t.d. síðustu 3–5 árin. Ég vil vara við samþykkt þessa frv. eins og það liggur hér fyrir.