28.05.1980
Efri deild: 103. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3141 í B-deild Alþingistíðinda. (3085)
123. mál, sönnun fyrir dauða manna af slysum
Frsm. (Salome Þorkelsdóttir):
Herra forseti. Allshn. Ed. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á lögum nr. 23 19. júní 1922, um sönnun fyrir dauða manna sem ætla má að farist hafi af slysum. N. fékk til viðræðna Baldur Möller ráðuneytisstjóra í dómsmrn. Hann benti á að það gæti verið varhugavert að setja svo stutta fresti sem fram kemur í 4. og 5. gr. frv., og hann upplýsti jafnframt að það væri verið að vinna að endurskoðun þessara laga. N. varð því sammála um að leggja til að fella niður 4. og 5. gr. frv. Hún flytur brtt. um það á sérstöku þskj. og mælir með samþykkt frv. þannig breytts.