28.05.1980
Neðri deild: 87. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3187 í B-deild Alþingistíðinda. (3114)
154. mál, Bjargráðasjóður
Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Út af fsp. hv. 2. þm. Norðurl. e. vil ég taka þetta fram:
Við umr. í Sþ. 19. maí í fyrra um harðindi og hafís fyrir Norðurlandi lýsti ég yfir fyrir hönd þingflokks sjálfstæðismanna að ég vænti þess, að víðtækt samstarf mætti takast milli þingflokkanna um ráð til að liðsinna íbúum þeirra byggðarlaga sem fyrir búsifjum hefðu orðið. Fulltrúar annarra þingflokka gáfu svipaðar yfirlýsingar.
Þetta mál allt saman hefur tafist mjög vegna langvarandi stjórnarkreppu s. l. vetur og vegna þeirra tafa sem af þeim sökum m. a. urðu á afgreiðslu lánsfjáráætlunar. En í lánsfjáráætlun fyrir þetta ár er gert ráð fyrir 1500 millj. lántöku Bjargráðasjóðs til að bæta tjón bænda á Norðurlandi. Þetta lán hefur verið fengið frá bönkum til 5 ára og er verðtryggt með 2% vöxtum. Þetta fé verður síðan endurlánað bændum þar nyrðra.
Þeir sjómenn, sem fyrirspyrjandi vitnar til, hafa fengið lán til að bæta þeim veiðarfæratap. Þau munu vera til 5 ára og Byggðasjóðsvextir 22%.
Stjórn Bjargráðasjóðs hefur í gær fyrir sitt leyti fallist á að vextir af lánum til bænda verði 10%. En sjóðurinn getur ekki staðið undir þeim vaxtamun sjálfur. Það er ekki unnt að gefa bindandi yfirlýsingu um vaxtakjör af lánum þessum fyrr en ríkisstj. fær ályktun Bjargráðasjóðs til umfjöllunar. En það vil ég fullvissa hv. þm. um, að við þær yfirlýsingar, sem hann vitnaði til frá 19. maí í fyrra, verði staðið og bændur á harðindasvæðunum fái a. m. k. ekki lakari kjör en þeir sjómenn hafa fengið sem hann vitnaði til.
Í stjórnarsáttmála núv. ríkisstj. er minnst á þetta mál þar sem segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Bjargráðasjóði verði útvegað lán vegna harðindanna 1979.“ — Það hefur verið gert.
„Tekjustofnar sjóðsins verði teknir til endurskoðunar í þeim tilgangi að hann geti gegnt hlutverki sínu.“— Um það fjallar einmitt þetta frv., sem hér liggur fyrir, að efla Bjargráðasjóðinn til að gera honum kleift, eftir því sem unnt er, að gegna sínu hlutverki. Vænti ég þess, að það frv. geti orðið að lögum nú.