28.05.1980
Neðri deild: 87. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3188 í B-deild Alþingistíðinda. (3115)

154. mál, Bjargráðasjóður

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég þakka hv. 2. þm. Norðurl. e., Stefáni Valgeirssyni, fyrir að hafa tekið þetta mál hér upp á Alþ. og fengið með fsp. sínum og með því að reifa þetta mál yfirlýsingu frá hæstv. forsrh. um að þau lán, sem veitt verða bændum úr Bjargráðasjóði vegna harðindanna, verði óverðtryggð. Þetta tel ég vera afskaplega þýðingarmikið og raunar forsendu þess, að þeir bændur, sem hlut eiga að máli, geti sumir hverjir notfært sér þessi lán.

Eins og hv. 2. þm. Norðurl. e. gat réttilega um á það sérstaklega við um kartöflubændur. Þar er um mjög alvarlegt tjón að ræða, algert tjón, víl ég segja. Þessir menn hafa orðið algerlega tekjulausir á s. l. ári, og ég hygg að finna megi dæmi þess, að einn maður hafi tapað um 30 millj. kr. tekjum sem hann gat átt von á á því ári. Svo alvarlegt er ástandið að ef við tökum eina þrjá hreppa í Eyjafirði, Grýtubakkahrepp, Svalbarðsstrandarhrepp og Öngulsstaðahrepp, mun tjónið þar vera eitthvað í kringum 400 millj. kr. vegna kartöfluuppskerunnar, aðeins vegna hennar. Þar við bætist svo annað eins tjón. Bjargráðasjóður hefur að vísu að nokkru leyti komið þarna á móti með því að veita nokkra fyrirgreiðslu til Kaupfélags Svalbarðseyrar, en hins vegar hefur því fé ekki verið skipt milli einstakra bænda og verulega vantar upp á að þarna sé um viðhlítandi lausn að ræða. Ég vil af því tilefni spyrja hæstv. forsrh. hvort ekki megi treysta því, að lengra verði gengið til móts við kartöflubændur en raunin hefur á orðið, þannig að það verði hægt að bæta það tekjutjón, sem þarna hefur orðið, með fullforsvaranlegum hætti.

Ég tek undir það með hv. 2. þm. Norðurl. e., Stefáni Valgeirssyni, að það nær náttúrlega engri átt á ári eins og þessu, þegar veruleg harðindi hafa orðið á stórum landssvæðum og þörf á fjármagni til Bjargráðasjóðs því mun meiri en ella, að ekki skuli vera staðið við lög í sambandi við fjárlög og það skuli vanta á annað hundrað millj. upp á að á s. l. tveimur árum hafi Bjargráðasjóður fengið það fé sem honum ber úr ríkissjóði lögum samkv. Þetta sýnir ásamt öðru hversu djúpt þessi félagsmálaþanki nær nú, sem alltaf er verið að tala um, hjá hæstv. ríkisstj.

Ég vil svo bæta því við, að að öllum þessum málum, tryggingamálum landbúnaðarins, ekki síst þegar talað er um aukabúgreinar eins og laxeldi, um loðdýraeldi og annað því um líkt, er ekki nógu vel staðið þegar verða mikil áföll, ef bústofn hrynur niður, ef kemur upp sýki eða eitthvað því um líkt. Þannig sjáum við þess dæmi að annars blómlegur atvinnurekstur hefur hrunið í rúst á augabragði þar sem ekki liggur m. a. ljóst fyrir hvort búgreinar eiga að réttu aðild að Bjargráðasjóði, sem veldur því að viðkomandi fyrirtæki eða viðkomandi aðilar hafa ekki greitt gjald til sjóðsins eins og þeir eiga kannske kost á. Er nauðsynlegt að marka skýrari stefnu að þessu leyti. Það er mál sem er rétt að taka upp á síðara stigi og ræða þá.

Ég vil sem sagt fagna því, sem fram hefur komið, að þeim bændum, sem hér eiga hlut að máli og verst hafa orðið úti í sambandi við harðindi, verði hjálpað með óverðtryggðum lánum úr Bjargráðasjóði, og ég vil mega vænta þess, að ríkissjóður standi á næsta ári við sinn hlut í sambandi við fjármögnun Bjargráðasjóðs, öfugt við það sem verið hefur á þessu ári og s. l. ári, því að gagnslaust er að setja lög nema við þau sé staðið.

Í síðasta lagi spyr ég um hvort því megi treysta, að kartöflubændur fái réttan sinn hlut frekar en orðið er, svo sem tillögur stjórnar Bjargráðasjóðs segja til um.