09.01.1980
Neðri deild: 15. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 204 í B-deild Alþingistíðinda. (312)
23. mál, Sinfóníuhljómsveit Íslands
Ingvar Gíslason:
Herra forseti. Það er ekki margt sem ég ætla að tala um í sambandi við þetta frv., enda hef ég á undanförnum þingum, má segja, eða þegar þetta mál hefur borið á góma lýst afstöðu minni til þess og lýst því, að mikið nauðsynjamál sé að setja lög um Sinfóníuhljómsveit Íslands. Ég er sem sagt stuðningsmaður þess, að þetta frv. nái fram að ganga eða að lög verði sett um Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Hitt er annað, að áður en þetta mál fer til n., og því mun trúlega verða vísað til þeirrar n. sem ég á sæti í, sé ég ástæðu til að minnast á ákvæði 3. gr. sem hér hafa komið til umr. Sérstaklega minni ég á c-lið 3. gr., þar sem gert er ráð fyrir að borgarsjóður Reykjavíkur og bæjarsjóðir nágrannabæjanna greiði 25% af kostnaðinum við rekstur hljómsveitarinnar. Svo eru e.t.v. fleiri atriði sem þar koma fram, sem mætti gera aths. við, en ég ætla reyndar ekki að gera.
En ég vil minnast á í þessu sambandi og spyrja hæstv. ráðh. hvort fyrir liggi samkomulag sem hægt sé að byggja á löggjöf um þetta efni. Það er síður en svo að ég sjái eftir því að bæjarsjóðir Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Seltjarnarness og Reykjavíkur, þessir sveitarsjóðir, greiði til Sinfóníuhljómsveitarinnar. Það er síður en svo að ég sjái eftir því, ég tel mjög æskilegt að þeir geri það. Hins vegar vil ég að ekki sé um að villast að þeir bæjarsjóðir, sem hér um ræðir, og borgarsjóður Reykjavíkur hafi raunverulega gengist undir slíka kvöð þannig að Alþ. eða ráðh., sem fer með þessi mál, eigi ekki einhver eftirmál, já, reyndar að þingið eigi ekki eftirmál í þessu sambandi. Ég spyr um þetta einmitt vegna þess að ég á sæti í þeirri n. sem kemur til með að fjalla um málið, og ég er ákaflega hræddur um að þetta geti orðið til þess e.t.v., — ég er kannske með hrakspár, — en ég óttast að svo gæti farið, að málið tefðist eitthvað í n., ef það er reyndin að ekki sé nægilegt samkomulag við bæjarstjórnir þeirra kaupstaða, sem þarna ræðir um, auk borgarstjórnar Reykjavíkur.
Að öðru leyti vil ég endurtaka að ég er stuðningsmaður frv. og þess anda sem þar kemur fram og hef ekkert út á það að setja sérstaklega, en leyfi mér samt að gera þessa aths. því að ég held að þar sé um að tefla mjög mikilvægt atriði um framgang málsins hér í þinginu og um framtíð þess yfirleitt.