28.05.1980
Neðri deild: 87. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3194 í B-deild Alþingistíðinda. (3125)
Umræður utan dagskrár
Karvel Pálmason:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir þessi svör. Það virðist nokkuð ljóst að ekki verður lokið þessum undirbúningi þannig að löggjöf verði sett fyrir 1. júní. En ég tek ummæli hæstv. ráðh. þannig, að þó ekki verði svo muni verða gerðar til þess ráðstafanir að lögin taki a. m. k. gildi frá og með 1. júní þó að þau verði síðar sett. Ég skoða þessi ummæli hæstv. ráðh. þannig, að treysta megi því, að við þessari ósk eða beiðni beggja aðila verði orðið og að væntanleg breyting taki gildi frá og með 1. júní n. k., hvenær svo sem löggjöfin sem slík verður gefin út. Mér þótti vænt um að heyra orð ráðh. vegna þess að þetta var kannske einn af mikilvægari liðunum í því samkomulagi sem varð til lausnar þessari deilu. Ég fagna því, að það er ætlun hæstv. ráðh. og þá ríkisstj. í heild að við það verði staðið og málið þannig leyst.