28.05.1980
Sameinað þing: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3199 í B-deild Alþingistíðinda. (3141)

Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti

Vilmundur Gylfason:

Herra forseti. Ég vil leggja á það þunga áherslu, að þeim orðum, sem ég hér segi, er vitaskuld á engan hátt beint gegn þeim einstaklingum sem í dag eru að taka sæti á Alþingi, en ég held að fleiri en mér hljóti að ofbjóða, eins og raunar kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni, að nú, þegar samkomulag hefur náðst um að einasta séu örfáar klukkustundir til þingslita, skuli tækifærið notað og teknir inn tveir nýir varamenn. Látum liggja á milli hluta, þó það út af fyrir sig sé nógu alvarlegt, hvað þetta kann að kosta almannasjóði, en hitt, hvaða tilgangi þetta á að þjóna, hlýtur að vera öllum þingheimi gersamlega óskiljanlegt. Það eru fyrir því fordæmi í öðrum löndum, t. d. í Bretlandi, að ef svo háttar að t. a. m. stuðningsmaður ríkisstj. er fjarverandi af einhverjum ástæðum um mjög skamma hríð er hægt að ná um það samkomulagi við stjórnarandstöðu, þannig að jafnvægi sé milli atkv., að einn þm. stjórnarandstöðu standi í hliðarherbergjum og greiði ekki atkv. þannig að fjarvera þm. komi ekki niður á niðurstöðum atkvgr. Hefði ekki verið nær að nota þá aðferð núna en að einn stjórnmálaflokkur sé á síðasta degi þingsins, þegar innan við sólarhringur er til þingslita, að kalla inn tvo nýja varamenn? Það er eins og maður hafi á tilfinningunni að hér sé um það að ræða að búið sé að gera hrossakaup, þegar framboðslistar eru undirbúnir, og varamennirnir eigi að fá að koma inn hvað sem það kostar.

Óneitanlega er nógu hlálegt þegar varamenn eru að koma inn iðulega á miðjum þingtíma, en þegar innan við 24 klukkustundir eru til þingslita hlýtur slíkt að vekja furðu, svo að ég noti ekki sterkari orð, þeirra þm. sem hér sitja. Ég lít svo á að hér sé um að ræða bæði misnotkun á umburðarlyndi þingheims og hér sé um að ræða einnig móðgun við þm. Þingstörf eiga ekki að vera gamanmál a. m. k. Hér á að framkvæma alvarlegar athafnir. Alvaran getur ekki verið mikil þegar menn eru að rjúka út 24 klukkustundum fyrir þingslit og kalla inn varamenn í staðinn.

Við skulum láta liggja á milli hluta um hvaða stjórnmálaflokk hér er að ræða. Engu að síður vekur furðu að það skuli vera sami stjórnmálaflokkurinn sem á hlut að máli í báðum þessum tilfellum. Það, sem hér er að eiga sér stað, er bæði móðgun við þing og þjóð vegna þess að Alþ. á ekki að vera leikvöllur, heldur alvarleg stofnun þar sem fram fer alvarleg umræða og þar sem teknar eru alvarlegar ákvarðanir.

Herra forseti. Ég fordæmi harðlega að að málum skuli hafa verið staðið með þessum hætti. Ég segi eins og fyrri ræðumaður, að ég kýs að taka ekki þátt í afgreiðslu þeirra kjörbréfa sem hér er um að ræða, og Alþingis vegna vildi ég óska þess að þessir atburðir hefðu ekki átt sér stað.

Ég vil ljúka máli mínu þar sem ég byrjaði. Það er auðvitað erfitt og viðkvæmt að hefja máls á slíku vegna þess að einstaklingar, sem vitaskuld eiga allt gott skilið, eiga í hlut. Það er ekki verið að veitast að þessum tveimur einstaklingum með einum eða öðrum hætti, en það er verið að segja að hér er um óvenjulega fordæmanleg vinnubrögð að ræða og Alþ. er sýnd óvirðing. Þjóðinni er sagt að Alþ. sé raunverulega óvirðulegt. Ég neita því, að Alþ. sé slík stofnun sem þessi ákvörðun kann að gefa í skyn.