28.05.1980
Sameinað þing: 68. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3201 í B-deild Alþingistíðinda. (3145)
Rannsókn kjörbréfs - varamenn taka þingsæti
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það eru örfá orð. Mig undrar það, sérstaklega með hliðsjón af þeim dæmum sem hér hafa verið rakin um framkomu stjórnarandstöðunnar og hvernig hún hafi greitt fyrir afgreiðslu mála, að ekki skuli hafa verið leitað eftir samkomulagi af því tagi sem hv. þm. Vilmundur Gylfason o. fl. hafa gert hér að umræðuefni. Ég held að það hefði verið auðsótt.
Mér sýnist að það sé útúrsnúningur að tala um að það dugi ekki að menn fari í hliðarherbergi. Ég tel að stjórnarandstaðan hafi sýnt að þegar á hafi þurft að halda hafi hún greitt fyrir sjálfri afgreiðslunni, líka með því að greiða atkv. gegn till. Það er þess vegna útúrsnúningur að skýla sér á bak við þetta.
Ég get ekki heldur látið hjá líða að furða mig á því, að hv. þm. Páll Pétursson skyldi efast um að þau loforð héldu sem menn gæfu um slíkt sem þetta. Mér finnst það ekki viðeigandi, og þó að t. d hv. þm. Vilmundur Gylfason hafi oft verið óánægður með þá ríkisstj. sem Páll Pétursson vitnaði til, þá held ég að ég muni það rétt að hann hafi aldrei greitt atkv. gegn henni.