29.05.1980
Efri deild: 106. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3213 í B-deild Alþingistíðinda. (3163)
Starfslok efri deildar
Forseti (Helgi Seljan):
Þar sem þinglausnir eiga að fara fram í dag mun þetta verða síðasti fundur þingdeildarinnar á 102. löggjafarþingi. Ég vil nota þetta tækifæri til að færa hv. þdm. einlægar þakkir fyrir hið ánægjulega samstarf í hvívetna svo og mikið umburðarlyndi í minn garð sem forseta. Ég færi skrifurum deildarinnar bestu þakkir fyrir mikla samviskusemi og ágætlega unnin störf. Einnig þakka ég varaforsetum deildarinnar fyrir þeirra góðu aðstoð og liðsinni við forsetastörf. Skrifstofustjóra Alþingis og öllu starfsfólki þessarar stofnunar færi ég hlýjar þakkir fyrir mikil og góð störf í þágu okkar þm. og Alþingis um leið.
Ég árna ykkur öllum alls velfarnaðar á sumrinu og læt í ljós þá ósk að við megum öll hittast heil að hausti.