29.05.1980
Neðri deild: 91. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3230 í B-deild Alþingistíðinda. (3195)

196. mál, tollskrá

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hv. 3. þm. Reykv. drap í máli sínu á það sem gerðist fyrir allmörgum árum, þegar sett voru lög um tollvörugeymslur. Enginn vafi er á að þau lög hafa haft mikil jákvæð og góð áhrif. Það féll í minn hlut á þeim tíma sem fjmrh. að flytja frv. um tollvörugeymslur. Ég minnist þess vel, sem hv. þm. nefndi, að margvíslegir annmarkar voru taldir á því að fara þá leið og mikil tregða hjá ýmsum að leggja inn á þá braut. Það er hárrétt, sem hann tók fram, að reynslan hefur sýnt hið gagnstæða, að þetta fyrirkomulag hefur orðið öllum til góðs. Ég vænti þess að eitthvað svipað verði um greiðslufrest á tollum eða tollkrít, þó að margir telji fram margvíslega annmarka og hættur í því sambandi muni það reynast vel og ekki verða ríkissjóði sá böggull sem sumir telja, heldur fara í gagnstæða átt, að þegar upp er staðið og nokkur reynsla komin á þetta fyrirkomulag muni allir telja að hér hafi verið rétt spor stigið.