29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3234 í B-deild Alþingistíðinda. (3209)
Kosning sjö manna og jafnmargra vara í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins
Ólafur Ragnar Grímsson:
Herra forseti. Það er óþarfi af hv. þm. Sighvati Björgvinssyni að láta sem himinn og jörð séu að farast vegna þess að kosning fer hér fram. Ég veit ekki til þess að hún muni hafa nokkur áhrif á fulltrúatölu Alþfl. í stjórn húsnæðismálastjórnar. Væntanlega mun Alþfl. fá eftir sem áður einn fulltrúa líkt og til stóð samkv. hans fullu þingmannatölu. Ástæðan fyrir því, að hér fer fram kosning, er ósköp einföld. Hún er sú, að formaður húsnæðismálanefndar Sjálfstfl., Gunnar Björnsson, nýtur meira trausts í liði ríkisstj. en hann gerir í þeim þingflokki Sjálfstfl. sem lýtur forustu Geirs Hallgrímssonar.