29.05.1980
Sameinað þing: 69. fundur, 102. löggjafarþing.
Sjá dálk 3237 í B-deild Alþingistíðinda. (3216)

Kosning sjö manna og jafnmargra vara í stjórn Húsnæðisstofnunar ríkisins

Sverrir Hermannason:

Herra forseti. Það stóð svo sérstaklega á, að ég var tepptur úti á lóð skamman tíma og hafði gengið út frá því sem vísu að þessi kosning færi ekki fram fyrr en kl. 4.

Ég hef tekið þátt í því og þóst leggja ýmislegt á mig til þess að ná samkomulagi um starfshætti og vinnubrögð í lok þessa þings. Menn undruðust hvernig á því stóð, að ekki var lokið kosningu hér í Sþ., eins og fram átti að fara og dagskrá hljóðaði um hér á dögunum. En nú sjáum við hvers vegna hún fór ekki fram. Þá þegar hafði þetta verið undirbúið og til þess að ergja menn ekki eða hleypa upp þeim tilraunum sem gerðar voru til að ná góðu samkomulagi um starfshætti í þinginu var það ekki upplýst. Það er náttúrlega alveg óhugsandi að menn geti lagt sig í líma við að ná góðu samkomulagi um starfshætti og vinnubrögð ef þeir geta átt von á því í framtíðinni að þannig sé stöðugt verið að brugga á bak við. Menn geta ekki átt von á því.

Ég verð að segja það alveg eins og er, að mér hefði ekki fallið vel, þótt ég skilji nauðsynina á því að hæstv. ráðh. fái að greiða atkv. um þetta, ef það samkomulag og yfirlýsing, sem gefin hafði verið um hvenær atkvgr. skyldi fara fram, hefði brugðist og ég af þeim sökum orðið af því að fá að taka þátt í atkvgr. Hvernig sem á málið er litið er mitt atkv. alveg jafnverðmætt og hans. Þegar allt er skoðað eru þetta óholl vinnubrögð og fjarri því að vera til farsældar. — Þetta vildi ég að kæmi fram.